Íslenzk fyndni - 01.06.1933, Page 30
28
37.
P
JL ILTUR og stúlka voru á ferðalagi sam-
an að sumarlagi. Snögglega brast á stór-
veðurs rigning með ofsaroki, svo þau urðu
að nátta sig fyrr en þau ætluðu, en á bæ
þeim, er þau lentu á, var ekki nema eitt
rúm laust. Stúlkan stingur upp á því, að þau
sofi bæði í rúminu, en hafi stóran kodda á
milli sín.
Morguninn eftir er stytt upp, en rokið
hélzt. Þegar þau eru að leggja af stað, fýk-
ur hatturinn af stúlkunni yfir girðingu, er
var hjá bænum. Pilturinn ætlar að hlaupa
yfir girðinguna, en þá slær stúlkan á öxl-
ina á honum og segir:
„Þú kemst ekki yfir þessa girðingu, úr því
þú komst ekki yfir koddann“.
38.
J ÓNAS var merkisbóndi í sinni sveit, en
drakk nokkuð um eitt skeið ævinnar. Ann-
álaður var hann fyrir rólyndi sitt, bæði
drukkinn og ódrukkinn.