Íslenzk fyndni - 01.06.1933, Page 43
41
58.
SæmUNDUR hét maður. Hann var í rík-
isins þjónustu. EÍtt sinn kom hann að gisti-
húsi í sveit og beiddist gistingar. Ráðskonan
var ein heima. Sæmundur fékk hinn bezta
beina og var einn með ráðskonunni í gisti-
húsinu um nóttina. Morguninn eftir vakn-
ar hann snemma og man þá, að hann er
peningalaus með öllu, fer á fætur, tekur
hesta sína og ríður burtu.
Ráðskonan þekkti gjörla stofnun þá, sem
hann vann hjá, og sendir henni þegar reikn-
ing í þrem liðum. Fyrsti liðurinn var kvöld-
verður, er hún reiknaði á 3 krónur, herbergi
á 4 krónur og önnur aðhlynning, er henni
reiknaðist 5 krónur.
69.
-KlAUPMAÐUR einn, sem talinn var
nokkuð fégjarn, var að slá upp kassa í búð
sinni.
Gamall maður, er Jón hét, kom inn í búð-