Vísbending


Vísbending - 01.06.2017, Blaðsíða 3

Vísbending - 01.06.2017, Blaðsíða 3
10 ' ISBENDING V Fasteignamarkaður inn, framboð mun aukast Mynd 1 Þróun vísitölu íbúðaverðs 2010-2017 Grétar Jónasson Framkvæmdastjóri Félags Bfl fasteignasala Mikill skortur á fasteignum hef- ur á liðnum misserum ein- kennt fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu, en eftirpurn hefur verið mjög mikil eins og kunnugt er. Þannig má fullyrða að seljendamark- aður hafi ríkt. Mjög margt hefur spil- að inn í eftirspurnina. Atvinnuástand hefur verið gott og fyrstu kaupendur sem höfðu haldið að sér höndum fóru að koma inn á markaðinn. Aðgengi að lánsfjármagni hefur einnig verið nokk- uð gott og vextir lágir miðað við það sem við höfum þekkt. Mikil fjöldi fólks hefur komið til fslands til að starfa hér á landi, straumur ferðamanna hefur far- ið sívaxandi o.fl. Sögulega lítiö framboö Öllu þessu hefur mætt sögulega lítið framboð fasteigna enda hefur á undan- förnum árum mjög lítið verið byggt og er markaðurinn því algerlega óviðbú- inn eftirspurninni. Þetta hefur skapað mikið ójafnræði á markaði og leitt til þess að fasteignaverð hefur hækkað allt of mikið á of skömmum tíma eða um 20% undanfarna 12 mánuði. í opnum húsum hefur margoft myndast mikil spenna og fjöldi áhugasamra kaupenda mætt. Borið hefur á því á að eignir hafi jafnvel farið á yfirverði. Svo miklar hafa hækkanir verið að stjórnvöld vöruðu fólk fyrir skemmstu við að fara of geyst inn á markaðinn. Fleiri eignir bætast á markaðinn Sem betur fer er í kortunum að um- talsverður fjöldi nýrra eigna komi inn Heimild: Hagstofa íslands. á markaðinn þegar líða fer á árið og á næsta ári enda er knýjandi þörf fyrir að styrkja framboðshliðina. Það leiðir vonandi til þess að unga fólkið og þeir sem leita sér að ódýrara húsnæði geti keypt sér fasteign á sanngjörnu verði enda ríkir ekki jafnvægi milli kaup- enda og seljenda. Um þessar mundir er seljendamarkaður. Mikilvægt er að þær eignir sem koma inn á markaðinn á árinu skili sér til almennings sem er að leita eftir eignum til eigin nota, en á undanförnum misserum hefur mikið borið á stórum félögum eða fjársterkum aðilum sem kaupa mikið magn húsnæð- is. Mjög erfitt er fyrir almenning að bjóða í eignir undir slíkum kringum- stæðum. Skortur á skýrri húsnæðis- stefnu Mjög brýnt er stjórnvöld horfi með skýrari og markvissari hætti fram á veg- inn þegar kemur að fasteignamarkaðin- um enda eru þær sveiflur sem við þekkj- / J- ./ / / / / / / / / um á húsnæðismarkaði ekki til góðs og skapa óöryggi meðal fólks. Fasteigna- markaður er ekki í jafnvægi þegar slegist er um flestar eignir sem koma inn á markaðinn og mikill hraði ræður ríkjum við að koma sér þaki yfir höfuðið. Skýr húsnæðsistefna verður að vera til staðar, en hana skortir áþreifanlega. Oti á landi má einnig sjá víða að mikil eftirspurn hefur verið eftir íbúðar- húsnæði og verð hækkað skarpt á liðn- um mánuðum. Má nefna fjölda staða í því sambandi, en almennt er þróunin sú að sé gott atvinnuástand á svæðinu eða nærri því hafi orðið umtalsverðar hækk- anir á húsnæðisverði. Aulciö framboð mun slá á verðhækkanir Vandasamt er að segja hver þróun fast- eignaverðs verði næstu misseri, en vafa- laust mun verulega aukið framboð eigna inn á markaðinn hafa mikil áhrif að slá á þær bröttu hækkanir sem að hafa verið undanfarin misseri. Ö VÍSBENDING 20. T BI . 2017 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.