Fréttamolinn : óháð fréttablað - 13.11.1985, Qupperneq 2
FM
Fréttamolinn
Fréttamolinn
FM
FM
Fréttamolinn
Óháð fréttablað
Útgefandi: Fréttamolinn Þorlákshöfn.
Ritstjórn og ábyrgð: Hjörleifur Brynjólfsson og Einar Gísla-
son. S99-3438 & 99-3617.
Blaðið er prentað í 5000 eintökum og dreift ókeypis í:
Þorlákshöfn, Vestmannaeyjum, Hveragerði Selfossi, Stokks-
eyri, Eyrarbakka, Hellu, Hvolsvelli, Vík, einnig er blaðinu
dreift á öll heimih í dreifbýli Árnes- og Rangárvallarsýslu.
Kemur út annan hvern miðvikudag.
Tölvusetning, umbrot, filmugerð og prentun: Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum ®98-1210.
Stjörnuspá F.M.
Völva F.M. tóksigtiltileittkvöldidoglasiirstjörnunumyfír
Þorlákshöfn, eftirfarandi stjörnuspá, sem gildir fyrir íbúa
staöarins og næsta nágrennis. Þér er óhætt að taka fullt mark
á spánni því volva F.M. hefur komið sér upp góðum
tækjabúnaði til þessara athugana. Mun hún birta spádóma
sína framvegis í F.M. svo framarlega að ekki verði skýjað.
HRÚTURINN
21. MARZ-19.APRÍL
Þú ferð of geyst yfir þessa dagana. Hafðu hugfast að betra er
að vera lengi og komast það en að vera fljótur og komast það
ekki.
NAUTIÐ
20. APRlL-20. MAl
Þú ert of stór til að vera fjármálaráðherra, of gáfaður til að
vera iðnaðarráðherra. Hættu við allt saman.
WM TVÍBURARNIR
LVÍóS 21. MAl-20. JÚNÍ
Þú lendir”í smá vandræðum í næstu viku sem jafna sig
þegar frá líður. Heillatala er 13.
KRABBINN
21. JÍINl-22. JÚLÍ
Hættu þessari tilraunaeldamennsku og keyptu tilbúna rétti í
liðið, það er orðið grunsamlega fátt í fjölskyldunni.
Iljónið
. JtLl-22. ÁGÚST
Þú munt á næstu dögum kynnast lífsförunaut þínum.
Hann/hún er kafloðin(n) og gegnir nafninu Lúsi.
Hmærin
23. ÁGÚST -22. SEPT.
Þú ert að drepast úr geðvonsku, ef þessu fer ekki að linna þá
mun þér vafalítið vera boðið starf hjá hinu opinbera.
R?fl|vOGIN
W/la SEPT.-22. OKT.
Þú verður að fara að draga fyrir á nóttunni, þessar biðraðir
við gluggann þinn eru þreytandi.
DREKINN
23. OKT.-21. NÓV.
Næsta helgi verður alveg frábær, sérstaklega fyrir þá sem
ætla á ball. Gættu orða þinna er líða fer á nóttina.
fiTfl BOGMAÐURINN
kSNdS 22. NÓV.-21. DES
5 -
Vertu vel vakandi næst þegar þú mætir í vinnuna, það er
búið að færa stimpilklukkuna.
STEINGEmN
22.DES.-19.JAN.
Þú verður ástfangin af stúlku/pilti fyrir utan a. hyntu yfir og
hún/hann mun aldrei gleyma þér.
pj
VATNSBEKINN
20.JAN.-18.Fm
Láttu þér ekki bregða þótt þú sért orðin hreistruð/hreistrað-
ur. Þetta þvæst af með vatni.
5Ö55 FISKARNIR
IjMQ 19. FEB.-20. MARZ
Þú hyggur á bílaviðskipti í næstu viku. Hætíu við, betri er
krókur en kelda.
þar sem völvan vinnur.
Magnús Grímsson Jaðri:
J aðarsfr éttir
Magnús Grímsson
Jaðri.
Jæja, þá er ég kominn aftur
með sögur úr sveitinni. linnst þó
hálfvegis sem fátt sé í fréttum,
allt hafi hér um slóðir gengið
stórslysa- og átakalaust síðan ég
síðast sendi ykkur línu, hvað um
það, við skulum líta yfir vcg
síðasta misseris, byrja að vori
sem við bændur svo gjarnan
tengjum sauðburði. Talsvert
mun hafa verið um, að fé hafi
verið fóðrað yfir veturinn á
lélegum heyjum eftir óþurrka-
sumarið í fyrra og því illa gengið
fram hjá þeim sem ekki gáfu því
meira af rándýrum fóðurbæti,
en þar á móti kemur sú blíð-
skapartíð þegar snjóa leysti og
hefur svo haldist fram eftir hausti
enda mun fallþungi í sláturhús-
um vera tæpu kílói meiri að
meðaltali en í fyrra og hljótum
við að þakka það sumarblíðunni.
Hún var þó ekki einróma lofuð
því þegar Iíða tók á sumar þorn-
uðu víða vatnsból svo að til
vandræða horfði. Sumir leystu
þann vanda með því að dæla
heitu vatni í brunna sína hvar
það kólnar og kemur síðan til
bæjar sem kalt. Ekki höfðu allir
tök á því og máttu þá aka vatni
úr ám sem enn seitluðu. Hef ég
það eftir Kristrúnu á Fossi að
aldrei í þau 50 ár sem hún hefur
þar búið hafi hún séð svo lítið
vatn í henni Fossá enda sumarið
einstakt vegna þurrviðra. Þar
varð ekki breyting á fyrr en 11.
október að byrjaði að rigna og
þann 15. er hér á Jaðri 60 mm
sólarhringsúrkoma og má til
gamans geta þess, að þá mun um
15 milljón tonn af vatni hafa
fallið á Hrunamannahrepp neð-
an afréttargirðingar og það mun
taka Þjórsá 11-12 klukkustundir
að skila slíku vatnsmagni af sér
miðað við meðal rennsli hennar.
Fylltust nú allir brunnar og lofa
menn blessaða vætuna. í Kjarn-
holtum í Biskupstungum var
rekið sumardvalarheimili við
góða aðsókn og létu vel af sér
jafnt dvalargestir sem starfsfólk.
Börn fengu þar að kynnast nátt-
úrunni á ýmsa lund, svo sem
hcstum og sauðburði. Hvortsem
skal þakka þeim eða sumarblíð-
unni þá hef ég heyrt að lömbin á
næstu bæjum hafi verið mun
vænni í haust en áður.
Ýmsir eru þeir og fer fjölgandi
til sveita sem selja vilja cöa
leigja land undir sumarbústaði en
verður lítið ágengt, ef til vill er
hringt og spurt hvort þar sé
jarðhiti. ef svo er ekki er áhuginn
þorrinn, aftur á móti hefur
Hrunamannahreppur nú afgreitt
yfir 20 lóðir á skipulögðu svæði í
nágrenni Flúöa þar sem fylgir
heitt og kalt vatn ásamt aðlögð-
um vegi. Þykir mér þctta benda
til þess að af sé það sem áður var
er fólk sóttist eftir að byggja sér
kofa í rjóðri á afskekktum stað
án allrar þjónustu og munaðar.
Samkomur:
Skemmtilegasta samkoma
sem ég man eftir í sumar, mun
hafa verið áttræðisafmæli Þor-
steins Loftssonar sem synir hans
héldu upp á Haukholtum. Var
þar margt fólk saman komið og
glatt á hjalla, veitingar til sam-
ræmis viö hina rómuðu gestrisni
þar á bæ, sagðar sögur og kveðin
Ijóð Þorsteini til dýrðar. Þá
komu og fjölmargir sauðfjár-
bændur saman að Minni-Borg í
Grímsnesi í lok heyskapar, hvar
haldinn var stofnfundur sauð-
fjárbænda í Árnessýslu. Nú
skyldi finna leiöir til úrbóta til
aukins arðs af sauðfénu. Ýmsar
leiðir bentu menn á, sauðfjár-
bændum stafar ógn af hinu ljósa
keti sem sífellt eykur marþaðs-
hlutdeild sína á kostnað sauð-
fjárbænda. Vænlegast sýndist
mörgum að sækja á markaðinn
vestan hafs, en töldu slíkt alltaf
hafa mistekist vegna ýmisskonar
klaufaskapar útflytjenda, en þeir
Sigurgeir Þorgeirsson og Gunnar
Páll Ingólfsson hafa kynnt sér
Ameríkumarkaðinn á vegum
landssamtaka sauðfjárbænda og
töldu að í gegn um hann mættu
íslenskir sauðfjárbændur bráð-
um sjá sinn fífil fegri. Á heim-
leiðinni bundust svo hugleiðing-
ar eins fundarmanna lj óðstöfum:
Margur kom að Mirmi-Borg
mjög afsulti knúinn
allir báru eina sorg
auðurinn var búinn.
Sauðamenn afseiglu og dug
saman báru ráðin,
vandanum þeirýttu á bug
yfir böl og láðin.
Svín og hæna seðja þjóð
sauðurinn á flótta
víkjum því á vesturslóð
virkjum landið gnótta.
Mun þá gilda meira tap
markaðinn að fylla
ef við látum asnaskap
okkar vöru spilla.
Sigurgeir með seið og tár
síst má aukast gleðin
göldróttan og Gunnar Pál
gerum út á miðin.
Horskir tóku hatt og staf
herleg varsúförin
auðmenn fyrir utan haf
okkar bæta kjörin.
Senn mun þjóðin sæl og heit
sultarkjörum gleyma,
auðnum skilar aurinn heim
....er mig kannski að dreyma.
Framkvæmdir:
Telja verður að framkvæmdir
meðal bænda hér í sveit sem
annarsstaðar hafa dregist saman
að undanförnu. Tvö íbúðarhús
eru í smíðum auk smávægilegra
viöbygginga og endurbóta. Einn
er þó ungur ofurhugi, Hjörleifur
á Fossi, eða Fosssetinn eins og
hann stundum er nefndur, sem
hefur steypt upp tvo 12 m háa
votheysturna við væntanlega
stórfjósbyggingu og ferðast nú
um meðal tæknivæddra þjóða í
leit að hentugum losunarbúnaði
í turnana, en turnar þessir hafa
verið reistir ásamt 10 öðrum
víðsvegar um Suðurland á veg-
um Hrunafélagsins. Fram-
kvæmdastjóri þess er Valur
Lýðsson á Gýgjarhóli. hann tel-
ur að rúmmetri af slíkum turni
kosti u.þ.b. 50% af verði inn-
fluttra stálturna.
Aftur á móti er gróska í
byggðakjörnum.
Á Flúðum eru nú fjögur íbúð-
arhús í smíðum svo og um 300
fm bifreiðaverkstæði, gróðurhús
og ýmislegt fleira er á döfinni,
auk fyrrgreindra sumarhúsa.
Haust:
Senn líður sumar að hausti,
heyskapur var mönnum sem létt-
ur leikur, hlöður fullar af úrvals-
heyi og allir glaðir og kátir.
Athygli vakti þegar stórbóndinn
Magnús í Birtingarholti aflagði
baggaheyskap og fjárfesti í full-
komnum útbúnaði fyrir þurr-
heysgirðingar og telur það taka
nokkuð fram, þó meiri vinna sé
að gefa að vetri. Úrvalsveður
fengu fjallamenn til sinna starfa,
enda smalaðist vel. Eftirleitar-
menn fengu hinsvegar leiðinda-
veður sem tafði þó lítt för þeirra,
enda þakið harðsnúnasta liði.
Laugardaginn þriðja nóv. s.l.
skall á stórhríð nokkuð skyndi-
lega, þustu menn þá til að setja
inn geldneyti og fé. Bjössi í
Hvítárdal kveðst ekki hafa oft
lent í slíkum eltingarleik við fé á
fjalli sem nú við kvígur nágranna
sinna sem stukku upp um fjöll og
firnindi. Að minnsta kosti fjórar
kvígur létu lífið og hröktust í
skurði, svo og eitthvað af fé, en
nú eru menn í óða önn að ná
saman ánum í hús og finnst mér
sem þar með sé vetur í garð
genginn.
Bíll til sölu:
Toyota Corona
Mark II árg
'77.
upplýsingar
í síma3873
og 3993.
LEIKIR
Ferðaleikir eru margir til og auka
ánægju yngstu ferðalanganna.
Orðaleikir, gátur, keppni I hver
þekkir flest umferðarmerki og bíla-
talningarleikir henta vel i þessu
skyni.