Fréttamolinn : óháð fréttablað - 13.11.1985, Síða 7
Fréttamolinn
Fréttamolinn
Frá foreldra og kennarafélagi
Grunnskóla Þorlákshafnar
Nú er vetrarstarfið hafið.
Aðalfundur félagsins var haldinn
26. september og var þar kosinn
nýr gjaldkeri, Valgerður Jó-
hannesdóttir. Varamenn voru
kjörnir, en aðrir í stjórn hafa
ekki lokið kjörtímabili sínu. Á
fundinum var einnig rætt um
störf félagsins á liðnu ári og
tilhögun starfsins í vetur.
Tenglafundur var síðan
haldinn. Þar sem nýjum tenglum
var kynnt starfsemin. Mjög vel
var mætt á þann fund og mikill
áhugi virtist vera hjá fólki. Allir
voru t.d. boðnir og búnir til að
baka við kaffisölur sem stóðu
fyrir dyrum. Sú fyrri hefur farið
fram, í tengslum við opinn dag í
skólanum sem haldinn var laug-
ardaginn 2. nóvember s.l. Þá var
félagið með kaffisölu fyrir for-
eldra og gesti, börnin gátu fengið
keypta snúða og ávaxtasafa.
Mjög góð þátttaka var, á annað
hundrað manna heimsóttu
skólann, þá var síldarsöltun í
a.m.k. tveimur vinnslustöðvum
á staðnum þennan dag. Fólk
virtist reyna að skreppa a.m.k. í
1-2 tíma til að kynna sér starf
barna sinna og kennara. Og allir
virtust vel ánægðir og hamingju-
samir með daginn, bæði börn,
foreldrar og starfslið skólans.
Allur ágóði af þessari kaffisölu
fer í að endurnýja stólakost yngri
barnanna.
En það er ekki allt búið enn,
því 21. nóvember fáum við
Njörð P. Njarðvík rithöfund í
heimsókn. Hann ætlar að vera
með fyrirlestur um bók sína
„Ekkert mál“ sem fjallar um líf
eiturlyfjaneytanda. Á þennan
fyrirlestur eru allir fullorðnir,
sem áhuga hafa á, velkomnir,
hvort sem þeir eru félagsmenn
eða ekki og hvort sem þeir eiga
börn í grunnskólanum eða ekki.
Fundurinn verður kl. 20.30
fimmtudaginn 21. nóvember í
skólanum og verðum við þar
með kaffisölu.
Svo nú er bara að drífa sig í að
lesa bókina, ef fólk hefur tök á
og mæta svo á fundinn því þetta
er mál sem alla varðar.
Forvarnarstarf í ávana og
fíkniefnum hefur verið unnið á
síðastliðnum 4 árum í samvinnu
Foreldrafélagsins og skólans.
Árni Einarsson fulltrúi hjá
áfengisvarnarráði mun vera
hérna dagana 19. og 20. nóv. og
vinna með nemendurm 6. og 7.
bekkjar grunnskólans að verk-
efnum varðandi þetta efni. Er
það 3ja árið sem hann heimsækir
skólann.
Stjórn foreldra og kennarafél-
agsins vill nota tækifærið og
þakka ánægjulegt samstarf við
foreldra og starfslið skólans, og
hvetur alla til að leggja góðu
máli lið, því góður skóli er hagur
okkar allra.
Með kveðju:
Fyrir hönd Foreldra og kenn-
arafélags Grunnskóla Þorláks-
hafnar:
Ellen Ólafsdóttir formaður.
F.JM. fyrir smáauglýsingar
F.M. fyrir stórar auglýsingar
Höndlað með næringu
Af sérstökum ástæðum er þessi veitingastaður í Hveragerði til sölu
ásamt tilheyrandi aðstöðu. Ekki ósjaldan hefur blm. FM orðið var
við biðraðir og óvenjumikil viðskipti í pylsusölu í Hveragerði, en
veitingastaðurinn er staðsettur við mjög áberandi stað sem blasir við
vegfarendum fljótlega eftir að rennt er inn í þorpið. Allar nánari
upplýsingar um sölu á fyrirtækinu gefur Ómar í síma 4457.
Meistaraskóli
í húsasmíöunn, pípulögnum og múrverki
hefst í þessari viku. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu Fjölbrautaskóla Suðurlands,
Austurvegi 10, Selfossi, sími 2111.
28. október, 1985
Skólameistari
Bændur og búalið
Eigum yfirleitt til síldarúrgang mjög heppilegan
til skepnufóðurs. Hagstætt verð, tökum niður
pantanir.
Suðurvör hf.
Sími 3106, 3565 og 3965.
Björgunarnet-
ið Markús
Mótar það alþjóðareglur í framtíðinni?
1 júlí s.l. voru settar nýjar
reglur um björgunar og öryggis-
búnað íslenskra skipa.
í þessari reglugerð, nánar til-
tekið í grein 10.6, er merkileg
nýjung, þar sem viðurkennd er
þörfin fyrir sérhannað tæki til að
ná manni uppúr sjó um borð í
skip.
Ein aðal ástæðan fyrir þessari
grein í reglugerðinni er barátta
Markúsars B. Þorgeirssonar
skipstjóra úr Hafnarfirði fyrir
viðurkenningu á hugmynd sinni
Björgunarnetinu Markúsi.
Áhugi þeirra mörgu björgun-
armanna sem lögðu málinu lið
fyrir orð Hannesar Hafstein
framkvæmdastjóra Slysavarna-
félags íslands svo og þeir mörgu
útgerðarmenn og sjómenn sem
tóku netið um borð í skip sín
áður en yfirburðir þess til að ná
manni úr sjó urðu almennt viður-
kenndir, eiga sinn þátt í að þessi
áfangi hefur náðst.
Meðmæli Hjálmars R. Bárð-
arsonar og skólastjóra Stýri-
mannaskólanna í Reykjavík og
Vestmannaeyjum áttu einnig
drjúgan þátt í haráttu Markúsar
í upphafi.
Eftir andlát Markúsar fól fjöl-
skylda hans tengdasyni Markús-
ar Pétri Th. Péturssyni að halda
baráttu fyrir hugmyndinni
áfram, til að koma í veg fyrir að
hún yrði eyðilögð og ef unnt
væri, til að láta fullreyna hvort
hún gæti skapað sér gjaldeyris-
skapandi atvinnu fyrir aldraða
og öryrkja.
Því hefur Björgunarnetið
Markús hf. Hafnarfírði nú tekið
yfir alla þróunarvinnu, fram-
leiðslu og sölu á björgunarnet-
inu. Hjá fyrirtækinu starfa nú
fimm fastir starfsmenn. Auk
þess vinna um sex aldraðir á
Hrafnistu við fellingu á nýjum
netum.
Nú erunnið að markaðsathug-
un erlendis og lofar sú vinna sem
þegar hefur farið fram góðu og
ef að líkum lætur mun útflutn-
ingur geta hafist um áramótin.
Björgunarnetið Markús hf.
hefur nú tekið upp samvinnu við
björgunarsveitirnar Björg Eyr-
arbakka, Dröfn Stokkseyri og
Mannbjörg í Þorlákshöfn um
sölu á netinu og mun það verða
þeim fjárhagsleg búbót þar sem
björgunarsveitirnar munu fá
akveðnar prósentur af sölu. Sjá
nánari upplýsingar um sölumenn
annarsstaðar í blaðinu.
Hveragerdi
S 4162-4122
Kaupfélag Árnesinga
Þorlákshöfn
3666 - 3876
Munið sértilboðin í hverri viku
VINSAMLEGAST LÍTIÐ INN:
KÁ Hveragerði
KÁ Þorlákshöfn