Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 12

Fréttablaðið - 02.11.2022, Page 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Stærsta sérverslun landsins með rúmföt er vafalaust Rúmföt.is við Nýbýlaveg 28 í Kópavoginum. „Kosturinn við okkur er breiddin í verði og áherslan á gæði. Sængur­ fötin okkar henta vel til jólagjafa því þau eru betri og ódýrari en rúmfötin sem samkeppnisaðilar okkar eru að bjóða. Þrjú hundruð þráða rúmfötin okkar eru æðislega mjúk og þau eru líka flest straufrí sem fólk kann að meta. Fólk elskar þau og kemur aftur og aftur að kaupa fleiri, enda auðvelt að vera með rúmfatablæti þegar það sér úrvalið hjá okkur,“ segir Hildur Þórðardóttir verslunarstjóri. „600 þráða rúmfötin okkar eru orðin fræg um allt land. Þau eru örlítið dýrari, um 16 þúsund, en eru enn þá mýkri og örlítið þykkari. Þau henta sérlega vel þeim sem eru ekki með aðstöðu til að hengja rúmfötin upp, heldur nota þurrkara. Við mælum aldrei með miklum tíma í þurrkara fyrir rúmfötin, því hann getur rifið úr efninu svo rúmfötin endast skemur og verða hrjúfari með tím­ anum. Betra er að brjóta rúmfötin saman og hengja þau yfir þvotta­ snúru eða jafnvel hurð ef fólk er ekki með neinar snúrur.“ Fleiri þræðir þýða meiri mýkt Fyrir um það bil einu ári hófu Rúmföt.is að einnig að selja rúmföt úr 900 þráða bómullarsatíni að sögn Hildar. „Því fleiri þræðir, því meiri mýkt og satínáferð. Ef fólki verður of heitt á nóttunni er gott að snúa þeim við og þá er efnið svalt og kælandi. Við prófum alltaf að þvo rúmfötin okkar til að sjá hvernig þau þola þvott og þessi voru mýkst og gæðalegust eftir marga þvotta.“ Það má segja að búðin hafi byrjað í horninu í afgreiðslu Þvottahúss A. Smith. „Þegar Fata­ búðin og Verið lögðu upp laupana myndaðist stórt skarð og fram­ boðið af vönduðum rúmfötum var vægast sagt frekar lélegt. Fólk borgaði háar fjárhæðir fyrir rúm­ föt sem urðu svo að einu krumpu­ stykki eftir aðeins einn þvott. Við sáum þetta þegar við þvoðum þessar vörur fyrir viðskiptavini okkar og blöskraði hreinlega. Þetta var kannski íslensk hönnun, en gæðin á efnunum afspyrnuléleg. Við fórum því á stúfana og hófum sjálf innflutning á rúmfötum í margfalt betri gæðum.“ Quagliotti var eitt af fyrstu merkjunum sem Rúmföt.is flutti inn. „Þetta ítalska fjölskyldu­ fyrirtæki er næstum hundrað ára og vefur hágæða rúmföt fyrir flottustu hótel heims og sérstaka viðskiptavini, svo sem bresku konungsfjölskylduna, milljarða­ mæringa og síðan okkur. Þeir hafa nú ofið og saumað rúmföt fyrir okkur í bráðum 17 ár, meðal ann­ ars sama mynstur og þeir fram­ leiða fyrir Ritz hótelið í París.“ Bjóða upp á íslenska framleiðslu „Annars kaupum við fullt af dýrindis efnum frá öðrum vefara á Ítalíu og erum stolt af því að geta boðið upp á íslenska framleiðslu,“ segir Hildur. „Fólk veit þá nákvæm­ lega hver saumaði rúmfötin.“ Saumakona Rúmföt.is, Mar­ grét Guðlaugsdóttir, er með 60 ára reynslu og hefur saumað rúmföt fyrir tugi þúsunda Íslendinga. „Ég fæ að stjórna tíma mínum sjálf. Sauma kannski í fjóra tíma hér og fer svo heim og legg mig. Ég held ég myndi bara leggjast í kör ef ég hefði ekki félagsskapinn og verkefnin hér í vinnunni. Það er svo dýrmætt að halda sér gangandi og ekki síður að halda heilanum virkum,“ segir Margrét. Hildur segir efnin sem þau kaupa vera úr sérvalinni egypskri bómull, frá 600 þráða og allt upp í 1.400 þráða. „Ein eru til dæmis úr Giza 87 sem er besta bómull í heimi. Þetta er ýmist damask eða satín. Damask þýðir að mynstrið er ofið í efnið og satín þýðir glans­ andi áferð.“ Hún segir enn vera til fólk sem heldur að satín sé nafn á einhverju polyester­gervidrasli. „Við erum Seljum út á land í gegnum netverslun. Hildur Þórðardóttir verslunarstjóri er hér að ganga frá pöntun. Vorum að fá nýja sendingu af rúmfötum. Rúmföt í öllum regnbogans litum. Klassísk rúmföt á 16.800 krónur frá litáíska fyrirtækinu DecoFlux. Hjá Rúmföt.is má finna lands- ins breiðasta úrval af 600 þráða bómullarsatíni. Lúxusrúmföt frá ítölskum vefurum, 34.000 krónur. Sængurfötin okkar henta vel til jóla- gjafa því þau eru betri og á sanngjarnara verði en samkeppnisaðilar okkur eru að bjóða. Hildur Þórðardóttir endalaust að leiðrétta það. Það er heldur ekkert silki í silkidamaski, heldur er þráðurinn fíngerður svo efnið verður silkikenndara. Þetta eru náttúrulega ákveðin fræði og það er bara gaman að fræða fólk og leyfa því að finna muninn á ólíkum efnum.“ Margrét er búin að vera allt árið að sauma fyrir jólavertíðina að sögn Hildar og síðustu dagana fyrir jól eru hillurnar með sett­ unum hennar venjulega orðnar tómar. „Þess vegna er gott að vera tímanlega og koma strax á meðan úrvalið er hvað mest.“ n Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í Kópavoginum og opnunartími er virka daga kl. 12-17.30 og laugar- daga kl. 11-15. Nánar á rumfot.is. 2 kynningarblað A L LT 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.