Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 20

Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 20
Toyota hefur ávallt verið sterkt merki í flokki jeppa og jepplinga og fær nú enn eina rósina í hnappagatið í formi Toyota Corolla Cross. Við sjáum sífellt f leiri merki þess að hinn hefðbundni fólksbíll sé að leiðinni út af markaði í stað bíla með jepplingslagi. Hjá Toyota hefur það verið áberandi en þar hafa á stuttum tíma komið jepp- lingsútgáfur af Aygo og Yaris og sá nýjasti til að fá jepplingsum- breytinguna er Corolla Cross. Bílablað Fréttablaðsins brá sér til Spánar í síðasta mánuði og reynsluók bílnum við marghátt- aðar aðstæður. Toyota er reyndar merki sem er ekki fátækt af jepplingum, en Corolla Cross er sjá fimmti í röðinni. Það sem er athyglis- vert við Corolla Cross er að hann dettur beint í sama flokk og vin- sælir jepplingar eins og Nissan Qashqai og f leiri slíkir og því má segja að tilkoma þessa bíls hafi verið nauðsynleg fyrir Toyota. Toyota Corolla Cross kemur í tveimur útfærslum, framhjóla- drifinni tvinnútfærslu sem skilar 197 hestöflum og fjórhjóladrifinn með sömu vél ásamt 41 hestafls rafmótor fyrir afturdrifið. Búist er við að megnið af sölunni hérlendis verði í fjórhjóladrifsbílnum. Corolla Cross er búinn fimmtu kynslóð tvinnbúnaðar Toyota og er rafhlaðan nú 14% öflugri en áður. Það er óhætt að segja að bíll- inn keyri talsvert á rafmagninu, sérstaklega á litlum hraða eins og þegar ekið er af stað yfir gatnamót eða inni á bílastæðum. Hægt er að láta hann keyra eingöngu á rafmagni með því að ýta á takka og nær hann þá kannski 1-2 kíló- Corolla Cross er búinn fimmtu kynslóð tvinnbúnaðar Toyota og er rafhlaðan nú 14% öflugri en áður. Það er óhætt að segja að bíllinn keyri talsvert á rafmagninu. Grunnverð: 6.590.000 kr. Hestöfl: 197 Hröðun 0-100 km: 7,5 sek. Hámarkshraði: 180 km L/B/H: 4.460/1.825/1.620 mm Hjólhaf: 2.640 mm Veghæð: 160 mm Farangursrými: 433 l Eyðsla: 5,3–5,6 l/100 km CO2: 119–127 g/100 km Toyota Corolla Cross KOSTIR n Tvinnkerfi n Eyðsla n Fjöðrun GALLAR n Fótapláss miðjufarþega n Lágt undir pústkerfi Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall @frettabladid.is Kemur sterkur inn í samkeppnina Mælaborðið er nokkuð líkt hefðbundinni Corollu og 10,5 tommu margmiðlunar- skjárinn er stað- settur frekar ofarlega. Sólþak er staðalbúnaður í fjórhjóladrifs- bílnum. Nýr Toyota Corolla Cross fyllir upp í gat sem var á jepplingalínu Toyota þar sem samkeppnin hefur verið hvað hörðust. MYNDIR/NJÁLL GUNNLAUGSSON 6 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.