Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 24
njall@frettabladid.is Renault er á leiðinni með stærri útgáfu af Austral-jepplingnum sem verður sjö sæta. Bíllinn er kallaður Grand Austral og Auto Express birti þessa njósnamynd af bílnum á dögunum. Að öllum líkindum kemur hann á sama CMF-D undirvagni og nýr Nissan X-Trail. Hann mun þó nota hefðbundna tvinnútfærslu ólíkt Nissan X-Trail sem kemur með rafmótor sem er tengdur rafhlöðu sem hlaðin er af bensínvél. Fimm sæta Renault Austral er boðinn með 1,2 lítra, þriggja strokka vél sem með tvinnbúnaði skilar 196 hestöflum. Bíllinn er nokkuð líkur fimm sæta Austral nema að aftan þar sem aftur- rúðan er nánast lóðrétt til að skapa höfuðrými fyrir þriðju sætaröðina. Búast má við bílnum á markað strax á næsta ári. n Renault Austral í sjö sæta útgáfu Þrátt fyrir dulbúning sést að bíllinn verður nokkuð líkur fimm sæta útgáfunni. MYND/AUTO EXPRESS BeyonCa er nýtt rafbíla- merki og er nafnið stytting á Beyond the Car enda bíllinn vel búinn tæknibúnaði. njall@frettabladid.is BeyonCa er nýlega stofnað bíla- fyrirtæki í Kína með áherlu á dýra rafbíla. Fyrirtækið rekur hönnunarmiðstöð í Þýskalandi og kynnti á dögunum fyrsta bíl sinn, GT lúxusbílinn Optus 1. Bíllinn er smíðaður með sam- keppni við Porsche Taycan í huga, og þó að bíllinn hafi ekki verið frumsýndur mun hann líkjast mikið tilraunabílnum á myndum sem fylgdu fréttatilkynningu. Svipur bílsins er ákveðinn með örvarlaga grilli og loftdreifara að framan. Hjólaskálarnar eru í yfirstærð og afturendinn mjókkar aftur. Bíllinn er 5.200 mm langur svo hann er næstum jafnstór og Mercedes-Benz EQS. Hjólhafið er 3.000 mm svo að innanrými ætti að vera mjög gott. Framleiðslugerð bílsins mun fá allt að 130 kWst raf- hlöðu sem notar 800 volta rafkerfi. Mun hann einnig geta fylgst með líkamsástandi ökumanns. Bíllinn verður framleiddur í Kína af Dongfeng Motors til að byrja með, en BeyonCa áætlar að frumsýna 3–5 nýja bíla á næstu fimm árum. n BeyonCa frá Kína kynnir Optus 1 Bíllinn mun hafa háþróaðan sjálfkeyrslubúnað þegar hann kemur á markað. MYNDIR/BEYONCA njall@frettabladid.is Fleiri og f leiri fólksbílar hverfa nú úr sýningarsölum bílaumboða og rafdrifnir jepplingar koma þar inn í staðinn. Hjá Volvo hefur verið tekin sú ákvörðun að taka S60-bílinn úr sölu sem hingað til hefur verið fáanlegur í 246 hestafla tvinn útfærslu eða sem 448 hestafla tengiltvinnbíll. Volvo V60 verður þó áfram í sölu en óvíst er enn þá hvort bíllinn hverfi úr framleiðslu. Samkvæmt bílatímaritinu Autocar hefur sala á 60-línunni minnkað um 51% frá 2021 í Bret- landi. Önnur ástæða fyrir því að taka bílinn úr sölu gæti verið sú að hann er framleiddur í verksmiðju Volvo í Suður-Karólínu, þeirri sömu og á að framleiða EX 90-raf- jepplinginn sem kemur á markað á næsta ári. n Volvo S60 tekinn úr sölu í Bretlandi Haldið verður áfram að selja systurbílinn Volvo V60 þótt S60 hafi verið tekinn úr sölu. MYND/VOLVO njall@frettabladid.is Kia Stinger er stór og mikill sport- bíll frá Suður-Kóreu með vélbún- aði sem skilað getur 368 hest- öflum á verði sem er talsvert fyrir neðan sambærilega samkeppni frá Evrópu. Þrátt fyrir þessa stað- reynd er bíllinn á leiðinni út og verður sá síðasti framleiddur í apríl næstkomandi. Það er ein- faldlega ekki nógu mikil sala í bíl sem þessum en salan á þessu ári hefur minnkað um næstum því helming frá árinu áður. Enginn beinn arftaki er í píp- unum en búist er við Kia EV6 GT taki við kyndlinum. n Kia Stinger að fara undir öxina Kia Stinger fékk andlitslyftinu í fyrra sem dugði ekki til að halda lífi í honum. MYND/KIA Mikið er um lúxus í Optus 1. Svipur bílsins er ákveðinn svo ekki sé meira sagt með örvar- laga grilli og loftdreifara að framan. Hjólaskál- arnar eru í yfirstærð og afturendinn mjókkar aftur eins og bátur. Að öllum líkindum kemur hann á sama CMF-D undirvagni og nýr sjö sæta X-Trail en þá með tvinnútfærslu. www.detailsetrid.is Allt í bílaþrifin á einum stað Allar helstu vörur frá vörumerkinu GYEON Upplýsingar og ráðgjöf veitir Andri í síma 787-7888 eða andri@detailsetrid.is 10 BÍ L A BL A ÐI Ð 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.