Fréttablaðið - 02.11.2022, Qupperneq 28
Fiskigratín og pasta
er matur sem
krakkar eru hrifnir af og
þetta eru flottir hvers-
dagsréttir.
Í vefverslun okkar á ggsport.is má finna meira úrval af öllu sem þarf í ævintýrið þitt!
Smiðjuvegur 8, græn gata • 200 Kópavogi • Sími: 571-1020 • ggsport.is
Opnunartími: Virkir dagar 10:30-18, laugardagur 11-15
ERT ÞÚ KLÁR
Í VEIÐINA?
Stingum af…
Við hjálpum þér að
velja rétta búnaðinn!
Það er ekki endilega nauð-
synlegt að borða heitar og
matarmiklar súpur eða pott-
rétti þótt kominn sé vetur.
Léttur matur getur verið
ágætis tilbreyting hvort sem
það er fiskur eða kjúklingur.
Hér koma hugmyndir að
hversdagsréttum.
elin@frettabladid.is
Áður fyrr var fiskigratín vinsæll
matur og var á borðum þegar fólk
vildi gera vel við sig hversdags.
Hvernig væri að endurnýja kynnin
við þennan rétt? Í hann má nota
afgang af fiski eða bara þann fisk
sem fólk kýs helst. Fiskigratín er
oft í uppáhaldi hjá börnum.
Heimagert fiskigratín
fyrir fjóra
2 msk. smjör
3 msk. hveiti
4 dl mjólk
½ tsk. múskat
Um það bil 400 g soðinn fiskur
100 g makkarónur
½ blaðlaukur, smátt skorinn
3 egg
2 msk. brauðrasp
Salt og pipar
Byrjið á að gera hvítan jafning.
Bræðið smjör í góðum potti,
hrærið hveiti saman við þannig að
blandan verði jöfn og fín. Bætið
þá mjólkinni rólega út í og bakið
upp sósuna. Látið malla í nokkrar
mínútur en gætið að brenna ekki.
Smakkið til með múskati, salti og
pipar. Takið af hitanum.
Sjóðið fiskinn, bein og roð-
hreinsið hann og skerið í litla bita.
Sjóðið makkarónur eftir leiðbein-
ingum á umbúðum. Skiljið eggin
og hrærið einni eggjarauðu í einu
saman við jafninginn. Því næst
er fiskbitanum bætt saman við,
makkarónum og blaðlauk.
Stíf þeytið eggjahvíturnar og
blandið þeim varlega saman við.
Hitið ofninn í 200°C. Smyrjið
eldfast mót með smjöri og
hellið blöndunni í formið. Dreifið
brauðraspi yfir og setjið formið
neðarlega í ofninn. Bakið í 40
mínútur eða þar til rétturinn
hefur fengið á sig fallegan lit.
Berið fiskgratínið fram með
bræddu smjöri og soðnum kart-
öflum. Gott er að hafa salat til
hliðar eða brauð.
Venjulega er notaður hvítur
fiskur í réttinn en mörgum finnst
gott að blanda hann smávegis
með reyktri ýsu. Það fer þó bara
eftir smekk.
Léttir og góðir heimilisréttir
Heimagert fiskigratín er alltaf gott og uppáhald margra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Kjúklingur með spínatpasta er hollur og góður réttur.
Kjúklingur með spínatpasta
Hér er annar réttur sem er bæði
hollur og góður. Einfalt er að gera
þennan rétt og krökkum finnst
hann ágætur.
Um það bil 500 g kjúklingabringur
1 msk. olía
Sósa
½ dós sýrður rjómi, 18%
100 g frosið spínat
2 hvítlauksrif
1,5 dl kjúklingasoð
75 g rifinn ostur
Sjávarsalt og pipar
200 g tagliatelle pasta
Setjið spínat í kalt vatn, skolið og
þerrið. Setjið í pott ásamt öðrum
innihaldsefnum í sósuna. Bland-
ið vel saman. Látið malla þar til
sósan þykknar og bragðbætið
með salti og pipar.
Steikið kjúklinginn á
pönnu þar til hann verður
gegnsteikur. Bragðbætið
með salti og pipar. Nota má
önnur krydd eins og basil
eða óreganó. Einnig
er gott að dreifa
smávegis bal-
samsírópi yfir
kjúklinginn á
pönnunni.
Sjóðið pasta
eftir leið-
beiningum.
Setjið pastað út í
sósuna og blandið
saman.
Setjið kjúklinginn
á disk með pastanu og
skreytið gjarnan með
ólífum, kirsuberjató-
mötum, grænu salati og
sítrónubitum.
Epli og perur með mulningi
Hvernig væri að koma heimilis-
fólkinu á óvart með frábærum
eftirrétti? Uppskriftin ætti að
komast í sex litlar skálar eða
álform. Það eru ekki margar hita-
einingar í þessum rétti.
2 epli, skorin í þunnar sneiðar
2 perur, skornar í þunnar sneiðar
Rifinn sítrónubörkur og safi úr
einni sítrónu
2 kvistir ferskt rósmarín, smátt
skorið
2 tsk. púðursykur
Mulningur
75 g valhnetur
150 g brauðrasp
75 g smjör
75 g púðursykur
Möndlur,
sneiddar
Hitið ofninn
í 190°C.
Blandið
saman
eplum, perum,
sítrónuberki,
rósmarín og
púðursykri. Bætið
sítrónusafa saman við.
Skiptið blöndunni í eld-
föst form.
Hakkið valhnetur í
matvinnsluvél, bætið
við raspi, smjöri og sykri.
Hrærið allt saman og
stráið yfir peru- og eplabit-
ana. Formið er sett í ofninn
og bakað í 25 mínútur.
Skreytið með möndluflög-
unum. Einnig er gott að setja
granateplakjarna yfir. Berið
fram með þeyttum rjóma eða
vanilluís. n
Æðislegur
eftirréttur sem
einfalt er að
gera.
6 kynningarblað A L LT 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGUR