Fréttablaðið - 02.11.2022, Side 38
Ég elska að fara í sund
og það að geta drukkið
hreint vatn úr kran-
anum eru forréttindi.
Svo er líka frábært að
geta farið í sturtu án
þess að heita vatnið
klárist.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Gildir ekki sem viðbótarafsláttur af áður niðursettum verðum,
Skovby né sérpöntunum. ** Ef verslað er fyrir 2.000 kr. eða meira.
Þú finnur Höllin mín á
husgagnahollin.is eða
með því að skanna QR kóðann
Jólakvöld
Reykjavík og Akureyri
Í kvöld
kl. 1900–2200
20%
afsláttur
AF ÖLLUM VÖRUM*
GILDIR MIÐVIKUDAG 2. NÓVEMBER
LÉTTAR
VEITINGAR
OG LJÚFIR
JÓLATÓNAR
Sendum frítt með Póstinum í póstbox og
pakkaport ef keyptar eru smávörur
fyrir 9.900 kr. eða meira.
100
FYRSTU SEM
VERSLA** FÁ
GLAÐNING FRÁ
OKKUR Í
REYKJAVÍK
50
FYRSTU SEM
VERSLA** FÁ
GLAÐNING FRÁ
OKKUR Á
AKUREYRI Kvikmyndaframleiðandinn
Heather Millard flutti til
Íslands frá Bretlandi fyrir
þrettán árum. Svo vel líkaði
henni við land og þjóð að hér
býr hún og starfar enn. Kvik-
mynd hennar Band verður
frumsýnd á föstudag.
birnadrofn@frettabladid.is
„Ég kom hingað fyrst árið 2009
vegna framleiðslu á heimildar-
myndinni Future of Hope, ég varð
ástfangin af landinu og hitti svo
mikið af yndislegu fólki að ég bara
varð að vera lengur,“ segir Heather
Millard kvikmyndaframleiðandi.
Heather framleiddi til að mynda
kvikmyndina Sumarljós og svo
kemur nóttin sem nú er í sýningu
í kvikmyndahúsum og Band sem
frumsýnd verður næsta föstudag.
Þá framleiðir hún, ásamt Sigurjóni
Sighvatssyni, einnig kvikmyndina
Kulda sem byggð er á metsölubók
Yrsu Sigurðardóttur.
Heather stundar MBA-nám í
þýskum háskóla og hún á þrjú börn
undir sex ára aldri og stjúpson sem
er fjórtán ára svo það er mikið að
gera hjá henni. „Lykillinn er sá að ég
á mjög skilningsríkan mann,“ segir
Heather brosandi.
„Við erum vön framleiðslu í öllum
myndum, börnum, húsum og kvik-
myndum,“ bætir hún við en Heather
og eiginmaður hennar Þórður Jóns-
son stofnuðu saman framleiðslu-
fyrirtækið Compass Films árið 2012.
Hún segir öll þau verkefni sem
hún vinnur að ólík. Hún velji sér
verkefni sem hún hefur trú á og
vinni með fólki sem hún treystir.
„Mér finnst gaman að vinna að
ólíkum verkefnum,“ segir Heather.
„Sumarljós og svo kemur nóttin
var mikið samvinnuverkefni og
þannig eru oft verkefnin sem ég
vinn að. Myndin var framleidd af
mér, Elfari Aðalsteinssyni, Lilju Ósk
Snorradóttur og Ólafi Darra Ólafs-
syni ásamt meðframleiðendum frá
Svíþjóð og Belgíu,“ útskýrir Heather.
„Band var svo algjör andstæða
við þetta,“ segir hún. „Það var lítil
framleiðsla með einn tíunda af
fjármagni Sumarljóss, við vorum
fimm í þessu, en það var frábært að
vinna við báðar myndirnar,“ bætir
Heather við.
Spurð að því hvað felist í starfi
k vikmyndaframleiðanda segir
Heather það felast í því að halda
utan um allt sem að kvikmyndinni
kemur. „Þetta er eins og vera með
verkefnið í fanginu. Reyna að halda
öllu saman og í jafnvægi, allt frá fjár-
málum til listrænnar sköpunar,“
segir hún.
„Að vernda leikstjórann og list-
ræna sköpun hans á sama tíma og
haldið er utan um fjármagnið. Mér
persónulega finnst gaman að taka
þátt í ferlinu alveg frá því að hand-
ritaskrif hefjast þar til myndin fer í
dreifingu,“ segir Heather.
Hún segir að mikil áhætta sé
fólgin í framleiðslu kvikmynda,
ábyrgðin sé mikil en hún elski
starfið. „Ég myndi ekki vilja breyta
neinu og elska þetta starf, en það
fylgja því auðvitað fórnir. Það getur
til dæmis reynst flókið að kúpla sig
algerlega út þegar maður vinnur í
sínu eigin fyrirtæki og að mörgum
verkefnum,“ segir hún.
„Kvikmyndabransinn á Íslandi
er lítill á heimsmælikvarða og hér
þekkja allir alla.“ Heather segir að
ekki hafi reynst erfitt að komast inn
í bransann. Fólk hafi tekið henni
opnum örmum. „Fólkið hérna er svo
vinalegt, auðvitað tók smá tíma að
kynnast fólki og læra á bransann en
mér hefur verið tekið ótrúlega vel.“
Spurð að því hvað hafi verið það
helsta sem heillaði hana við Ísland
segir Heather það tvískipt. „Fyrst
var það vatnið,“ segir hún. „Ég elska
að fara í sund og það að geta drukk-
ið hreint vatn úr krananum eru for-
réttindi. Svo er líka frábært að geta
farið í sturtu án þess að heita vatnið
klárist,“ segir Heather og hlær en
hún er frá Bretlandi.
„Hitt er það hversu rólegt sam-
félagið er, það minnir á Miðjarðar-
hafsmenningu. Það er aldrei neitt
stress að skipuleggja sig langt fram
í tímann heldur er bara tekinn einn
dagur í einu. Það fannst mér mjög
skrítið fyrst en núna er ég orðin
þannig sjálf og þarf að breyta um
hugsunarhátt þegar ég fer til Bret-
lands,“ segir Heather. n
Varð ástfangin af Íslandi
Stikla úr kvikmyndinni Band sem frumsýnd er um helgina. MYND/AÐSEND
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
18 Lífið 2. nóvember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ