Fréttablaðið - 04.11.2022, Qupperneq 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2022
Gjafir sem stuðla að útivist
og ánægju starfsfólks
Nú styttist í þann tíma þegar fyrirtæki fara að huga að jólaglaðning fyrir starfsfólkið.
Það getur oft flækst fyrir stjórnendum hvað skuli velja til að sýna starfsfólkinu þakklæti.
Icewear hefur aðstoðað fjölmörg fyrirtæki að finna hina fullkomnu starfsmannagjöf. 2
Bryndís R. Hákonardóttir, markaðsstjóri Icewear, í fallegri Icewear úlpu einangraðri með íslenskri ull. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
jme@frettabladid.is
Hljómsveitin Umbra, sem skipuð
er þeim Alexöndru Kjeld, Arngerði
Maríu Árnadóttur, Guðbjörgu
Hlín Guðmundsdóttur og Lilju
Dögg Gunnarsdóttur, kemur fram
á hádegistónleikum Iceland Air
wav es í Hallgrímskirkju á morgun,
laugardag 5. nóvember, klukkan
12.00. Miðaverð er 2.000 krónur.
Umbra hefur reglulega haldið
tónleika víðs vegar um heiminn
á ýmsum tónlistarhátíðum. Sem
dæmi má nefna í Svíþjóð, Kaup
mannahöfn og Helsinki. Haustið
2021 fór hópurinn í tónleikaferð til
Hollands. Hljómsveitin er svo á leið
til Strassborgar á mánudag að spila
hjá Evrópuráðinu.
Tilnefndar til verðlauna
Umbra hefur gefið út fimm plötur
hjá Dimmu. Fyrstu þrjár hlutu allar
tilnefningu til Íslensku tónlistar
verðlaunanna sem plata ársins í
flokki þjóðlagatónlistar. Úr myrkr
inu kom út 2018 og inniheldur forn
lög úr evrópskum handritum sem
tengjast dekkri hliðum mannlegrar
tilveru. Jólaplatan Sólhvörf kom
út sama ár og bar sigur úr býtum á
hátíðinni 2019. Þriðja platan Llibre
vermell kom út í nóvember 2019.
Á tónleikunum á laugardaginn
flytja þær efni af nýrri plötu þeirra,
Bjargrúnir sem kom út í maí síðast
liðnum, þar sem íslensk þjóðlög og
ballöður fá að njóta sín í einstakri
útsetningu Umbru. Hægt er að
nálgast miða á tix.is. n
Íslensk þjóðlög í
Umbrubúningi
Umbra kemur fram í Hallgrímskirkju
á laugardag. MYND/AÐSEND
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS