Fréttablaðið - 04.11.2022, Page 18

Fréttablaðið - 04.11.2022, Page 18
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654 Eftir dauða T’Challa konungs þurfa Ramonda drottning, Shuri, M’Baku, Okoye og Dora Milaje að berjast til að verja Wakanda konungdæmið fyrir ágangi heimsvelda. Hetjurnar verða að snúa bökum saman til að marka þjóð sinni nýja framtíð. Marvel Studios hóf undirbúning strax eftir frumsýningu Black Panther í febrúar 2018. Fljótlega tókust samningar við leikstjórann, Ryan Coogler, um að hann leik- stýrði einnig framhaldsmyndinni, Black Panther: Wakanda Forever, og um mitt ár 2019 staðfesti Marvel Studios að vinna væri hafin. Í ágúst 2020 lést Chadwick Boseman, sem lék T’Challa konung, af völdum ristilkrabba og setti það strik í reikninginn varðandi undir- búning framhaldsmyndarinnar. Marvel ákvað að fá ekki nýjan leikara í hlutverkið. Aðrir leikarar úr fyrri myndinni snúa hins vegar aftur og titill nýju myndarinnar var tilkynntur í maí 2021. Tökur hófust svo seint í júní það ár og stóðu yfir fram í nóvember. Tekið var upp í Atlanta og Bruns- wick í Georgíu-fylki og einnig í Boston í Massachusetts, en gera þurfti hlé á tökum vegna þess að Letitia Wright slasaði sig við tökur. Tökur hófust svo á ný í janúar á þessu ári og lauk þeim seint í mars í Púertó Ríkó. Upphaflega ætlaði Ryan Coogler að láta Black Panther: Wakanda Forever og fleiri framhaldsmyndir snúast að einhverju leyti um það hvernig T’Challa í meðförum Chad- wicks Bosman myndi vaxa sem konungur þar sem ríki hans var nýtt af nálinni í kvikmyndaheimi Marvel þrátt fyrir að í mynda- sögum Marvels hefði hann ríkt frá því að hann var barn að aldri. Allt breyttist þetta samt, eins og oft gerist með bestu áætlanir músa og manna. Chadwick Boseman lést úr ristilkrabba 28. ágúst 2020. Coogler leikstjóri sagðist ekki hafa vitað af veikindum Bosemans, síðasta árið hefði hann verið að ímynda sér og semja texta fyrir hann sem aðdáendur myndu nú aldrei njóta. Niðurstaðan í Black Panther: Wakanda Forever svíkur hins vegar engan Marvel-aðdáanda. n Sambíóin, Smárabíó Háskólabíó og Laugarásbíó Missir, sorg og hefnd Fróðleikur n Ryan Coogler hefur sagt að það erfiðasta sem hann hafi gert sé að gera þessa mynd án Chadwicks Boseman. n Derrick Boseman, bróðir Chadwicks, var á móti því að skrifa T’Challa, persónuna sem bróðir hans lék í Black Panther, út úr myndaflokknum eftir dauða Chadwicks. Hann telur að ráða hefði átt nýjan leikara og að bróðir hans hefði ekki viljað láta persónuna deyja með sér. n Tenoch Huerta lærði tungumál Maya fyrir hlutverk sitt sem Namur. Hann var ósyndur en lærði einnig að synda fyrir hlutverkið. n Þrítugasta myndin í kvikmyndaheimi Marvel. Frumsýnd 11. nóvember 2022 Aðalhlutverk: Tenoch Huerta, Angela Bas- sett, Danai Gurira, Letitia Wright og Lupita Nyong’o Handrit: Ryan Coogler og Joe Robert Cole Leikstjórn: Ryan Coogler Skrýtinn heimur snýst dálítið um hinn réttnefnda Finn Klængs, sem er úr Klængs-fjölskyldunni sem á sér glæsta sögu sem heimsþekktir landkönnuðir, þeir bestu í öllum heiminum. Finnur hefur bara alls engan áhuga á að feta í fótspor fjölskyldu sinnar. Í stað þess að lifa ævintýralegu, ófyrirsjáanlegu, háværu og hættu- legu lífi landkönnuðarins þráir hann það eitt að vera bóndi, rækta landið og búa við kyrrð og hæglæti í sínu lífi. Nú virðast þessi áform Finns vera í fullkomnu uppnámi vegna þess að á vegi hans og fjölskyldu hans verður heimur sem erfitt er að átta sig á og útskýra, heimur sem hreinlega býður náttúrulögmál- unum byrginn. Viðbrögð Finns annars vegar og annarra í fjölskyldu hans hins vegar við átökum og hættu eru mjög ólík en nú þurfa þau öll að láta fjölskyldudeilur lönd og leið ætli þau raunverulega að komast að því hvað þessi nýi og ókunni heimur hefur upp á að bjóða. Klængs-fjölskyldan gengur á vit hins óþekkta í fylgd með saman- safni ólíkindatóla, stríðinni klessu, þrífættum hundi og fjölda glor- hungraðra kvikinda. Leikstjórinn, Don Hall, segir innblásturinn að Skrítnum heimi koma frá sígildum ævintýrum. Myndin sé ævintýragrínmynd um þrjár kynslóðir Klængs-fjölskyld- unnar sem nái að sýna samstöðu þrátt fyrir skiptar skoðanir þegar þær þurfa í sameiningu að kanna undarlegan, stórfenglegan og gjarnan fjandsamlegan heim. Hall segir söguþráðinn í Skrítn- um heimi sækja margt í mynda- sögur frá því snemma á síðustu öld, sem hann hreifst mjög af sem barn. Í þeim fundu landkönnuðir gjarnan horfna heima eða fornar verur. „Þarna fékk ég innblásturinn að Skrítnum heimi,“ segir hann. Sumir segja að myndin minni á aðra Disney-mynd, Atlantis: The Lost Empire, sem einnig fjallar könnuði sem fara um svæði sem umheimurinn hefur að mestu látið ósnortin. Afbragðsgóð íslensk talsetning gerir Skrítinn heim að tilvalinni kvikmynd fyrir alla fjölskylduna. n Sambíóin, Smárabíó, Háskólabíó og Laugarásbíó Fyndið og þroskandi ævintýri Fróðleikur n Upphaflega átti myndin að heita Finnur Klængs n Nafn myndarinnar má rekja til tveggja myndasagna frá sjötta áratug síðustu aldar. Önnur þeirra var gefin út af Atlas Comics (forvera Marvel Comics sem er í eigu Disney) n Sextugasta og fjórða teiknimyndin frá Disney. Frumsýnd 25. nóvember 2022 Aðalhlutverk: Ævar Þór Benediktsson, Steinn Ármann Magnússon, Benedikt Gylfason, Sólveig Guðmundsdóttir og Þórunn Erna Clausen Handrit: Í íslenskri þýðingu Haralds G. Haralds, söngtextar þýddir af Birni Thorarensen. Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Talsett á íslensku 2 kynningarblað 4. nóvember 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.