Fréttablaðið - 04.11.2022, Síða 30
Nú eru margir á því að
Tútankamon hafi ekki
verið drepinn eins og áður
var talið. Hann þjáðist þó
vissulega á sinni stuttu
ævi, sem taldi nítján ár, en
hann fékk níu sinnum
malaríu.
Innilegar þakkir fyrir samúð
og hlýhug vegna andláts og
útfarar okkar ástkæra
Jóns Ingvars Jónssonar
leiðsögumanns,
Laugarnesvegi 114, Reykjavík.
Brigitte M. Jónsson
Jón Stefán Jónsson Eva Sólan
Bríet Helga og Yrsa Röfn
Olga Björg Jónsdóttir
Nanna Ingibjörg Jónsdóttir
Guðmundur Karl Jónsson
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Tryggvason
verkstjóri,
Rjúpufelli 29, Reykjavík,
lést á Sóltúni hjúkrunarheimili
miðvikudaginn 2. nóvember.
Útför verður auglýst síðar.
Margrét Pálsdóttir
Ásta Hulda Kristinsdóttir Ögmundur Kristinsson
Jónas Kristinsson Ásdís Eva Hannesdóttir
Páll Kristinsson Guðlaug Halldórsdóttir
Kristinn Kristinsson Guðný Ósk Ólafsdóttir
Rúnar Kristinsson Erna María Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku pabbi, tengdapabbi,
afi og langafi,
Jón Einar Sigurðsson
frá Marbæli í Skagafirði,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði
þriðjudaginn 18. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar
þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir
fær starfsfólk Sólvangs í Hafnarfirði fyrir góða umönnun
og ljúft viðmót.
Berglind Jónsdóttir
Brynja Jónsdóttir
Jóhannes Eiríksson Kolbrún Lind Steingrímsdóttir
afabörn og langafabörn
Þennan dag árið 2008 fór Barack
Hussein Obama með sigur af hólmi
í forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum. Þann 20. janúar 2009 var hann
svo settur í embætti sem 44. forseti
Bandaríkjanna.
Obama var fyrsti svarti maðurinn
sem gegndi embætti Bandaríkjafor-
seta og fimmti svarti maðurinn sem
setið hafði í öldungadeildinni. Obama
bauð sig fram sem fulltrúi Demókrata-
flokksins og tilkynnti það í febrúar
2007. Aðalkeppinautur hans var Hillary
Clinton, fyrrverandi forsetafrú, en hún
þurfti að játa sig sigraða þegar forskot
Obama jókst stöðugt. Sumarið 1992
hafði Obama tekið virkan þátt í kosn-
ingabaráttu Bills Clinton fyrir forseta-
kosningarnar það ár.
Eftir sigur hans lýstu Clinton-hjónin
stuðningi við Obama og hvöttu
stuðningsmenn sína til að gera slíkt
hið sama á landsfundi Demókrata
2008. Obama tilnefndi Joe Biden sem
varaforsetaefni og meðframbjóð-
anda sinn þann 23. ágúst 2008. Biden
er núverandi forseti.
Slagorð Obama var Yes We Can.
John McCain öldungadeildarþing-
maður bauð fram fyrir Repúblikana-
flokkinn. Obama sigraði í kosning-
unum með 52,93 prósentum af
greiddum atkvæðum á landsvísu.
Hann hlaut þá 365 af 538 atkvæðum
kjörmannaráðs. McCain var í öðru
sæti með 45,65 prósent atkvæða á
landsvísu og 173 atkvæði kjörmanna-
ráðs. n
Þetta gerðist: 4. nóvember árið 2008
Obama sigrar í forsetakosningum
Barack Obama og eiginkona hans Mich-
elle Obama. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Merkisatburðir
1520 Stokkhólmsvígin hefjast eftir að Kristján 2. hafði
verið krýndur konungur Svíþjóðar í Stokkhólmi.
1605 Upp kemst um Púðursamsærið þegar varðmenn
finna Guy Fawkes í kjallara Westminsterhallar.
1677 Brúðkaup Maríu Englandsprinsessu og Vilhjálms 3.
af Óraníu.
1897 Fjórir bátar farast á Ísafjarðardjúpi í ofsaveðri og
einn á Skjálfanda og með þeim tuttugu og tveir
menn.
1942 Áhöfn Brúarfoss bjargar 44 mönnum úr áhöfn
enska skipsins Daleby, sem sökkt var á milli Íslands
og Bandaríkjanna.
1950 Samningur um verndun mannréttinda og mann-
frelsis er undirritaður á ráðherrafundi Evrópu-
ráðsins.
1956 Rauði herinn gerir innrás í Ungverjaland til að berja
niður uppreisn.
1969 Tveir strætisvagnar skella saman á Skúlagötu í
Reykjavík og slasast sautján farþegar.
1979 Um 300 íranskir stúdentar hertaka bandaríska
sendiráðið í Teheran og taka 52 gísla.
1980 Ronald Reagan sigrar
Jimmy Carter í forseta-
kosningum í Bandaríkj-
unum.
1985 Okurmálið kemur upp
þegar Hermann Björgvins-
son hjá Verðbréfamark-
aðnum er handtekinn
vegna gruns um okurlána-
starfsemi.
1992 Breska þingið samþykkir
Maastricht-sáttmálann
með naumum meirihluta.
1995 Yitzhak Rabin forsætisráð-
herra Ísraels er skotinn til bana af öfgasinnuðum
Ísraela.
2001 Fellibylurinn Michelle gengur yfir Kúbu og veldur
miklu tjóni.
2016 Parísarsamkomulagið tekur gildi 30 dögum eftir að
55 lönd höfðu fullgilt samninginn.
Á þessum degi fyrir eitt hundrað
árum fannst gröf egypska faraós-
ins Tútankamons.
ragnarjon@frettabladid.is
Fjölmiðlakonan Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir hefur lengi haft áhuga á Egypta-
landi hinu forna. Húnt telur að þeir
starfshættir sem Howard Carter notaði
við fund grafar faraósins Tútankamons
fyrir sléttri öld hafi að vissu leyti verið
mjög frumstæðir.
„Howard Carter sem fann gröfina
hafði verið lengi að grafa í Egyptalandi
og á vissan hátt þá gerði hann suma
hluti mjög vel. Hann til dæmis skráði
allt og myndaði mjög nákvæmlega. En
það sama verður ekki sagt um smyrling-
inn sjálfan og umgengni við hann.“
Ragnheiður segir að tæknin hafi
verið takmörkuð og því verið erfitt að
eiga við líkið. „Tæknin var ekki komin á
þann stað sem við erum á núna. En svo
virðist vera að sumt af þeim meinum
sem talið var að hefðu orðið faraónum
að bana hafi verið tilkomin vegna þess
að líkinu hafi verið raskað harkalega.“
Hún tekur þó fram að það beri að
virða það framlag sem Carter lagði til
vísindanna.
„Hann var á vissan hátt frumkvöðull
í fyrri tíma fornleifafræði þar sem hann
skráði allt, ljósmyndaði og skipulagði,“
segir Ragnheiður.
„En það er ekki þar með sagt að
þessir menn hafi kunnað að fara með
smyrlinga. Þar að auki er talið að Tút-
ankamon hafi verið smurður í hasti og
kannski hafi þau efni sem notuð voru
til að varðveita líkama hans ekki verið
nógu góð.“
Með tímanum hafi svo tækninni
f leygt fram, þar á meðal í erfðavís-
indum, svo að í dag séu menn ekki á
eitt sáttir um það hvað dró hinn unga
konung til dauða.
„Nú eru margir á því að Tútanka-
mon hafi ekki verið drepinn eins og
áður var talið. Hann þjáðist þó vissu-
lega á sinni stuttu ævi, sem taldi nítján
ár, en hann fékk níu sinnum malaríu.
Sú síðasta reyndist honum erfiðust því
þá var hann með opið beinbrot. En á
þessum tíma var auðvitað ekki til neitt
pensilín.“
Hún tekur þó fram að auðvitað séu
fræðimenn ekki sammála um þetta.
„Menn vilja hafa þetta dramatískt.
Til dæmis hefur því verið haldið fram
að keyrt hafi verið á hann af stríðsvagni
annars konungs. Það eru beinbrot á
rifjum en það er ekki gott að sjá hvort
það sé gert af Carter og hans mönnum
eða hvort þetta hafi verið morð. Við
verðum bara að geta í eyðurnar og velja
hvað okkur þykir réttast.“ n
Margar óleystar gátur
í gröf Tútankamons
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR