Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.11.1931, Blaðsíða 12

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.11.1931, Blaðsíða 12
12 er talin góð, betri ura fló8 en um fjöru og bezl um hálffallinn sjó. Grjót er í lendingnmii og er hún talin ófær í stórbrimi af vestri. e. ATLASTAÐIR í FLJÓTAVÍK Lendingin er í Atlastaðhlið innan viS Kögur. í lendingunni er grjótkambur frá flæðarmáli upp að grasi. Hún er góð um flóð, slæm um fjöru, en ófær sem neyðarlending, f. REKAVÍK VII) HORN Lendingin er beint niður undan bænum. í lendingunni er slórgert malargrjót, en hún getur orðið nokkuð sandborin eftir stórbrim. Lendingin er miður góð, ef nokkur er i sjó, sérstak- lega í norðanátt. Jafngott er að lenda um flóð og um fjöru. g. HORN í HORNVÍK Lendingin er beint niður undan Hornbænum. Grjót og klapp- ír. llm fjöru eru grynningar á leiðinni, yfirlcitt er lendingin miður góð. h. HÖFN í HORNVÍK Lendingin er norðanhalt við hvítt pakkhús á sjávarbakkan- um. Stefna VNV. í flæðarmáli er sandur, en malargrjót fyrir of- an. Á leiðinni eru klappir og sker, sem flýtur yfir um flóð, en eru þurr um fjöru. Lendingin er talin heldur góð, betri um flóð. Sem neyðarlending er notuð önnur lending nokkru innar, undir kletti sem kallaður er Hamar. Þar er sléttur sandur og eng- in sker á leiðinni. 92. BORGARFJARÖARHREFJPUR a. NJARÐVlK Lendingin er í suðurhorni Xjarðvíknr, beint út af Króks- bakkabænum, sunnan Njarðvíkurár. Lendingin liggur i vestur. Leiðarmerki eru engin. Lendingiii er talin miður góð, kvikan venjulega minnst um fjöru. Sandfjara. b. GEITAVÍK Lendingin er suður af Geilaviknrbænum, syðst í sandfjör- unni fyrir víkurbotninum. Liggur í suðvestur. Sandfjara. en grunnt um fjöru. Leiðarmerki eru engin. Blindsker eru í leið- inni, og inn um mjótt sund að fara, sem ekki er fært ókunnugum. Lendingin er talin miður góð, en betri um hálffallinn sjó.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.