Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Blaðsíða 13
11
RANNSÓKN A MÓTEFNUM GEGN INFLÖENSUVEIRUM 1976
Tilhögun
Rannsóknin, sem lýst verður hér á eftir, var gerð á tímabilinu
frá júníbyrjun til desemberloka 1976. Var aðaltilgangur hennar
að athuga ónaanisástand gegn svínainflúensu. Auk þess var ákveð-
ið að athuga jafnframt ónæmisástand fyrir nýjasta afbrigði A-
stofnsins, svonefndum Viktoriustofni og nýjasta B-stofninum,
B/Hong-Kong/5/72. Rannsóknin var framkvamnd undir umsjá Margrétar
Guðnadóttur prófessors.
Reynt var að safna blóðsýnum úr sem flestum gamalmennum. Einnig
var safnað sýnum úr yngra fólki til samanburðar. Hópnum var skipt
í tvennt eftir aldri. 1 eldri hluta hópsins var fólk fætt fyrir
faraldurinn 1918 eða í honum, en í yngri hlutanum fólk fætt eftir
1918. Reynt var að hafa hlutfallið milli eldri og yngri sem
næst 3:2.
Þegar kannaðar voru niðurstöður mótefnamælinganna gegn svínainflú-
ensu var fólki fæddu fyrir 1930 einnig skipt eftir búsetu. Nú
orðið er fremur sjaldgæft að fólk búi á sama stað alla sína tíð .
Þurfti því að ákveða til hvaða svæðis það fólk skyldi teljast,
sem flust hafði búferlum. Reglurnar, sem farið var eftir við
ákvörðun búsetusvæða voru þessar: a) Fólk, fætt 1918 eða fyrr,
var talið búsett þar, sem það bjó þegar spánska veikin gekk í
landinu. b) Fólk, fætt 1919 - 1930, var talið til þess svæðis,
þar sem það hafði búið lengst á því tímabili. c) Yngra fólk var
ekki flokkað eftir búsetu. Það var flest úr Reykjavík. Ef yngra
fólkið hefði verið talið með, þegar flokkað var eftir búsetu,
hefði meðalgildi svínainflúensumótefna í Reykjavík orðið óeðlilega
lágt miðað við hin landsvæðin.
Tafla 2 (Table 2)
Sýnafjöldi frá hverjum stað, þar sem athuguð
voru inflúensumótefni 1976
Staður (Location, see Fig 2) Fjöldi sýna (Number of specimens)
Reykjavík 634
Patreksfj örður 50
ísafjörður 81
Strandir 38
Akureyri 210
Húsavík 57
Egilsstaðir 54
Seyðisfjörður 47
Neskaupstaður 36
Hveragerði 132
Þorlákshöfn 20
Hafnarfjörður 46
Samtals (Total)
1405