Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1982, Side 18
16
NIÐURSTÖÐUR
Mótefni voru mæld í 1405 blóðsýnum samtals. Á 4. mynd sést
aldursdreifing þess fólks, sem sýnin gaf. Myndin sýnir að
langflestir í þessu úrtaki fæddust á árabilinu 1888 - 1908.
Sá yngsti var 15 ára, en sá elsti 102 ára. Flestir voru á
aldrinum 70 - 90 ára, sbr. mynd 4.
Ónæmi gegn svínaveiru (A/New Jersey/8/76 (HswlNl))
Dreifing Hl-títra
Á 5. mynd sést dreifing Hl-gilda á bilinu 1/10 - 1/1280 og má
lesa úr myndinni fjölda þeirra einstaklinga, sem höfðu hvert
Hl-gildi, sem athugað var. Myndin sýnir, að flestir eru með
Hl-gildi á bilinu 1/20 - 1/80, en fæstir með hærri eða jafnt og
1/320.
ónæmi eftir aldri
Hl-títra miðað við aldur er að finna í 3. töflu. Á 6. mynd hafa
verið reiknuð og teiknuð meðalgildi Hl-títranna eftir aldurs-
flokkum. Myndin sýnir, að ónæmi minnka hratt á fyrstu árunum
eftir 1918. Þetta má sjá enn skýrara á 7. mynd, sem sýnir að
ónæmið hverfur ekki alveg á árunum 1918 - 1920, heldur minnkar
jafnt og þétt á árunum 1919 - 1930. Eftir 1930 eru mjög fáir með
mótefni gegn svínastofninum.
Mest er ónæmið í fólki fæddu á árunum 1898 - 1918 og heldur minna
í eldra fólki. Yngra fólkið hefur mun minni eða engin mótefni.
Hverjir hafa verndandi mótefni?
Á 8. mynd sést hversu stór hluti hvers aldurshóps, sem athugaður
var hefur Hl-gildi í þynningu 1/40 eða meiri. Þegar rætt verður
um verndandi mótefni hér á eftir eru neðri mörk mótefnamagnsins
dregin við Hl-gildi 1/40.