Skyggnir - 01.01.1980, Page 9

Skyggnir - 01.01.1980, Page 9
Marx og Engels aðhylltust kenningar Hegels, en felldu sig ekki við hughyggjuna, og hnigu því brátt að efnishyggju Feuer- bachs. Efnishyggj an var öflugasta vopn borgaranna gegn trúar- kreddum miðalda. í henni fólst skýlaus neitun alls yfirnátt- úrulegs, sem var lifibrauð kreddukenninga kirkjunnar. Þó af- 'neituðu þeir félagar ekki öllum kenningum Hegels. Þeir hirtu aðeins úr hinn raunnýta kjarna, þ.e. hið díalektíska þróunar- hugtak, en skildu eftir hismi hughyggjunnar. Þeir fullkomnuðu díalektíkina og færðu í form nútímavísinda. Þeir höfðu eigin- lega endaskipti á henni, efnið var hið upprunalega, andinn hið afleidda. Díalektíkin hafði nú með efnishyggjunni, fengið traustan grundvöll og varanlegt gildi. Fyrir daga Marx hafði efnishyggjan verið vélræn, hún hafði litið á hlutina einangraða og í kyrrstöðu, en ekki í þróun þeirra og samhengi. Vélræna efnishyggjan var sneidd öllum þjóðfélagslegum, og sögulegum skilningi. Hún hafði litið á manninn sem óvirka veru, sem væri hlutlaus gagnvart umhverfinu, án þess að skilja að það er starfið, hin virka afstaða mannsins gegnt náttúrunni, sem er grundvöllurinn að lífi hans og kenning- um. Þarna lágu annmarkar válrænu efnishyggjunnar. Og þeim var öllum kollvarpað með hinu díalektíska þróunarhugtaki Marx. Með díalektíkinni fékk efnishyggjan þróunarhugtak sitt, og þarmeð náði hún ekki lengur yfir hina ytri náttúru, heldur einnig yfir þróun mannlegrar hupsunar, og þjóðfélagsins. Eins og áður var getið er begar talað er um heimsspeki hér aðallepa átt viðbekkingarfræðina, b.e. manninn og afstöðu hans til umhverfisins. Það sem greinir hér á milli hinna vmsu heimsspekistefna, er hvort sé upprunalepra efnið eða andinn, hvort hinn vtri heimur sé raunverulegur, eða aðeins skvnianir, 09 ef hann er raunverulepur, hvort hann sé bekkjanlegur. í raun og veru er aðeins um tvær meginstefnur í heimsspekinni, er leitast við að svaara þessu, þ.e. hughyggjan og efnishyggjan. Eikenni hughyggjunnar eru, að hún telur andann hið upprdna- lega, efnið er ýmist blekking, skynjanir eða form sem andinn hefur skapað. Hughyggjan skiptist einkum í tvennt, sjálfs- veruhughyggju og hlutveruhughyggju. Sjálfsveruhughyggjumenn segja, að ekkert efni sé til, hin ytri veröld sé aðeins skynjanir, árangur af starfi"sjálfsinsV Hlutveruhughyggju- menn viðurkenna hins vegar tilvist efnisins, en aðeins sem dauð form, sem andinn birtist í. Efnishyggjan telur hinsvegar að efnið sé hið upprunalega, en hugsunin kvikni með þróun þess °g só þvi háð. Hinn ytri heimur er raunveruleiki sem vér getum kynnstgegnum skynjanir vorar og hugsun. Innan efnishyggjunnar

x

Skyggnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skyggnir
https://timarit.is/publication/1736

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.