Skyggnir


Skyggnir - 01.01.1980, Qupperneq 11

Skyggnir - 01.01.1980, Qupperneq 11
stæðu hliðum móthverfunnar, athuga sérkenni þeirra á ýmsum þró- unarstigum móthverfunnar. "í þróunarferli fjölþætts fyrirbæris, koma fyrir margar móthverfur. I þeim hópi hlýtur jafnan að vera ein höfuðmóthverfa, sem með tilvist sinni og þróun, ákveð- ur og orkar á tilveru og framvindu hinna". Sú móthverfa, sem mestu ræður um tilvist, þróun, eðli og einkenni einhvers fyrir- bæris, er höfuðmóthverfa þess. Áhrif annara móthverfna, eru léttvæg fundin, miðað við áhrif höfuðmóthverfunnar, enda eru þær háðað ástandi og þróun hennar. því er nauðsynlegt að geta greint milli höfuðmóthverfunnar og hinna sem minna láta til sín taka, þegar verið er að athuga ástand og þróun einhvers fyrir- bæris. Eins og áður er sagt geyma allir hlutir innri andstæður. Allir hlutir og öll ferli eru í stöðugri framþróun vegna þeirrar baráttu, sem á sér stað milli hinna andstæðu hliða. Hið altæka í baráttu og einingu andstæðnanna felst í því að: a) Allir hlutir og ferli hafa í sér fólgnar móthverfur, sem samanstanda af tveimur andstæðum hliðum b) Þessar andstæður geta ekki hver án annarar verið, eiga sér enga sjálfstæða tilvist án hinnar, og mynda því einingu, í þeirri merkingu, að þær eru tengdar og háðar hvör annari. c) Hinar andstæðu hliðar móthverfunnar, eiga í stöðugri bar- áttu, og útiloka hver aðra, milli þeirra eru stöðugar víxl- verkanir, þar sem hver um sig verkar á hina. d) Jafnvægið á milli andstæðnanna, er afstætt, tímabundið og breytilegt. Án þess ætti engin þróun sér stað. Hægt er að greina á milli tvennskonar andstæðna, ytri og innri andstæðna. Þær andstæður er hluturinn hefur í sér fólg- nar eru hinar innri andstæður, en ytri andstæður eru hin and- stæðufullu tengsl hans við umhverf ið ■ Þó _að . báðar „k.omi . við.. sögu, þegar um þróun hlutar eða fyrirbæris er að ræða, eru það innri andstæðurnar, sem ráða þar mestu um. Þróun hluta og ferla, er þess vegna sjálfsþróun, ■ sem er sprottin af baráttu og einingu innri andstæðna. Að vísu hafa ytri andstæðurnar einnig nokkur áhrif, en afleiðingar þeirra fara eftir gerð hinna innri. Tvenns skonar breytingar eiga sér stað, samkvæmt hinni díalektísku kenningu um þróun hluta og ferla. Þar er um að ræða, í fyrsta lagi, smávægilegar breytingar megingar, er leiða ekki til verulegra eigindabreytinga, og í öðru lagi, að þegar megindabreytingarnar hafa náð ákveðnu marki breytist fyrri einihg andstæðnanna, ei'ning þeirra raskast, og eiginda- breytingar eiga sér stað. Einnig leiðir eigindabreyting að sér megindabreytingu.

x

Skyggnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skyggnir
https://timarit.is/publication/1736

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.