Barnadagsblaðið - 18.04.1946, Page 9

Barnadagsblaðið - 18.04.1946, Page 9
BARNADAGSBLAÐIÐ 7 ÞóRUNN MAGNÚSDÓTTIR, skáldkona: Mömmurahb Mér eru í minni hinir hlýju, heiðu vordagar fyrir nær- fellt tíu árum, þegar ég gekk á milli barnaheimila Osló- borgar og fékk að sjá, hvernig búið væri í haginn fyrir yngstu borgarana, en það þótti á skorta þar í borg, sem víðar að sómasamlega væri séð fyrir þörfum þeirra. Ég hafði fengið leyfi til að sjá nokkur tilgreind barnaheimili og for- stöðukonurnar verið beðnar að sýna mér þau og fræða mig um það, er ég vildi vita viðvíkjandi starfi þeirra. Verði ég aftur stödd á þessum slóðum, er mér hugleikið að sjá þessi barnaheimili á ný og bæta öðrum við, því að nú hef ég betri skilyrði til að sjá og skilja, hvað barninu er gert til verndar, en ég hafði þá. Dagheimilum þessum og leikskólum var að ýmsu áfátt, það var mér ljóst bæði af sjón og samtali við forstöðukon- urnar. Þær fundu sárt til þess, hve þröng og óhentug húsa- kynni hömluðu starfi þeirra. En þær voru áhugasamar og skilningsríkar, og starf þeirra varð áreiðanlega mörgu barni til bjargar, sem án þess athvarfs, er barnaheimilið veitti því, hefði hrakist um rykug stræti og skúmaskot þéttbyggðra borgarhverfa, berskjaldað fyrir mannspillandi áhrifum úti- gangsins. 10 mánaða drengur, frískur og fjörugur eftir 30 ljósböð. Að koma frá bai’naheimilunum í hinum skuggalegu boi’g- arhverfum til smábarnaheimilisins á Ákebergveien 28 var því líkt sem að koma úr kvasandi rykmollu sólsteiktra stræta inn í í’egnferskan, angandi urtagarð. Svo var það líka. Hann var fallegur gai’ðurinn, sem litlu böx-nin léku sér í undir eftirliti ljósklæddi'a fóstra. Húsið var svo bjart, að ljóma stafaði af. Um hvíta veggi þess iðuðu léttir skuggar af limi fagurgrænna ti’jánna. Þetta var í í'auninni höll og hafði upphaflega vei’ið auðmannabústaður, enda kenndi íbui'ðar í stílnum, gnæfandi turn, möi'g útskot og svalii', víða gegnt út á svalirnar og út í garðinn. Á þeim svölunum, sem mestar voru um sig og tengdar garðinum með breiðum þx-epum, voru margir hvítir setbekkir. Þaðan var auðvelt fyi'ir fóstrui'nar að fylgjast með leik bai'nanna bæði úti í garðinum og inni í húsinu. Þetta heimili var ætlað veikluðum börnum, einnig börn- um berklaveikra foreldra, sem ætla mátti, að dulin veiklun byggi í. Forstöðukonan, systir Kaia Scultz, tók á móti mér í and- dyri hússins. Hún lét mig klæðast síðum, hvítum sloppi, sem huldi föt mín alveg, síðan gengum við í gegnum eitt bai’nahei’bergið eftir annað, rúmgóð, björt og vistleg, hagan- lega útbúin hei'bergi. Fallega umbúin rúm, hlý náttföt, sam- festingar heilir að neðan, svo að kuldaboli næði ekki að gusta inn á litlu kroppana. Við héldum hringferðinni áfram um leikstofur og boi'ðstofur. Allt var það með sama brag, hreinlegt til hins ýtrasta, stílað við þarfir barnsins, störf þess og fróðleikslöngun, vaknandi, leitandi vit þess. Meðan systir Kaia Schulz sagði mér frá litlu börnunum og daglegu lífi þeirra gengum við hægt, með töfum, gegnum húsið og að lokum út í garðinn, þar sem börnin hvíldust frá leik sín- um. Svo var hið í'eglubundna líf orðið þeim samgróið, að þau lögðu góðfúslega frá sér skóflur sínar og spaða, leir og knetti og hvað annað, sem þau höfðu verið að leika sér að, og lögðust prúð til hvíldar, þegar fósti'an sagði þeim til. Hún hjálpaði og hagi'æddi þeim minnstu. Vissi ég það áður, eða varð mér það fyrst ljóst, þegar ég horfði á þessi börn, að ekkert barn, sem líður vel, er Ijótt? Þau voru að vísu ólík, sum ljós, önnur dökk á hár og yfii'- bragð, andlitsfall og vöxtur með ýmsu móti. En sameigin- legt fyrir þau öll var hið sæla öryggi, sem ljómaði af svip þeirra. Daglegt líf þeirra var svo traust og óbrotið og gagn- auðugt af gleði og fullnægingu. Hárbi'agð þeiri'a, andlits- blær og augnaljómi bar þess ótvíræðan vott, hve vel hirt og nærð þau voru. Þegar ég kvaddi, var mér sú ósk ríkust í huga, að við eignuðumst hér heima sem allra, allra fyrst þvílíka staði fyrir börn, bæði sem vistarheimili og til að dvelja á nokkurn hluta dagsins, og það getum við, óg það mun takast, ef sleitu- laust er að því unnið. Það grípur mig stundum líkt og hálf óljós sektartilfinn- ing, þegar ég sé lítið barn standa aðgerðarlaust í skuggan- um við lágan, rykugan kjallaraglugga, sjúga puttann, sem er orðinn óhreinn af því að krafsa í göturæsinu, og hoi'fa stórum augum á umferðina, langa ef til vill í leikinn með hinum djarfari börnum, en voga sér ekki frá glugganum, þar sem það veit af mömmu fyrir innan. Ég vona að sú sekt brenni sárar, að hún læsi sig um eins og logi yfir akur, svo að við megum öll skilja og finna tii þeirra ábyrgðar, sem á okkur hvílir gagnvart börnunum. Það getur ekki vei'ið, og á ekki að vei'a einkamál foreldranna, hvernig böi'nunum vegnar. Foreldrunum er það ofurefli að annast börn sín að öllu leyti einir, eins og opinberlega er viðui'kennt, meðal ann- ai's með því að létta fræðsluskyldunni að mestu leyti af heimilunum. Bærinn byggir skóla, en jafnframt á hann að byggja barna- heimili og leikvelli, um þörf þess er ekki lengur deilt. Litlu, kúldurslegu böi'nin, sem nú leika sér í göturæsunum, skjót- ast á milli bíla, eða standa aðgjörðalaus í skugganum og sjúga á sér óhreina puttana, eiga að hverfa af þeim slóðum. Við eigum að sjá þau börn við þroskandi leiki í fallegu um- hverfi. Til þess að svo megi verða er öllum skylt að láta nokkuð af mörkum. Bæx'inn á að byggja barnaheimilin, en ekki að kaupa göm- ui, óhentug hús, sem þrátt fyi'ir ærinn viðgerða- og breyt- ingakostnað verða aldrei fullkomin. Og þegar barnaheimilin verða byggð, verður væntanlega séð svo um, að ekki skorti nauðsynlegt landrými, svo að böi'nin séu að minnsta kosti (Framh. á 11. síðu).

x

Barnadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.