Barnadagsblaðið - 18.04.1946, Page 14

Barnadagsblaðið - 18.04.1946, Page 14
12 BARNADAGSBLAÐIÐ ÁSLAUG SIGURÐARDÓTTIR, forstöðukona: DAGUR Á DAGHEIMILI Við köllum dagheimili skóla, af því að það er skóli í orðsins fyllstu merkingu, þótt börnin læri ekki að lesa, skrifa eða reikna. Við þurfum að læra fleira til að ná alhliða þroska og geta kallast vel uppalin og menntuð. Bóknámið er auðvitað nauðsynlegt og sjálfsagt, en miklu máli skiptir heilbrigt líf- erni, félagslyndi, sjálfsvirðing, sjálfstraust og margt fleira. Slík menntun hvers einstaklings hlýtur að byrja áður en hann er 5 eða 4ra ára, jafnvel áður en hann verður 3ja ára. Það er og reynsla kennara í barnaskólum, að þau börn, sem dvalið hafa á dagheimilum eða leikskólum, séu betur undirbúin til náms, og hvað hóp og félagslyndi snertir. Margir spyrja, hver sé munur á dagheimili og leikskóla. Eini munurinn er sá, að leikskólinn stendur yfir færri stundir á degi. hverjum, eða frá kl. 1—5 en dagheimilið frá kl. 9—6. Hvað kennslu viðkemur, eða öðru sem fram fer, er allt hið sama í báðum deildum. SMÁIR „BDKMENNTAMENN” í SUÐURBDRG. Þegar böi’nin koma á dagheimilið um 9 leytið á morgnana, borða þau morgunverð — hafragraut og mjólk, lýsi og slátur, meðan það endist. Að því loknu er þeim skipt niður í hópa, eftir aldri og þroska. Sum leika sér inni, hnoða leir, lita, mála, klippa út o. s. frv. Önnur fara út á leikvöll og leika sér þar eins og þeim bezt þykir. Frjálsir og óþvingaðir leikir eru mjög mikils virði fyrir börnin, því þá fær ímyndunar- afl þeirra útrás á eðlilegan hátt. Stúlkur hafa mest gaman af að vera í ,,mömmuleik“, en diængir aftur á móti kjósa sér bíla- og flugvélaleiki. Samt leika bæði stúlkur og drengir sér mjög oft saman. Drengjum þykir gaman að vera„pabbar“ eða „afar“ í mömmuleiknum, og stúlkurnar fá oft að vera farþegar í bílum drengjanna. Þegar klukkan fer að ganga tólf, leggja börnin frá sér leikföng sín, snyrta sig til og koma saman til að syngja eða hlusta á skemmtilega sögu við þeirra hæfi. Hádegismaturinn er ávallt kjarngóður og vel framreiddur, svo börnin geti sem bezt hjálpað sér sjálf. Elztu börnin hjálpa til að ganga um beina, og eru þau heldur en ekki hreykin af að fá slíkt embætti. Eftir hádegi ættu öll börn, yngri en 5 ára, að leggja sig dálitla stund til hvíldar. Slík hvíld er mjög nauðsynleg hverju barni. En vegna þess hve þröngt er á dagheimilunum hér í bæ, eru það aðeins yngstu börnin, sem fá að njóta þess- „VER-ÐI YKKUR AÐ GDÐU" arar hvíldar. Hvíldartíminn stendur yfir fram til kl. að verða 3. — Þau börn, sem ekki leggja sig, leika úti, ef veður leyfir, í hringleikjum eða öðrum ákveðnum leikjum, undir stjórn fóstrunnar. Um miðjan dag fá börnin mjólk eða kakó og smurt brauð. Síðari hluti dagsins líður svo svipað og fyrri hlutinn, við leiki og ýmisleg störf úti og inni. Þegar líður að heimfarartíma, eru öll börnin orðin þreytt eftir erfiði og þunga dagsins og hlakka til að koma heim til pabba og mömmu. Þau hafa líka heilmikið að segja þeim í fréttum, því margt hefur skeð, síðan þau fóru að heiman um morguninn. Hátíðahöld Sumargjafar 1. sumardag verða mjög fjölbreytt að vanda, svo sem sjá má á skemmtiskránni, bls. 8—9. Skrúðgöngur barna undir lúðraslætti, verða frá Austurbæjar- og Miðbæj- arskólanum. Stjórn Sumargjafar væntir þess, að börnin fjöl- menni í skrúðgöngurnar á tilsettum tíma, með íslenzkan fána í hönd. Staðnæmst verður við Austurvöll, og þar flytur Bjarni Benediktsson borgarstj óri ræðu af svölum Alþingis- hússins. Þegar þessu er lokið, byrja inniskemmtanirnar í flestum samkomuhúsum borgarinnar. Leggja þar margar þekktar „stjörnur“ og óþekktar hönd að verki. Og mun, ef að vanda lætur vissara að tryggja sér aðgöngumiða í tíma. BÖRN í VESTURBGRG HJÁ „MÖMMU”

x

Barnadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.