Barnadagsblaðið - 24.04.1947, Qupperneq 5

Barnadagsblaðið - 24.04.1947, Qupperneq 5
BARNADAGSBLAÐIÐ 3 Gunnar 3JoroJíLsen, horiparítjóri: 3>r. fíroJJi jtó anneóion: Uppeldisstarf heimilanna og Sumargjafar þarf að haldast í hendur / Æskilegt er. að móðir og faðir annist sjálf fyrsta upp- eldi barna sinna. Ástríki góðra foreldra er bezt fallið til að móta í farsælli mynd viðkvæma lund barnsins. Ekkert fólk fjarskylt er betur til þess hæft, ef foreldrar eru verki sínu vaxnir. Um leið er það einn þáttur lífshamingjunnar, þegar móðir og faðir annast hörn á ungum aldri. En oft þarf samt að fela börnin forsjá annara. Til þess geta legið margar ástæður. Húslijálp kann að skorta, til að sinna öllum heimilisstörfimi ásamt umsjá barnanna; annað- hvort foreldra eða báðir eru fallnir frá; móðirin kann að Wggja á sæng og fær ekki næga aðstoð; móðirin kann að vinna úti mikinh hluta dags; sjúkdóma ber að höndum á heimilinu, og margar fleiri orsakir geta þar komið til. Þá verður að leita til barnahæla, dvalarheimila, dag- heimila. leikskóla. Hér á landi hefir Barnavinafélagið „Sumargjöf“ haft forgöngu mn þau mál. í þau 23 ár, sem félagið hefir starfað, hefir það leyst af höndimi mikilsverð störf fyrir uppeldismál þjóðarinnar. Það hefir reist og rekið barnaheirnili og leikskóla með hinni mestu prýði. Almenningur hefir verið fjárhagslegur máttarstólpi félag- sins. Alþingi veitt til þess nokkurn styrk, og bæjarstjórn Reykjavíkur hefir um margra ára skeið styrkt þessa starf- seini, t. d- veitir hún nú í ár 300 þús. krónur í því skyni, auk 30 þús. króna til náinskeiða fyrir starfsstúlkur við þessar stofnanir. Þessi harnahæli ...Sumárgjafar'4 eru skólar, einhverjir áhrifamestu skólar landsins, næst heimilunuin sjálfum. ..Sumargjöf” er til orðin fyrir framtak og samtÖk áhuga- samra og víðsýnna borgara. Fyrir starf sitt verðskuldar félagið vissulega þakklæti og stuðning hins opinbera. Það er von mín. að .,Sumargjöf“ megi enn færa út kvíarnar og auka sína lieillaríku starfsemi. Og ég er sann- færður um. að ba'jarstjórn Revkjavíkur hefir fullan hug á að leggja fram sinn skerf til starfsins. En þótt við viðurkennum liina miklu nauðsyn á starf- seini „Smnargjalar”. þá megum við aldrei gleyma því, að heimilin sjálf og foreldrarnir hafa hinum mikilvægustu uppeldisskyldum að gegna. Við eigmn ekki að stefna að því. að taká uppeldi barnanna í senr ríkustmn nræli úr höndiun foreldranna, heldur verður þetta hvorttveggja að haldast í hendur svo að ve! megi fara. unncir 5/, oroclclien Fáein orð um ótta Óttasamur maður verður hvorki hamingjusamur, sann- dyggðugur né dugandi, Fyrstu ár sérhvers einstaklings ráða mestu um það, hvort hann verður óttasamur eða' ekki. Ekkert mannsbarn er þeim eðliskostum búið, að ekki megi gera það óttasamt. Enginn hlutur og ekkert fyrirbæri er svo meinlaust, að ekki megi breyta því í ógnvald. Hiklaust má fullyrða, að flestir fslendingar þjást eða hafa þjáðst um lengri eða skemmri tíma — sumir alla ævi — af áunnum ótta. Stundum hefur slysni ráðið að ótti þessi skap- aðist, en langoftast er hann gjöf til bamanna frá vöxnum forsjármönnum eða félögum þess. Það er örfátt, sem barnið óttast á eðlislæga vísu, og telja sumir fræðimenn, að það óttist aðeins jafnvægismissi og hávaða, allur annar ótti þess sé áunninn. Þótt hér kunni að vera fullfátt talið, eru öll börn hrædd við þetta tvennt, og leiðir af því, að nauðsynlegt er að forða ungum börnum frá því að detta eða verða fyrir snöggum hávaða. Fyrra atriðis- ins er jafnan gætt eftir föngum, en fáir gæta hins síðara sem skyldi. M. a. má minna á óhæfilegan hávaða í viðtækj- unum, harkalega hurðaskelli, hávaðasamt rifrildi og annan hávaða innanhúss. í öðru lagi skarkala frá vélknúnum far- artækjum, t. d. vörubifreiðum ög flugvélum. Það er ekki æskilegt, að börn sofi í herbergjum, þar sem gluggar vita að götum, sem miklir þungaflutnin^ar fara um. Þá má minna á, að fjölmörg börn hafa sótt óþarfan ótta til hávaðasamra kvikmynda og skemmtana, þótt þær væru ætlaðar börnum. Ung börn eiga ekkert erindi á þysmiklar skemmtanir. Mörgum reynist torvelt að varðveita sæmilegan aga með börnum sínum. Farsæll agi er nauðsynlegur, en það er að flestu neikvætt að skapa aga með lygihugmyndum eins og Grýlu, bola, ljóta karlinum og öðru slíku. Sömuleiðis getur verið mjög varhugavert að loka börn inni. Fyrir þær sakir hafa margir alið með sér ævilangan ótta við hvers konar þrengsli. Þá er einnig fráleitt að hræða börn á læknunum og lögreglunni, en það gera ótrúlega margir. Mörgum hættir einnig við að hræða börn sín frá því að snerta á eggjárnum og öðru, er barnið getur meitt sig á, með því að segja því að fari að blæða. Þetta hefur oft þær af- leiðingar, að ménn eru hræddir við smáskeinur alla ævi og falla jafnvel í ómegin, ef þeir sjá blóð. Hræðsla er ákaflega smitandi. Landlægur ótti við lygi- hugmyndir er að öllum jafnaði fram kominn vegna smitunar, þ. e. a. s. vegna þess að barnið ræður ótta fullorðins ein- staklings af fasi hans og ósjálfráðri tjáningu óttans. Ótti um aðra er t. d. mjög tíður. Að vísu er oft ástæða til að óttast um aðra, en sumir eru svo hrjáðir í þessu efni, að þeir eru aldrei óhræddir, ef einhver fer út fyrir dyr. Börn, sem alast upp með slíku fólki, smitast af þessum ótta. Með hliðsjón af þessu og hliðstæðum staðreyndum, er fullorðnu fólki ráðlegast að fela, svo sem framast má, áunninn ótta sinn fyrir börnum. \ FRAMHALO A HLS. 11

x

Barnadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagsblaðið
https://timarit.is/publication/1748

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.