Sumardagurinn fyrsti - 19.04.1956, Qupperneq 14

Sumardagurinn fyrsti - 19.04.1956, Qupperneq 14
12 BARNADAGSBLAÐIÐ Skotsilfur skólabarna Foreldrar eiga oft í erfiðleikum með að verða við ósk- um barna sinna um ,,að gefa sér aur“, til þess að kaupa eitthvað, sem hugurinn girnist, eða til skemmtana. Þar sem börnin eru mörg og heimilistekjurnar af skorn- um skammti verður kvabb blessaðra barnanna um þessi efni næsta sársaukakennt fyrir foreldrana, sem vita varla, hvernig mæta skuli þessum síendurteknu óskum. En ef vel er að gáð verður Ijóst, að er þetta vandamál allra foreldra, hvort sem þau eiga fleiri börn eða færri, og jafnvel þótt þau hafi nokkrum fjármunum úr að miðla. Því það, sem mestu máli skiptir, er hversu til tekst um uppeldi barnsins á þessum sviðum sem öðrum. Barn, sem fer til foreldra sinna og ,,slær út“ peninga, þegar því þykir við þurfa, öðlast litla þekkingu með þeim'hætti um meðferð fjármuna. Barnið þarf að læra að vega og meta sjálft, hvað rétt er og hvað rangt, einnig á fjármunasviðinu og finna til eigin ábyrgðar. Leið í þessum efnum er að greiða barninu tiltekna peningaupphæð til eigin ráðstöfunar með reglubundnu millibili. Reynslan mun styðja það, að mánaðarleg greiðsla sé ár- angursríkari en vikuleg. Ef barnið fær vasapeninga á hverj- um laugardegi, þarf minni ráðdeild til þess að koma pen- ingum í lóg, en ef hugsa þarf um mánuðinn allan. I þessu sambandi er rétt að taka fram, að séu vasapeningar greiddir mánaðarlega, er nauðsynlegt að eng- in frávik séu gerö til undantekningar. Hér skal til gamans og til nokkurs fróðleiks skýrt frá einu dæmi, sem ritstjórninni er kunnugt um, um aðferð foreldra, sem eiga 4 börn á barnaskólaaldri. Síðasta laug- ardag hvers mánaðar fær hvert barn greiddar 2 krónur fyrir hvert aldursár, þannig að 7 ára barnið fær greiddar 14 krónur, 10 ára barnið 20 krónur o. s. frv. Svo hefur við brugðið, eftir að þessi háttur var upp tek- inn, að börnin biðja föður sinn aldrei urn vasapeninga. Þau skrifa nafn sitt til viðurkenningar á móttöku pening- anna og síðan taka þau við þeim og ráðstafa þeim að eigin vild, stundum til gjafa, stundum til skemmtana, en einnig eru nokkrar krónur teknar frá til þess að leggja í spari- sjóðsbókina í bankanum. Að vísu fer ekki stór fjárhæð á hvern stað, en fyrirkomulagið er þess eðlis, að börnin kom- ast ekki hjá því að velta því fyrir sér á eigin spýtur, hvernig peningunum verði bezt varið. Sumargjöf barnanna Á öÖrum stað hér í bla'ðinu er aö nokkru rakin saga bygg- ingarmáls hinnar nýju Suöurborgar. Þar kemur fram, aö allt er til reiöu aö hefja byg.gingu hdns nýja heimilis, sem ætlaÖ er aö koma í staö Tjarnarborgar. Fjárfestingarleyfið eitt er enn ófengiö. Forráöamenn Sumargjafar gera sér þó von um, aö þaö fáist þegar á þessu 'vori. — Ef til viU fá litlu börnin þaö í sumargjöf. Á sumardagiiin fyrsta 1955 efndi Sumargjöf til sérkenni- legrar sýningar í Listamannaskálanum, en þar var sýnd vinna smábarna frá dagheimilum og leikskólum, og leiktæki barna á heimilum félagsins. Sýning þessi var mjög fjöl- sótt af foreldrum og öðrum er láta sig skipta málefni smá- barna. — Ljósmyndin er frá sýningunni og sjást þar börn að starfi í leikskóla. FRÁ KOUNGSKOMUNNI: Friðrik IX. konungur Danmerkur, Ingrid drottning, forseti íslands hr. Ásgeir Ásgeirsson og forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir, aka ásamt fylgdarliði heim að ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu kl. 3, þriðjudaginn 10. apríl. — Börnin standa í röð á gangstéttirmi og fagna þjóðhöfðingjunum. — Hlutur barnanna þótti skemmtilegur og var öllum til ánægju og þeim til sæmdar. Laufey Vilhjálmsdóttir: Öndvegissúlur Þetta er lítil snotur bók, saga hinnar fyrstu fjölskyldu, er byggði landið. Bókin er prýdd fjölda mynda og teikn- inga af búsáhöldum og húsmunum. Forsíðumyndina og teikn- ingarnar hefur höfundur sjálfur gert. — Ágóða af sölu bókarinnar hefur frú Laufey ráðstafað til kvennaheimilis- ins „Hallveigarstaðir".

x

Sumardagurinn fyrsti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumardagurinn fyrsti
https://timarit.is/publication/1751

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.