Kirkjublaðið - 30.04.1945, Side 4
\
Blönduósskirk j a
Frh. af 3 síðu.
Þótt trylltur her sér brjóti blóð-
ug skörð,
þá bifast eigi ríki Guðs á jörð.
Ver, faðir þeim, sem líða, líkn i
þraut
og lækna sár.
Lát kirkju þína benda á rétta
braut,
er blinda tár. ’
Heyr, faðir, barnsins bæn um
vernd og grið,
legg blessun þína á alheims sætt
og frið.
T. K. J.
LOFSÖNGUR
við hátíðamessu á fimmtugsaf-
mæli Blönduóskirkju 14. jan.
1945. •
(Lag: Fögur er foldin.)
Hátindar hljóma,
heyrum bergmál tímans:
Fótatak kynslóða um farna
braut.
Hvarf eins og leiftur
hrapandi stjörnu
hver æfi manns í alda skaut.
Löng var þó leiðin
lúnum göngumanni,
margur var fótsár í ferða lok,
þjakaði þorsti,
þreyta brann í limum,
er brjóst og herðar beygði ok.
Krists heilög kirkja,
kynslóðanna hæli,
lagði um aldir líkn við þraut,
sviða dró úr sárum,
svölun veitti þyrstum
og áttaviltum beindi braut.
Ljóstæra lindin
lifanda orðsins
streymdi, þótt fold væri frosin
gljá.
Varðaður viti
veitti ljós um byggðir,
er dimm nótt yfir dölum lá.
Hendur fúsar hlóðu
hús til dýrðar Guði.
Þeim gjaldi niðjar þökk í Iaun.
Gengu þar glaðir
gamlir og ungir
og þangað sóttu í þungri raun.
Musteri molna,
menn til foldar hníga,
aldanna skeið er sem skýjamynd.
Svölunar leita
lýðir og finná
í trú við Orðsins tæru lind.
P. V. G. K.
FRÁ NESKIRKJU
Ein 1000,00 króna gjöfin enn
hefir sóknarprestinum borizt til
kirkjunnar. Að þessu sinni frá
hjónum í sókninni, til minnigar
um son þeirra.
Einnig hefir kirkjan hlotið 2
áheit enn: Kr. 40,00 frá önnu
Bjarnadóttur, Hrólfsskála, kr.
10,00 frá Páli Karlssyni, s. st.
Kærar þakkir.
Guðm. Ág.
KIRKJUHLJÓÐFÆRI
Þessi mynd er af fullkomnasta
orgeli sinnar tegundar, sem flutt
hefur verið til Islands hingað til.
Það hefur alls 15 raddir, mjög
fjölbreyttar að hæð, hljómblæ
og styrkleika. Mótor er byggður
inn í orgelið og þannig séð fyr-
ir loftþörfinni. Hljóðfærið er
eign Fríkirkjusafnaðarins í
Hafnarfirði, keypt árið 1933.
Það er byggt hjá hinu alkunna
firma Th. Mannborg í Leipzig.
Nú munu vera hljóðfæri í
flestum kirkjum þessa lands.
Víðast hvar eru það orgel-
harmonium; aðrar orgeltegundir
aðeins í stöku kirkjum í stærstu
bæjunum. 1 þessu greinarkorni
er eingöngu átt við orgelharmon-
ium þegar talað er um orgel.
Um nærfellt 40 ára skeið hefi
ég kynnst nokkuð hljóðfæramál-
um ýmissa kirkna víðsvegar á
landinu. Veit ég, að á því sviði
er víða umbóta þörf á >ýmsa
lund. Ekki bý^t.ég við, að þær
fáu bendingar varðandi kirkju-
hljóðfæri; er hér fara á eftir, fái
miklu um þokað til bóta. En
engi veit ófreistað.
Veðráttan á Islandi er raka-
söm og breytileg eins og alkunn-
ugt er. Þess vegna er svo erfitt
að halda orgelum í nothæfu lagi
í kirkjunum okkar, einkum á
vetrurn, nema þær séu því bet-
ur hitaðar. En af eðlilegum á-
stæðum má heita nærri ómögu-
legt að koma við nægilegri og
stöðugri hitun í öllum þorra ís-
lenzkra kirkna. Þess vegna er
nauðsynlegt að vanda val orgela
í lélega hitaðar kirkjur — og
reyndar i allar kirkjur — eins
og kostur er á. Stofuorgel er
því bæði varasamt og óheppilegt
að kaupa til notkunnar í kirkj-
um. Hvorki ytri gerð þeirra né
innra verk er upprunalega mið-
að við þarfir kirkna. Um leið og
orgel er pantað í kirkju, verður
að láta verksmiðjuna, sem
byggir það vita, til hvers háttar
notkunar hljóðfærið er ætlaðsér-
staklega. Mun hún þá miða ytri
gerð og innra verk við það, þar
á meðal stillingu raddanna.
I sumar kirkjur með ónógri
hitun hafa verið keypt allfjöl-
breytt orgel. Það hefur gefizt
misjafnlega, oftast heldur illa.
Því fjölbreyttara,sem orgelið er,
því hættara er yið, að það færist
úr lagi af áhrifum kulda og
raka, að öðru jöfnu, ef hitun er
ónóg. Eg held því að varasamt
sé yfirleitt að kaupa mjög fjöl-
breytt orgel í lélega hitaða
kirkju. Hljóðmagn þarf þó að
vera nægilega mikið og raddir
orgelsins þurfa nauðsynlega að
vera haganlega valdar. Ytri
gerðin.ætti yfirleitt að vera lát-
laus en traust og stílhrein,
Mér spyrst svo til, að orgel í
ýmsum kirkjum, skólahúsum og
á heimilum víðsvegar um land-
ið séu nú í megnasta ólagi. Þar
sem svo er ástatt mun varla vera
um annað að gera en koma org-
elunum til einhvers manns, sem
bæði hefur þekkingu, tæki og
efni til að gera. við þau eins og
þörf er á, ef ekki eru tök á að
lagfæra þau á staðnum. Stund-
um verða orgel ónotandi vegna
óhreininda, er safnast fyrir i
þeim. Ættu menn að gefa þessu
gætur við og við með því að líta
inn í orgelin. Gætnir menn og
lagvirkir munu geta náð mestu
óhreinindunum úr orgelum, þó
að þeir hafi ekki margbrotin
tæki í höndum. Fullkomin og
gagnger hreinsun og um leið
stilling á fleiri eða færri tóna-
fjöðrum, sem venjulega er nauð-
synleg um leið, er aftur á móti
varla öðrum ætlandi en alvönum
mönnum á þessu sviði.
Sum orgel eru þannig úr garði
gerð, að allt nótnaborðið má
færa til hægri eða vinstri fyrir-
hafnarlaust, venjulega um 5—9
lítil tónbil. Af þessu leiðir, að á
slík orgel erumsvifalausthægt að
leika í 6—10 mismunandi tón-
tegundum á sömu nótur á nótna-
borðinu. Færa má til um eitt eða
PRESTÁSTEFNA ÍSLANDS
Hin áriega prestastefna íslenzku kirkjunnar verður að forfalla-
iausu háð í Reykjavík dagana 20.—22. júní næstkomandi, aS
báðum dögum meðtöldum.
Prestastefnan hefst með guðsþjónustu í dómkirkjunni miðvikn-
daginn 20. júní kL 1 e. h.
Dagskrá prestastefnunnar verður nánar auglýst síðar.
BISKUPINN YFIR ÍSLANDI
Reykjavik, 20. marz 1945.
Sigurgeir Sigurðsson.
Gjöfum og áheiium
til
Hallgrímskirkju í Reykjavík
ER VEITT MÓTTAKA Á BISKUPSSKRIFSTOFUNNI
SÍMI 5015
Nokkur eintök
af Nýja-Teslameniinu
með sfóru leiri (úigáfa
1906), fásí í biskups-
skrifsíofunni.
* •
Verð kr. 15.00
fleiri tónbil í einu eftir vild. Sér-
hver organleikari getur notfært
sér þennan kost hljóðfærisins
undirbúningslaust.
Þetta er góður kostur á org-
eli, sérstaklega þó að því er
varðar kirkju- og skólaorgel og
yfirleitt öll orgel, sem mikið eru
notuð við söngiðkanir. Er þá
jafnan hægt að leika lögin í
þeirri tónhæð, sem bezt hentar
þeim, er syngja eiga með hljóð-
færinu í það og það skiptið, án
þess að þurfa að skrifa lögin
yfir í aðra tóntegund.
Flest orgelverk með einu
nótnaborði má fá byggð með
þessu fyrirkomulagi, en þau eru
nokkru dýrari en venjuleg orgel
með sama raddamagni. — Er
mönnum velkomið að reyna org-
el af þessari gerð heima hjá mér,
ef þeir geta komið því við.
Fyrir nokkru gaf ég út smá-
bækling um orgel. Má vera, að
hann gæti orðið þeim að nokkr-
um notum, er sjálfir vilja reyna
að þalda orgelum sínum í sæmi-
legu lagi.
Elías Bjarnason.
VIKURSTEINN
°g
einangrunar-
plölur úr vikri
Pspiaverk-
V
smiðjan h.f.
1