Kirkjublaðið - 18.06.1945, Page 4
Frh. af í. síðu.
Eg er með yður
þeir höfðu talað saraan all-
lengi, sagði fanginn við biskup-
inn: „Þér vitið sennilega ekki,
að einu sinni lá nærri að ég
dræpi yður“. Biskupinn spurði
hvenær það hefði verið. „Þér
voruð um eitt skeið vanur að
heimsækja veikan mann, sem
átti heima spölkorn fyrir utan
borgina, einu sinni á viku. Þetta
vissum við nokkrir félagar, og
við tókum okkur saman um að
sitja fyrir yður eitthvert kvöld.
slá yður í rot og ræna yður.
Svo var það eitt kvöld, þegar við
vissum að þér voruð hjá mann-
inum, að við földum okkur tveir
í runnunum hjá veginum til
þess að ráðast á yður þegar þér
væruð {' ýðinni heim. En þegar
þér ko: 5, var maður með yð-
ur, sv(- j við þorðum ekki að
gjöra J“.
„Nei, að getur ekki verið“,
svaraði iskupinn, „því að ég
man aldrei til, að nokkur mað-
ur væri með mér í þeim ferðum
mínum“.
„Við sáum manninn greini-
lega“, sagði hinn, „hann var yð-
ur samferða alla leiðina heim“.
„Það hlýtur þá að hafa verið
verndarengillinn minn“, svaraði
biskupinn.
Þar rættust bókstaflega orð-
in í 34. Davíðssálmi: „Engill
Drottins setur vörð kring um
þá er óttast hann og frelsar þá“,
Þetta er það dásamlega við
kristindóminn, að hann kemur
mönnum í þetta nána samband
við Guð.
En það er eftirtektarvert, að
fyrirheitið mikla er gefið í sam-
bandi við fyrirskipun um starf.
Þeir sem vilja vera í þessu dá-
samlega sambandi við Guð,
mega ekki hugsa um sjálfa sig
eina, heldur um umhverfi sitt,
— að koma mannlífinu, eins
langt og áhrif þeirra ná, í and-
legt samband við Guð. „Því að
svo elskaði Guð heiminn (alla
menn), að hann gaf son sinn
eingetinn“.
Það er því miður of mikið til
af þeirri einstaklingshyggju,
sem segir: „Ég hefi mína trú
fyrir mig, mér er nóg að hugsa
um mína eigin sál“. Þeir gleyma
því, að Jesús sagði: „Farið og
gjörið allar þjóðirnar að læri-
sveinum“. — Ég sagði nýlega
við einn vin minn: „Ég skil ekk-
ert í því, að þú skulir aldrei
koma í kirkju“. Og hann svar-
aði: „í út við útvarpið mitt
þegar i 3að er“. Með það var
hann á ;ður, — og það er auð-
vitað £ það sem það nær. En
þetta ( iíka vöntunin mikla í
trúarlíí. _jolda góðra manna allt
í kring um okkur: að hver situr
við sitt, — hver hokrar út af
fyrir sig eins og andlegur kot-
bóndi við sína trúartýru, en
hugsar ekkert um að efla ríki
Guðs í umhverfi sínu.
En hvernig getur sá maður,
sem hefir meðvitimd um að
Kristur er með homim, gengið
Aihyglisverí
f o r d æ m i
i.
Þégar ég vígðist til prests-
þjónustu í Reynivallaprestakalli
í októbermánuði árið 1899, flutti
ég hina fyrstu messugerð hér í
Reynivallakirkju laust eftir
miðjan þann mánuð.
Fléstir þeirra, er þá voru við
kirkju, eru nú horfnir af sjón-
arsviðinu. Síðan eru liðin bráð-
um 46 ár.
Hér ætla ég að minnast á
einn mann, sem þá var við
kirkju. Það var tryggðavinur
minn og nágranni, Steini Guð-
mundsson á Valdastöðum. Hann
var þá ungur maður í foreldra-
húsum, sonur hjónanna Guð-
mundar Sveinbjarnarsonar og
Katrínar Jakobsdóttur. Voru
þau gagnmerk hjón og bjuggu
þar lengi, rausnar og myndar-
búi, af öllum vel metin og virt
að verðleikum. Var Katrín sér
staklega mikil og einlæg trú-
kona, og var henni tíðförult i
Guðshús og minnist ég þess með
gleði og þakklæti. öll þau ár,
sem síðan eru liðin, hefir Steim
átt heima á Valdastöðum, um
langa hríð sem rausnarbóndi
þar.
Steini Guðmundsson á ekki af-
mæli um þesar mundir, og eigi
þess vegna tilefni til að minn-
ast hans sérstaklega, ' þessa
gagnmerka og ágæta manns.
Verður lífs eða starfsferill hans
ekki rakinn hér né honum lýst
yfirleitt. En það er eitt í fari
hans, sem mér hefir verið tíð-
hugsað um og verður mér ávallt
ógleymanlegt. Það er fádæma
tryggð hans við kirkjuna og
starfið í söfnuðinum. Get ég
ekki nógsamlega þakkað þessa
tryggð. Steini á Valdastöðum er
venjulega og ávallt, er hann
getur því við komið, við kirkju,
þegar messa ber. Bæði er það
barnsvani, arfur, því Reynivalla-
kirkja og hið kirkjulega starf
þar, átti þar fölskvalausa vini,
þar sem Valdastaðaheimilið var
og hefir löngum verið og væri
saga að segja frá því. Svo er
Steini einlægur trúmaður og
kemur það, meðal annars, býsna
fram hjá manni, sem er að vili-
ast, án þess að leiðbeina hon-
um? Og þeir eru margir sem
eru að villast, og enginn hugs-
ar um að segja til vegar.
Þeir finna bezt til nálægðar
Krists, sem mest vilja fyrir
hann gjöra. Og fyrir það vex
trú þeirra; þeim eykst æ and-
legur þróttur og fögnuður. Og
áhrifin af lífi þeirra verða bless-
unaráhrif á umhverfi þeirra.
Þeir gjöra hrjóstuga mela
mannlífsins að fögrum gróður-
lendum.
Kristur vill vera með þéri
En mundu líka eftir því, að
hann ætlast til þess af þér, að
þú vinnir að því að gjöra aðra
menn að lærisveinum hans!
Amen.
vel fram, er hann stingur nið-
ur penna. Hann kemur til kirkju
sinnar til að leita þar yndis og
uppbyggingar. Hann hefir lýst
því yfir í áheyrn fjölda fólks,
að ávallt hefði hann ánægju af
að koma til kirkju. Að vita af.
þó eigi væri nema einn maður,
sem kemur af þörf, er meiri
styrkur fyrir þjón orðsins en
orð fái lýst.
Steini er mikill raddmaður,
sönghneigður mjög og söngelsk-
ur. Munar um hann í Reyni-
vallakirkju, er hann „tekur
undir“. Er óþarfi, söngsins
vegna, að gera messufall, ef
Steini er viðstaddur. Hann hef-
ir löngum verið í sóknarnefnd
og formaður sóknarnefndar.
Hugulsemi hans um kirkjuna og
prestinn hefir verið mikil og
margvísleg og ættmanna hans,
hefir hún komið fram á fjölda
vegu.
í þjónustu í kirkjunni og ut-
an kirkju kemur Steini ákaflega
vel fram. Hann er gæddur
næmu fegurðarskyni. Á heimili
er hann hirðumaður, og snyrti-
maður í hvívetna, hóflátur og
háttvís.
Þó Steini hafi gefið sér tíma
til að fara til kirkju, hefir það
ekki séð á efnahag hans, því
hann er efna)ega sjálfstæður
maður, enda iðjusemi og atorka
athyglisverðir þættir í fari hans
og fara allir hlutir vel úr hendi
hans.
Ég get ekki stillt mig um að
geta þess, að Steini á Valda-
stöðum er mjög félagslyndur
maður og vel máli farinn, hjálp-
samur og greiðvikinn. Hann er
vænn maður, drengur góður.
Ég læt hér staðar numið að
sinni og vildi ég óska þess, að
allir söfnuðir þessa lands ætti
marga Steina líka.
Halldór Jónsson.
Tveir kivkfu-
kórar
Nýlega hefir Sigurður Birkis
söngmálastjóri dvalið í Dalapró-
fastsdæmi og stofnað þar tvo
kirkjukóra, Kirkjukór Hvamms-
sóknar hinn 19. maí og Kirkju-
kór Garpsdalssóknar hinn 27.
maí.
Kór Hvammssóknar telur 20
meðlimi og er stjóm hans þann-
ig skipuð:
Séra Pétur T. Oddsson, for-
maður.
Sigríður Sigurðardóttir, ritari.
Sigfinnur Sigtryggsson, gjald-
keri. \
Theódóra Guðlaugsdóttir og
Geir Sigurðsson.
Organisti er Jón Einarsson í
Sælingsdalstungu.
Kirkjukór Garpsdalssóknar er
stofnaður með 15 meðlimum.
Þessir eru í stjóm:
Sólrún Guðjónsdóttir, form.
Eysteinn Eymundsson, gjaldk.
Björn Júlíusson, ritari,
Sigríður Júlíusdóttir og
Jóhanna Karlsdóttir.
Organisti er Ingólfur Helga-
son í Gautsdal.
Dagskrá
Prestastefnunnar (Synadus), er háð verður í Reykjavík dagana
20.—22. júní 1945.
20. júní:
1 1 e. h. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Dr. theol. Magnús Jóns-
son prófessor. Altarisþjónustu annast: Dómprófastur séra
Friðrik Hallgrímsson og séra Garðar Þorsteinsson, Hafn-
arfirði.
Kl. 4 e. h. Prestastefnan sett í kapellu Háskólans.
Kl. 4.30 e. h. Biskup ávarpar synoduspresta og gefur skýrslu um
starf kirkjunnar á liðnu synodusári. Frjálsar umræður um
skýrslunay
Kl. 6.30 e. h. Kosning nefnda.
k:. 8.30 e. h. Opinbert erindi í Dómkirkjunni. Sóra Jakob Jónsson
flytur erindið.
21. júní:
Kl. 10 f. h. Morgunbænir. Séra Jón Kr. ísfeld á Bílduual flytur
bæn.
Kl. 10 f. h. Starfshættir kirkjunnar á komandi tíð. Framrfgu hafá:
Sigurgeir Sigurðsson biskup, séra Friðrik Hallgrímsson
dómprófastur og séra Sigui’jón Guðjónsson í Saurbæ.
Ki. 2 e. h. Lagðar fram messuskýrslur og skýrslur um úthlutun
styrks til fyrrvei’andi sóknarpresta og prestsekkna.
Kl. 2.30 e. h. Skýrsla barnaheimilisnefndar. Séra Hálfdán Helga-
son prófastur.
Kl. 3 e. h. Sameiginleg kaffidrykkja.
Kl. 4.30 e. h. Starfshættir kirkjunnar. Framhaldsumræður.
Kl. 8.30 e. h. Opinbert erindi í Dómkirkjunni. Séra Sigui’ður Páls-
son í Hraungei’ði flytur erindið.
22. júní:
Kl. 10 f. h. Prestsvígsla í Dómkirkjunni.
K3. 2 e. k. Biblíuféílagsfundui’.
Kl. 2.30 e. h. Prófastafundur.
Kl. 4.30 e. h. önnur mál.
Kl. 6 e. h. Prestastefnunni slitið með bæn í kapellu Háskólans.
Kl. 9 e. h. Heima hjá biskupi.
4
Nokkur eintök
af Nýj a-T esíameniinu
» V
með slóru letri (úlgáfa
1906), fásl í biskups-
skrifsfofunni.
Verð kr. 15.00
Auglýsið í Kirkjublaðinu