Kirkjublaðið - 20.09.1948, Page 4

Kirkjublaðið - 20.09.1948, Page 4
Vitur maður er betri en sterk- ur og fróður maður betri en afl- mikill. (Orðskv. 24. 5.). Mánudaginn 20. september 1948. Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyð- ir, og þar sem þjófar brjótast inn og stela, en safnið yður fjársjóð- um á himni. Matth. 6.19.—20.). Happdrættislán ríkisins Ríkisstjórnin hefur ákveðið að nota nú ýmsar gildandi ónotaðar lagaheimildir til lánstöku fyrir ríkissjóð. Býður ríkissjóður í því skyni út nýtt innanríkislán, að upphæð 15 milljónir króna. Verð- ur lán þetta í happdrættisformi. Hafa verið gefin út bráðabirgða- lög um skattfrelsi vinninga^og ýms önnur atriði varðandi happ- drættið. Nánari reglur um til- högun lánsins og happdrættisins hafa síðan verið settar með reglu- gerð. H appdrættislán. Rétt hefur þótt áð hafa lán þetta í formi, sem áður er óþekkt hér á landi, en hefur verið notað með mjög góðum árangri erlend- is. Er það á þann veg, að í stað þess að greiða ákveðna vexti af hverju bréfi, er vöxtunum úthlut- að sem happdrættisvinningum tvisvar á ári. Skuldabréfin eru öll jafn há, 100 krónur, og eru þau öll númeruð og gilda þannig sem happdrættismiðar. Þar sem lánið er til 15 ára, verður 30 sinn- um dregið í happdrættinu, eða 15. apríl og 15. október ár hvert. Dregið er úr öllum bréfunum í hvert sinn og getur því sama námer hlotið vinning oftar en einu sinni. Vinningar í hverjum drætti rétt til að keppa um hina stóru vinninga, sem í boöi eru í happ drætti þess, en að því búnu fást 100 krónurnar að fullu endur- greiddar. Með hliðsjón af þessu er það tvímælalaust skynsamlegt að ráð- stafa sparifé sínu til kaupa á happdrættisskuldabréfum ríkis- sjóðs. Ekki hefur verið talin á- stæða til að takmarka kaup hvers einstaks á bréfum þessum, en upphæð hvers bréfs hefur verið miðuð við 100 krónur með það fyrir augum, að sem allra flestir gætu átt þess kost að kaupa bréf- in. Má gera ráð fyrir því, að margir kaupi bréf þessi handa börnum sínum eða noti þau til gjafa á einn eða annan hátt. Sala bréfanna. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að sem flestir landsmenn geti átt þess kost að kaupa happ- drættisskuldabréfin. — 1 þessu skyni hafa allir bankar og útibú þeirra, sparisjóðir, pósthús, skrifstofur málaflutningsmanna, innlánsdeildir kaupfélaga og í sveitum flestir hreppstjórar tek- ið að sér að annast sölu bréfanna. Fyrsti dráttur 15. okt. Fyrsti dráttur í happdrættinu verður 15. okt. næstk. Einmitt með hliðsjón af þessu, ætti fólk ekki að draga að kaupa bréf, svo að það geti frá upphafi verið með í happdrættinu. Hér er mikið að að tapa. Auk kr. hér segir: vinna, en engu 1 vinningur 75.000 kr. = 75.000 1 — 40.000 =£S 40.000 1 — 15.000 = 15.000 3 vinningar 10.000 = 30.000 5 —- 5.000 = 25.000 15 — 2.000 = 30.000 25 — 1.000 r = 25.000 130 — 500 = 65.000 280 — . 250 — .= 70.000 Samtals er í hvert sinn dregið um vinninga, sem nema 375.000 kr., eða 750.000 kr. á ári hverju. Svarar þessi upphæð til þess, að 5% vextir séu greiddir af skulda- bréfunum. 1 bráðabirgðalögum frá 17. ágúst 1948 er svo ákveðið, að vinningar í happdrætti þessu skuli undanþegnir öllum opinber- um gjöldum öðrum en eigna- skatti. Eru það mjög mikil hlunn- indi fyrir þá, sem hljóta háu vinningana. Áhætta er engin. Happdrætti ríkissjóðs er að því leyti öllum öðrum happdrættum hagstæðara, að áhætta þátttak- enda er engin. Eftir 15 ár fá menn skuldabréfin að fullu end- urgreidd. Verður því í mesta lagi um vaxtatap að ræða, en hins vegar allverulegar líkur til þess að hljóta vinning einhvern tíma á þessum 15 árum, og það ef til vill mikla fjárupphæð, þegar þess er gætt, að vinningarnir eru sam- tals 13.830, og kemur því vinn- ingur á næstum tíunda hvert númer. Hvert 100 króna skuldabrjef veitir eiganda sinum 30 sinnum gróðavonarinnar sem fylgir bréf- unum, stuðla þau einnig að skyn- samlegum sparnaði og skapa tækifæri til að rýma til á lána- markaðinum. Þess er því mjög að vænta, að þjóðin bregðist vel við lánsútboði þessu. Takmarkið er það, að öll bréf- in verði seld fyrir 15. okt. Gjafir til Saurbæjarkirkju Herra prófastur Sigurjón Guðjónsson í Saurbæ á Hvalf jarð- arströnd ’hefur nýlega afhent mér þessar gjafir í byggingar- sjóð nýrrar kirkju þar: Frá hjónunum á ^erstiklu, Búa Jóns- syni og Margréti Jónsdóttur, kr. 1000.00, frá Guðjóni Jónssyni í Saurbæ kr. 1000.00, frá séra Sigurjóni Guðjónssyni og frú Guðrúnu ÞóÞrarinsdóttur s. st. kr. 1000.00. Frá Sigríði Jóns- dóttur í Vestmannaeyjum kr. 100.00. Áheit frá G. G. 15 kr. og úr samskotabauk á Ferstiklu kr. 526.78. — Matthías Þórðarson. Happdrættislón ríkissjóðs 1948 1 dag hefst um land allt sala á happdrættisskuldabréfum 15 miljón króna innan- anríkisláns, sem ríkissjóður býður út. Er þetta gert í samræmi við þá ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að nota ýmsar heimildir gildandi laga til lántöku fyrir ríkissjóð vegna margvíslegra framkvæmda, sem ríkissjóður hefur orðið að leggja fé til. Sölu skuldabréfa þessara annast allir bankar og sparisjóðir, pósthús, skrifstofur málaflutningsmanna, innlánsdeildir kaupfélaga og í sveitum flestir hreppstjórar. Lán þetta er til 15 ára, og verða öll bréfin innleyst að þeim tíma liðnum. Vextir verða ekki greiddir af hverju einstöku bréfi, en í stað þess gilda bréfin sem happdrættismiðar, og er tvisvar á ári dregið um allmarga vinninga ,suma mjög háa. Hvert skuldabréf er að upphæð 100 krónur. Er láninu skift í svo litla hluti til þess að sem allra flestir geti átt þess kost að kaupa skuldabréfin og keppa um þá háu og mörgu happdrættisvinninga, sem í boði eru. ----Happdrætti þetta er óvenjulegahagstætt, því að áhættan er engin. Með því að lána ríkinu sparifé yðar, fáið þér þrjátíu sinnum tækifæri til þess að hljóta háan happdrætt- isvinning, ef heppnin er með, en síðan fáið þér endurgreitt állt framlag yðar. Það er því naumast hægt að verja sparifé sínu á skynsamlegri hátt en kaupa happdrættisbréf ríkissjóðs. Útdráttur skuldabréfa í happdrættinu fer fram 15. apríl og 15. október ár hvert, í fyrsta sinn 15. október 19A8. Vinningar í hvert sinn eru sem hér segir: 1 vinningur 75.000 kr. = 75.000 kr. 1 — 40.000 _ -- 40.000 — 1 — 15.000 — = 15.000 — 3 vinningar 10.000 — = 30.000 — 5 — 5.000 — = 25.000 — 15 — 2.000 — = 30.000 — 25 — 1.000 — = 25.000 — 130 — 500 _ = 65.000 — 280 — 250 — = 70.000 — Samtals 375.000 kr. Vinningar eru undanþegnir öllum opinberum gjöldum öðrum en eignaskatti. Upphæð vinninga samsvarar 5% vöxtum af láninu. Samtals er á 15 árum dregið um 13.830 vinningá, og kemur því vinningur á nærri tíunda hvert númer. Fóllc ætti ekki að draga að kaupa bréf, svo að það geti verið með í happdrættinu frá byrjun. Athugið, að því fleiri bréf, sem þér kaupið, því meiri líkur eru til þess að hljóta vinning í happdrættinu. Áhættan er hinsvegar engin. Gætið þess að glata ekki bréfunum, því að þá fást þau ekki endurgreidd. Reykjavík,. 15. september 1948. Jjármálará&uneutL& luneifl

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.