Kirkjublaðið - 14.03.1949, Qupperneq 1

Kirkjublaðið - 14.03.1949, Qupperneq 1
VII. árg. Reykjavík, 14. marz 1949. 5. tbl. Ásólfsskálakirkja Að Ásólfsskála bjó, sem kunn- ugt er Ásólfur hinn kristni og má því telja líklegt að þar hafi kirkja reist verið eða bænahús löngu áður en kristni var í lög tekin á landi hér. Máldagi er til fyrir kirkju að Ásólfsskála frá því um 1179 kendur við Þorlák biskup Þór- hallason hinn helga. Segir þar að þar skuli vera prestur er syngja skuli messur bæði að Gnúpi Ásólfsskála inum neðra (þ. e. Miðskála) og til ins yzta Ásólfsskála. Bendir það á, að hálfkirkjur eða bænahús hafi þá verið á öllum þessum stöðum. Segir og í máldaga þessum að í Ásólfsskála kirkju skuli ljós brenna of vetur fyrir helgar frá Maríumessu hinni fyrri til Mar- íumessu hinnar síðari en þaðan frá hverja nótt til krossmessu á vori. Þegar stundir liðu fram af- lögðust kirkjur þessar og bæna- hús og sóknir þeirra munu hafa lagst til Holts undir Eyjafjöll- um en þar var allra heilagra kirkja, tveir prestar og djákn að auki. % En með landshöfðingjabréfi 3. maí 1889 er leyfður flutning- ur Holtskirkju að Ásólfsskála og þar kirkja reist þá um sum- arið og stendur sú kirkja enn. Er þetta timburkirkja járn- varin utan og með turni á þaki, vistlegt hús og snoturt. I biskupsvisitazíu 1894 eru gripir kirkjunnar taldir vera þessir: Altaristafla máluð á tré, gjörð árið 1768, tveir tvíarmað- ir koparstjakar stórir, silfur- kaleikur og patína, bakstursdós úr eir, ferstrend altarisflaska úr hvítagleri og koparhjálmur með tólf ljósaliljum og ennfrem- ur tvær koparliljur á veggjum. Aldarminning Sex íslenzkra presta Á þessu ári er öld liðin frá fæðingu sex íslenzkra presta, en þeir eru: Séra Árni Jónsson síð- ast prestur á Hólmum í Reyðar- firði, séra Jón Halldórsson síð- ast prestur að Sauðanesi, séra Jón Jónsson síðast prestur á Stafafelli í Lóni, séra Jón Þorsteinsson síðast prestur á Möðruvöllum í Hörgárdal, séra Séra Árni Jónsson. Oddgeir Guðmundsson, síðast prestur í Vestmannaeyjum, og séra Steindór Briem síðast prestur í Hruna. Kirkj ublaðið birtir hér mynd- ir af þessum merku klerkum, en rúmsins vegna er ekki hægt að rekja æfiatriði þeirra nema að mjög litlu leyti. Séra Jón Þorsteinsson. Séra Árni Jónsson var fædd- ur 9. júlí 1849 að Litlu-Strönd við Mývatn. Útskrifaðist úr Prestaskólanum 1884 og veitt sama ár Borgarprestakall á Mýrum. Veitt Mývatnsþing 1888 og Hólmar í Reyðarfirði 1913 og þar andaðist hann 27. febrúar 1916. Hann var um langt skeið prófastur S. Þingey- inga. Alþingismaður Mýra- manna 1886—1891 og þingmað- ur N. Þingeyinga 1902—1907. Fyrri kona hans var Dýrleif Sveinsdóttir, en síðari kona Auður Gísladóttir, sem enn er á lífi og búsett í Reykjavík. Séra Jón Halldórsson var Séra Jón Halldórsson. fæddur 1. nóv. 1849 að Glaum- bæ í Skagafirði. Útskrifaðist úr Prestaskólanum 1874 og gerð- ist sama ár aðstoðarprestur hjá föður sínum að Hofi í Vopna- firði. Veittur Skeggjastaður 1883 og Sauðanes 1905. Fékk lausn frá embætti 1918 og and- aðist 14. janúar 1924. Prófastur Séra Oddgeir Guómundsson. í N. Þingeyjarprófastsdæmi 1906—1908. Hann var þríkvænt- ur en barnlaus. Séra Jón Jónsson var fæddur að Melum í Hrútafirði 12. ág. 1849. Útskrifaðist úr Presta- skólanum 1874 og fékk sama ár veitingu fyrir Bjarnarnesi. Veitt Stafafell í Lóni 1891. Pró- fastur Austur Skaftfellinga um skeið. Alþingismaður A. Skaft- fellinga 1885 og 1893—’99. Fyrri kona hans var Margrét Sigurðardóttir próf. á Hallorms- stað en síðari kona Guðlaug Bergljót Vigfúsdóttir. Séra Jón Þorsteinsson var fæddur 22. apríl 1849 að Hálsi Séra Jón Jónsson. í Fnjóskadal. Útskrifaðist úr Prestaskólanum 1873. Veitt Mý- vatnsþing 1874, Húsavík 1877 og Bárðardalsþing 1879. Vikið frá embætti í árslok 1898 en gerðist árið eftir aðstoðarprest- ur að Sauðanesi. Veittir Skeggja staðir 1906 og Möðruvellir í Hörgárdal síðar sama ár. Flutt- Séra Steindór Briem. ist þangað 1907 og var prestur þar til fardaga 1928, er hann fékk lausn frá embætti. Hann andaðist að Hjalteyri við Eyja- fjörð 7. maí 1930. Kvæntur Helgu Magneu Kristjánsdóttur Möller. Séra Oddgeir Guömundsson var fæddur í Reykjavík 11. ág. 1849. Útskrifaðist úr Presta- skólanum 1872. Veitt Sólheima- þing 1874, Miklaholt 1882, Kálf- holt 1886 og Vestmannaeyjar 1889 og þjónaði þar til dauða- dags 2. janúar 1924. Kvæntur Önnu Guðmundsdóttur Johnsen prófasts í Arnarbæli. Séra Steindór Briem var fæddur í Hruna 27. ágúst 1849. Útskrifaðist úr Prestaskólanum 1872 og gerðist aðstoðarprestur föður síns í Hruna árið eftir. Veittur Hruni 1883 og var þar prestur til dauðadags 16. nóv- ember 1904. Hann var kvæntur Kamillu Sigríði dóttur R. Peter Hall verzlunarmanns í íReykja- vík. Hátíðleg messa í Akureyrarprestakalli Eins og getið var um hér í blaðinu fyrir stuttu gaf próf. Guðbr. Jónsson Akureyrar- kirkju vandaðan messuhökul Annan hökul hefir kirkjan einn- ig fengið að gjöf.frá Jónasi Þór verksmiðjustjóra á Akureyri. Er sá gripur gjörður af frú Unni Ólafsdóttir í Reykjavík með frábærum hagleik og vand- virkni, en hún hefir, svo sem kunnugt er, gert marga hina ágætustu gripi þessarar tegund- ar, sem nú prýða margar kirkj- ur víðsvegar um landið. Höklar þessir báðir voru teknir í notkun og vígðir við virðulega og fjölmenna hátíða- guðsþjónustu í Akureyrar- kirkju nú fyrir skömmu. Var það fyrsta guðsþjónusta þar frá því fyrir jól í vetur, en á Akureyri hefir, sem kunnugt er, verið algjört samkomubann vegna hins ægilega mænuveiki- faraldurs.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.