Kirkjublaðið - 14.03.1949, Qupperneq 3
KIRKJUBLAÐIÐ
3
Kirkjustaðir í Húnavatns
prófastsdæmi
I Húnavatnsprófastsdæmi eru
nú, sem kunnugt er, sjö presta-
köll og nítján kirkjur: Melstað-
arprestakall er tekur yfir Mel-
staðar-, Kirkjuhvamms-, Stað-
arbakka- og Núpssóknir, Tjarn-
arprestakall, Tjarnar- og Vest-
urhópshólasóknir, Breiðabóls-
staðarprestakall, Breiðabóls-
staðar- og Víðidalstungusókn-
ir, Þingeyraklaustursprestakall,
Þingeyra-, Undirfells- og
Blönduósssóknir, Auðkúlu-
prestakall, Auðkúlu- og Svína-
vatnssóknir, Bergstaðapresta-
kall, Bergstaða-, Bólstaðarhlíð-
ar- og Holtastaðasóknir og
Höskuldsstaðaprestakall, Hösk-
uldsstaða-, Hofs- og Skaga-
strandarsóknir.
Áður fyrr var þetta mjög á
annan veg. Telst mér svo til, að
í Húnavatnsprófastsdæmi hafi
verið sextíu kirkjur þegar ftest
var, og auk þess fjöldi bænhúsa.
Þar sem ætla má, að ýmsa
muni fýsa að vita nokkur skil á
þessum fornu kirkjustöðum,
skal hér gefið stutt yfirlit um
kirkjustaði þá og bænhús, sem
mér er kunnugt um að verið
hafi á þessu svæði. Mun ég
leggja til grundvallar núver-
andi prestakallaskipun, og geta
lauslega um kirkjur þær og bæn-
hús, er verið hafa í hverju
prestakalli áður fyrr:
Melstaðarprestakall.
1. Melstaður eða Melur í Mið-
firði. Þar var Stefánskirkja, og
sátu þar í kaþólskum sið venju-
lega tveir prestar og djákni. Þar
heyrðu 4 bænahús og öll uppi-
standandi er Ólafur biskup
Röngvaldsson visiterat* staðinn
árið 1486. Voru þau á þess-
um bæj um: Svertingsstöðum,
Söndum, Bálkastöðum og Þuy-
íðarstöðum.
2. Efri Núpur eða Núpur i
Miðfirði. Þar var ftdmilisprest-
ur og fylgdu fjögur bænMs, á
Aðalbóli, Kollufossi, Barkar-
stöðuro og Rófu. Síð'ar heyrðu
bæn'ahúsin á Bark-arstöðum og
RLófu undir Staðarbakka.
3. Staðarbakki. Þar var Jóns
kirkja baptista og tveir prestar
eða prestur og djákni.
4. Torfastaðir. Þar var al-
kirkja, en þjónað frá Staðar-
bakka.
5. Bjarg i Miðfirði. Grettis-
saga segir að Ásmundur faðir
Grettis léti kirkju gera að
Bjargi. Og 1486 er þar hálf-
kirkja og þjónað frá Staðar-
bakka.
6. Reykir í Miðfirði. Þar er
kirkju getið 17. apríl 1392 og
1432 er þar talin vera hálf-
kirkja.
7. Kirkjuhvammur eða
Hvammur í Miðfirði. Þar var
Tómasarkirkja erkibiskups og
var þar heimilisprestur. Bæna-
húsa er getið árið 1318 bæði á
Ánastöðum og Kárastöðum.
8. Ós. Þar er getið hálfkirkju
árið 1432.
I núverandi Melsstaðarpresta-
kalli hafa því áður verið að
minnsta kosti fjögur presta-
köll, átta kirkjur, þar af þrjár
hálfkirkjur og að auki ekki
færri en 10 bænhús, og senni-
lega fleiri.
Tj arnarprestakall:
Þar voru þessar kirkjur:
1. Tjórn á Vatnsnesi. Þar var
Maríukirkja. Þar var prestur
og skyldi hann (1318) syngja til
Sauðadalsár, Illugastaða, Saur-
bæjar, Valdalækjar og Krossa-
ness. Virðist þá hafa verið
kirkja á Sauðdalsá, en síðar
(1394) er þar talið vera bæn-
hús.
2. lllugastaðir. Þar var hálf-
kirkja.
3. Saurbær. Fjórðungskirkja.
Að Valdalæk, Krossanesi og
Sauðadalsá hafa verið bænhús.
4. Vesturhópshólar eða Hólar
í Vesturhópi. Þar var Jóns
kirkja baptista og var þar
IV.
Efnishyggjan.
Efnishyggja (materialismi)
ftefnist sú vísinda- og heim-
spekistefna, sem átti sitt blóma-
skeið frá miðri 19. öld og fram
yfir aldamótin síðustu.
Efnishyggjan afneitar klár-
lega andanum. Hún telur að
eingöngu sé til efnisheimur. —
Þessi efnisheimur lýtur ákveðn-
um lögmálum, þessvegna er
hægt að skýra hann og skilja.
Lögmálin eru lykillinn að hon-
um. Einna yfirgripsmest þess-
ara lögmála er orsakalögmálið,
sem allt tengir órofaböndum.
Heimurinn er ein geisiflókin og
stórbrotin vél, þar sem eitt hjól-
ið knýr annað. Andi eða Guð,
er ekki til, nema þá í hæsta lagi
sem einhver óskiljanleg frum-
orsök, er setti vélina í gang í
upphafi, og sem í rauninni var
þýðingarlaust að brjóta heilann
um. Maðurinn var aðeins smá-
hjól í vélinni, er varð að snúast
þar knúinn áfram og bundinn
af vélarheildinni sjálfri. Hann
lék sér að vísu að því stundum
að dunda við þá sjálfblekkingu,
tveggja presta skylld (söng-
prestur og ölmusuprestur).
5. Ægissíða. Þar var hálf-
kirkja á Sauðadalsá, en síðar
Hólum.
6. Ásbjarnarnes. Hálfkirkja
og þjónað frá Hólum.
I Tjarnarprestakalli hafa
verið tvö prestssetur og að
minnsta kosti sex kirkjur og
þrjú bænahús.
Breiðabólsstaðarprestakall
Þar voru kirkjur sem hér
segir:
1. Breiðabólsstaður. Þar voru
tveir prestar, djákn og sub-
djákn. Þaðan var sungið á
eina hálfkirkju og tvö bænhús.
Eigi veit ég víst hvar hálfkirkja
þessi hefur staðið. Má vera að
hún hafi verið að Miðhópi, en
þar er bænhús, er Ólafur biskup
Rögnvaldsson vísiterar staðinn
1486.
2. Ásgeirsá. Þar sátu prestar
og heyrðu þar undir þrjú bæn-
hús, að Auðunarstöðum, Galt-
arnesi og Dal.
3. Lækjamót. Þar var hálf-
kirkja og þjónað frá Ásgeirsá.
4. Viðidalstunga eða Tunga í
Víðidal. Þar var Jóhannesar
kirkja baptista og sat þar prest-
ur.
I Breiðabólsstaðarprestakalli
voru þrjú prestssetur og 4—5
kirkjur en fimm bænhús.
að hánn hefði írjálsan vilja og
jafnvel ódauðlega sál. En í raun-
inni lá til grundvallar hverri
hans athöfn ytri orsök eða or-
sakir, sem ákvörðuðu breytni
hans og fjötruðu viljann, þótt
hann gerði sér ekki grein fyrir
því. Valfrelsi hans var hugar-
burður einn. Trú hans á Guð og
ódauðleika sálar sinnar hégóm-
inn einber.
Þessi vélgenga efnisveröld
var sá heimur, sem efnishyggj-
an taldi mönnum trú um að
væri hinn sanni raunveruleiki,
og færði að því mörg rök og
stór. Ýmsir létu sannfærast af
þeim rökum og afsöluðu sér
bæði Guði, sálu sinni og ódauð-
leikanum. Þó varð efnishyggjan
aldrei alráð í neinu landi. Marg-
ir héldu fast við trú sína á and-
ann og andleg verðmæti, þrátt
fyrir öll hin vísindalegu rök og
staðhæfingar.
IV.
Veilur efnishyggjunnar koma
í Ijós.
Lengi var litið svo á, að hvert
efni væri samsett af frum-
eindum (Atomum), er væru
Kirkjunum hefir verið
endurgreitt söluverð
seldra prestsmata
Með lögum nr. 15 frá 15. maí
1942 var gerð sú breyting á áður
gildandi lögum um sölu á prests-
mötu, að „andvirði prestsmötu,
sem þegar er seld eða seld verð-
ur, renni til kirkna þess presta-
kalls, sem naut hennar áður, og
skiptist jafnt milli þeirra“.
Það hefir reynst allmikið verk
og tafsamt að rannsaka það
hvaða prestsmötur hafa seldar
verið á undanförnum áratug-
um og við hvaða verði, því langt
er um liðið síðan slík sala hófst.
Hefir biskupsskrifstofan fram-
kvæmt þá athugun og sent ráðu-
neytinu skrá um þær seldar
prestsmötur .svo og söluverð
þeirra, er hún fann ábyggilegar
heimildir um. Ennfremur var
lagt til, að ríkið keypti þær möt-
ur, er hvíldu á jörðum í þess
eign, og féllst ráðuneytið á það.
Athugun á þessum málum, og
endurskoðun í ráðuneytinu var
ekki lokið fyrr en nú í vetur og
andvirði hinna seldu mata end-
urgreitt af ríkinu. Jafnframt
hinir óbreytilegu oé ódeililegu
kjarnar alls efnis. Hin svo-
nefndu samsettu efni voru
þannig byggð, að ákveðin tala
ólíkra frumeinda myndaði heild-
ir þær eða eindir, er malakyl
nefndust. Vatn er t. d. þannig
samsett að 2 atom af vatnsefni
og 1 af súrefni sameinast og
verður af eitt molekyl af vatni.
I öðrum efnum gat tala atoma í
hverju molekyli skipt tugum
og jafhvel hundruðum. Allt
studdi þetta mjög kenningu efn-
ishyggjunnar um hinn vélræna
heim, þar sem allt laut órjúf-
andi lögmálum.
En svo kemur byltingin.
Rannsóknartækjunum fleygir
fram. Og þá kemur í ljós að
atomið er ekki frumkjarni efn-
isins heldur heill heimur út af
fyrir sig byggður svonefndum
öreindum hlöðnum positivu og
negativu rafmagni. En hvað er
svo sjálf öreindin? Sumt virðist
benda til, að hún sé nokkurs
konar arða eða korn, aðrar rann-
sóknir virðast sýna, að hún sé
fremur örsmár orkuhnykill, eða
jafnvel aðeins ölduhreifing.
Helzt mætti ætla, ef nokkurt
efni er á annað borð til, að ör-
eindin sameini í sér það hvoru-
tveggja, er nefnist andi og efni,
en andinn sé það, sem stjórnar.
Um þetta segir James Jean í bók
sinni Physice and Philosaphy
(bls. 204) að óþarft sé lengur að
líta á anda og efni sem and-
stæður, er útiloki hvor aðra. Þeg
ar sagt er að öldurnar stjórni
öreindunum, er það í raun og
veru hið sama og að segja, að
andinn stjórni efninu.
Sueinn 'Uíh
ueinn l/ iKinc^ur:
Trú og nútím a
þekking
samþykkti ráðuneytið tillögur
um skiptingu prestsmötufjárins
á milli kirknanna, samkvæmt
áðurgreindum lögum.
Þetta fé var um síðustu ára-
mót lagt inn á reikning við-
komandi kirkna í Hinum alm.
kirkjusjóði og reikningshöldur-
um kirknanna send tilkynning
um hve há upphæð af andvirði
seldrar prestsmötu kæmi í hlut
hverrar kirkju.
Meginþorri allra prestsmata
í landinu er nú seldur og kirkj-
urnar fengið andvirði þeirra.
En söluverð þeirra mata, er síð-
ar verða seldar, mun að sjálf-
sögðu verða lagt inn é reikning
viðkomandi kirkna jafnótt og
það berst biskupsskrifstofunni.
S. V.
Húsameistari ríkisins
kominn heim
Húsameistari ríkisins, pró-
fessor Guðjón Samúelsson er
nýlega kominn heim frá Sví-
þjóð. Dvaldi hann þar um hríð
í því skyni að leita sér lækninga.
Var hann tvívegis skorinn upp
og virðist hafa fengið bót meina
sinna. Kirkjublaðið fagnar því
að hann er heim komin. Er það
ósk vor að hans megi sem lengst
njóta við í mikilvægu og merki-
legu starfi sínu.
Annað atriði kom einnig í ljós,
er kollvarpaði gjörsamlega sjálf
um grundvelli efnishyggjunnar,
hinni vélgengu og lögmáls-
bundnu veröld. Það hefir ekki
tekist að sýna fram á það, þrátt
fyrir ýtrustu rannsóknir, að ör-
eindirnar hagi sér yfirleitt í
samræmi við nokkur -lögmál,
sem fundin hafa verið, þær fara
sinna ferða, að því er virðist,
eins og þeim sjálfum sýnist, en
hegða sér engan veginn eins og
hjól í vél. Og þar með fauk
grundvöllurinn undir sjálfu or-
sakalögmálinu út í veður og
vind.
Úr því ekki er hægt að reiða
sig á öreindirnar, hvernig þær
hagi sér, þá er atominu ekki
heldur treystandi, því það er
ekki annað en samsafn þessara
dutlungafullu öreinda. Á strang
vísindalegan hátt er því ekki
lengur hægt að fullyrða um það,
að ákveðin orsök hafi í för með
sér ákveðnar afleiðingar. Slíkt
er undir öreindunum komið, en
enginn þekkir þær til hlýtar eða
veit hvaða dutlungar geta í þær
dottið.
Eigi að sýður sýnir reynslan,
að orsaka lögmálið gildir yfir-
leitt í hinum sýnilega heimi. En
það er ekki hægt að fullyrða, að
það gildi undantekningarlaust,
vegna þess að kenning efnis-
hyggjunnar um vélgenga ver-
öld hefir ekki staðist próf
reynslúnnar.
En hvernig á þá að gera sér
grein, fyrir þeirri röð og reglu,
sem ríkja virðist í náttúrunni?
Reynslan sýnir, að orsakalög-
Framh. á 4. síðu.