Kirkjublaðið - 04.07.1949, Side 2
2
KIRKJUBLAÐIÐ
kemur út hálfsmánaðarlega, ca.
25 blöð á ári. Auk þess vandað og
stórt jólahefti. Verð kr. 15.00 árg.
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Sigurgeir Sigurðsson, biskup.
Utanáskrift blaðsins er: '
KIRKJU B’LA’ÐIÐ
Reykjavík. — Pósthólf 532.
Tekið á móti áskrifendum í síma
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Guðsþjónustur í
Strandarkirkju
og á Þingvöllum
Sú nýbreytni hefir verið tek-
in upp, að tilhlutan biskups að
flytja messur í Strandarkirkju
í Selvogi á hverjum sunnudegi
yfir sumarmánuðina fram til 1.
september. Guðsþjónusta hefst
kl. 2 e. hád. hvern helgan dag.
Yfir Strandarkirkju hefir um
aldir hvílt sérstök helgi. Þessi
afskekkta litla kirkja úti við
hafið, sem stendur fjarri bæj-
um á grænum hól í gróðurlausu
og blásnu hrauni, hefir ekki að
eins staðið af sér storma ald-
anna, heldur orðið þjóðinn með
sérstökum hætti tákn um mátt
og miskunn Guðs. Þúsundir
manna hafa heitið, og heita ár-
lega á þessa kirkju til hjálpar
í örðugleikum, vanda og raun-
um, og sjálf reynslan sannfær-
ir þá um, að þessi fátæklega
kirkja sé farvegur hulins hjálp-
andi máttar.
Nú er Selvogurinn kominn í
samband við akvegakerfi lands-
ins og verið er að vinna að því
að leggja braut frá þjóðvegin-
um að kirkjunni. Þetta hefir
orðið til þess, að mikill fjöldi
ferðamanna kemur daglega til
þess að skoða kirkjuna, og suma
daga hafa gestirnir skipt mörg-
um hundruðum. Þess vegna,
meðal annars, þótti sjálfsagt og
rétt, að fluttar yrðu í kirkjunni
guðsþjónustur hvern helgan dag
að sumrinu, svo að gestum og
sóknarfólki gæfist kostur á að
hlusta á tíðir í þessu helga húsi.
Þessar guðsþjónustur hófust
með því, að biskup landsins
flutti þar messu sunnudaginn
19. júní.
Ég hefi ástæðu til að ætla, að
mjög margir muni fagna því,
að þessi siður hefir verið upp
tekinn. Það er ofur eðlilegt að
ýmsir kjósi og beinlínis þrái,
að mega eiga stund lofsöngs og
tilbeiðslu, bæna og þakka í þess-
ari litlu kirkju, sem svo mátt-
ug helgi er við tengd í hjörtum
þjóðarinnar.
En í þessu sambandi kemur mér
einnig í hug önnur kirkja, sem
stendur á stað, sem allri þjóð-
inni er heilög jörð. Það er Þing-
vallakirkja. Væri ekki vel til
fallið, að einnig þar væri klukk-
um hringt hvern helgan dag, um
Aðalfundur
Prestafélags Islands
Aðalfundur Prestafélags Is-
lands, hinn 31. í röðinni, var
haldinn mánudaginn 20. júní
síðastliðinn. Hófst hann með
morgunbænum í kapellu Háskól
ans, og annaðist þær sr. Hall-
dór Jónsson á Reynivöllum.
Fundurinn var síðan haldinn
í hátíðasal Háskólans. Formað-
ur félagsins, próf. Ásmundur
Guðmundsson, setti fundinn og
tilnefndi sem fundarritara þá
sr. Árna Sigurðsson, sr. Pétur
Sigurgeirsson og sr. Yngva
Þóri Árnason.
Því næst flutti formaður á-
varp til fundarmanna. Beindi
hann fyrst nokkrum orðum til
dr. Sigurgeirs Sigurðssonar
biskups, í tilefni af því, að
næsta laugardag átti hann 10
ára vígsluafmæli sem biskup
yfir Islandi. Þakkaði hann hon-
um störf hans í nafni félagsins,
samfagnaði honum og bað hon-
um blessunar Guðs. Minntist
hann á baráttu biskups fyrir
málefnum prestastéttarinnar og
kirkjunnar í heild, og hvernig
hann hefði reynzt prestum sem
bróðir og vinur í andlegum efn-
um. Tóku fundarmenn undir
heillaóskir hans með því að rísa
úr sætum.
Þá minntist hann tveggja lát-
inna félagsbræðra, þeirra sr.
Einars Thorlacius præp.hon
frá Saurbæ og sr. Vigfúsar
Þórðarsonar frá Eydölum.
Síðan ávarpaði formaður
fundarmenn, benti á að höfuð-
hlutverk kirkjunnar nú væri að
bera friðarorð manna og flokka
í millum og auka þjóðinni þrótt,
siðferðilega festu og trú, í sam-
hljóðan við fagnaðarerindi Jesú
Krists. Frumtónn kristindóms-
ins væri kærleikur Krists og
Guðs, og þeim kærleika yrðu
prestarnir fyrst og fremst að
gefast á vald, ef kirkjan ætti að
geta leyst hlutverk sitt af hendi
með þjóðinni.
„Þótt vér höfum ólíkar skoð-
anir“, sagði prófessorinn að
lokum, „og deilum fast á það,
sem við teljum vera rangt eða
óhæfilegt, þá getur það allt orð-
ið til góðs, sé það í kærleika
gjört. Það er vel, að aðdynjandi
sterkviðris hreinsi andrúms-
loftið, ef eldtungur kærleikans
fylgja, er mæla máli hans, sem
allir skilja. Það getur leitt til
dýpra og fylh-a skilnings —
einingar og bræðralags að baki
ólíkum skoðunum.
Hvað mun gjöra oss viðskila
við kærleika Krists ? Látum þau
orð lýsa okkur á þessum fundi
og á komandi tímum.
Þá verður kirkjan þjóðinni
það, sem mörg kirkjuhús henn-
ar voru vegferðamönnum áður
— viti, er bregður ljóma á leið
hennar. Þá er engu að kvíða,
hvað sem framundan er. Þá
blánar fyrir handan mistur
Skuldar fyrirheitið landi —
Guðs ríki.
Heilir til starfa í nafni
Krists“.
Formaður þakkaði því næst
félagsmönnum vinsemd og gjaf-
ir, er hann hafði hlotið frá þeim
í tilefni af sextugs afmæli hans
á liðnu hausti.
Formaður gaf skýrslu um
störf félagsstjórnarinnar frá
síðasta aðalfundi. Kirkjuritið
hefir komið út sem fyrri, og
útbreiðsla þess aukizt nokkuð á
liðnu ári. Eftir að hafa leitað
^ til presta um allt land um þátt-
töku í samningu kennslubókar
í kristnum fræðum fyrir gagn-
fræðaskóla, hefur stjórn Presta-
félagsins falið sr. Árelíusi Ní-
sumarmánuðina að . minnsta
kosti, messa flutt og lofgjörð
færð lifanda Guði? Mér virðist
að á meðan ekki er skipaður
prestur á Þingvöllum eins og
landslög gera ráð fyrir, ætti
ríkisstjórnin í samráði við bisk-
up að beita sér fyrir því, að
slíkum guðsþjónustum yrði
komið þar á sumarmánuðina.
Ég trúi ekki öðru, en æði marg-
ir af þeim mikla fjölda gesta,
sem þangað flykkjast um
hverja helgi, mundu kjósa að
hlýða messu í Þingvallakirkju.
Það kynni og einnig að hjálpa
ýmsum gestum þar til þess að
finna skýrar til þess og gjöra
sér ljósari grein fyrir því, að
staðurinn, sem þeir standa þar
á er heilög jörð. En á því vii'ð-
ist, því miður, vera nokkur mis-
brestur. S. V.
elssyni að semja slíka bók und-
ir yfirumsjón stjórnar Presta-
félagsins, en Ingimar Jóhanns-
son mun verða með í ráðum af
hálfu kennarastéttarinnar.
Þá gaf formaður upplýsingar
um afskipti félagsstjórnarinnar
af framlagi til byggingar prests
setra, launakjörum opinberra
starfsmanna o. fl.
Er formaður hafði lokið
, skýrslu sinni, voru kosnir í alls-
i herjarnefnd til að athuga til-
! lögur, er fundinum bærust, þess-
. ir prestar: Sr. Páll Þorleifsson,
sr. Helgi Konráðsson, sr. Frið-
rik A. Friðriksson, sr. Þorgrím-
ur V. Sigurðsson og sr. Einar
Guðnason.
Þá las formaður reikninga
félagsins, er voru samþykktir í
einu hljóði.
Björn Magnússon próf. lýsti
því næst frumvarpi til laga
um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna, sem væntan
lega verður lagt fyrir næsta Al-
þingi.
Að loknu hléi til hádegisverð-
ar var tekið fyrir aðalmál fund-
arins: Nauðsyn á fræðslu presta
um sálsýki. Höfðu framsögu í
því máli þeir sr. Jakob Jónsson
og dr. Helgi Tómasson yfir-
læknir. Talaði sr. Jakob út frá
starfi og reynslu prestsins, en
dr. Helgi frá sjónarmiði vísind-
anna og læknisstarfsins. Taldi
dr. Helgi, að nauðsynlegt væri
að prestar fengju nokkra til-
sögn í sálsýkisfræði, bæði fræði-
lega og verklega, og tjáði sig
fúsan til samstarfs við presta-
stéttina og guðfræðideild Há-
skólans um þetta efni. Báðir
ræðumenn töldu, að samvinna
milli presta og lækna á þessu
; sviði væri bæði eðlileg og æski-
leg, og líkleg til mikils gagns.
Urðu allmiklar umræður um
þetta mál. Var í sambandi við
það samþykkt svohljóðandi til-
laga:
„Aðalfundur Prestafélags Is-
lands árið 1949, felur stjórn fé-
lagsins að taka til nánari athug-
unar þær tillögur, er fram komu
í erindi dr. Helga Tómassonar
um bóklega og hagnýta fræðslu
prestaefna í sálsýkisfræði, og
bera þær fram við guðfræði-
deild Háskólans til fram-
kvæmda“.
Próf. Ásmundur Guðmunds-
son flutti guðfræðilegt erindi,
kafla úr bók, sem hann er að
rita og nefnist: Þættir úr ævi
Jesú Krists. Talaði hann um
fæðingu Jesú, fyrstu bernsku
og uppvaxtarár.
Samþykkt var að kjósa þrjá
menn til að greiða fyrir heim-
sóknum kennimanna frá Norð-
urlöndum til íslands til efling-
ar gagnkvæmri viðkynningu.
Þessir voru kosnir:
Sr. Jón Þorvarðsson prófast-
ur, sr. Sigurbjörn Á. Gíslason
og sr. Garðar Svavarsson.
Tveir menn áttu að ganga úr
stjórn félagsins, þeir próf. Ás-
mundur Guðmundsson og sr.
Sveinbjörn Högnason prófast-
ur, og voru þeir báðir endur-
kjörnir í einu hljóði. Varamenn
voru og endurkjörnir sam-
hljóða þeir sr. Hálfdán Helga-
son prófastur og sr. Sigurbjörn
Einarsson dósent. Ennfremur
endurskoðendur, sr. Þorsteinn
Briem præp.hon og sr. Friðrik
Hallgrímsson præp.hon.
Alls voru mættir á fundinum
46 félagsmenn.
Fundinum lauk með kvöld-
bænum í kapellunni, og stýrði
þeim sr. Ölafur Ólafsson á
Kvennabrekku.
Um kvöldið sátu fundarmenn
kvöldboð heima hjá formanni
félagsins, próf. Ásmundi Guð-
mundssyni, og frú hans, og nutu
þar samvista í góðum fagnaði.
B. M.
Séra Björn IVIagnússon
skipaður prófessor
Séra Björn Magnússon dócent
hefir hinn 15. júní síðastl. ver-
ið skipaður prófessor við guð-
fræðideild Háskólans, frá 1.
júní að telja.
KVEÐJA
til Prestastefnu íslands
Hér birtist kveðjuávarp það, er pró-
fessor Dr. Richard Beck, sendi Presta-
stefnunni, en hann er, sem kunnugt
er, eigi aðeins einn af áhugasömustu
unnendum íslenzkrar menningar vest-
an hafsins, heldur og einlægur vinur
kirkjunnar.
Hratt rennur elfur tímans;
dagarnir hverfa hver eftir ann-
an líkt og dropar í haf eilífðar-
innar.
Og þetta óðfluga hraðstreymi
tímans verður mér venju frem-
ur, ofarlega í huga, þegar ég
geng á sjónarhól og minnist
þess, að nú eru liðin fimm ár
síðan ég gisti ættjörðina sigur-
sumar hennar, þegar lýðveldið
var endurreist.
Meðal allra hugþekkustu
minninga minna frá því sögu-
ríka sumri, er minningin um
komu mína á hina fjölsóttu og
virðulegu Prestastefnu ykkar
það ár, minningin um ljúfar
samverustundirnar með ykkur,
hinar innilegu og bróðurlegu
viðtökur, sem ég, leikmaðurinn,
átti að fagna af ykkar hálfu.
Því fannst mér einnig, að ekki
mætti minna vera, en ég þakk-
aði ykkur fyrir síðast með því
að senda ykkur kveðju mína á
þessu fimm ára afmæli lýð-
veldisins.
Og hverjum þeim, sem nokk-
uð þekkir til sögu Islands, og
les þá sögu gegnum sjónargler
sanngirni og réttdæmis, hlýtur
að vera það ljóst, hversu grund-
vallandi áhrifamáttur og heilla-
ríkur íslenzk kirkja hefir verið
í menningarlífi þjóðarinnar á
í liðinni tíð. Sama hlutvei'ki
^ gegnir hún í okkar umbrota-
miklu samtíð, nema fremur sé,
!og eigi er henni minna eða ó-
| verðugra hlutskipti ætlað á kom
andi árum. I anda djúpstæðrar
j virðingar og þakklætis sendi ég
kirkju Islands þess vegna
kveðju mína á þessum tímamót-
um hins unga íslenzka lýðveldis.
Minnugur er ég þess einnig,
að herra biskupinn á um þessar
mundir 10 ára vígslu- og starfs-
afmæli í sínum veglega embætt-
issessi. Honum sendi ég því sér-
staka kveðju, hamingju- og
blessunaróskir, með þökk fyrir
frábæra vinsemd og ógleyman-
legar samverustundir beggja
megin hafsins. Og þó að ég tali
hér aðeins í eigin nafni, þá get
tég fullvissað hann og ykkur
aðra kirkjunnar menn um það,
að margir eru þeir landarnir
vestan hafsins, sem taka heilum
huga undir þá kveðju og bless-
unaróskirnar honum til handa.
Bið ég svo kristni landsins
og kirkju blessunar með þess-
um orðum sálmaskáldsins::
„Gef að blómgist, Guð, þín
kirkja,
Guð oss alla leið og styð“.
Richard Beck.