Kirkjublaðið - 29.08.1949, Side 3

Kirkjublaðið - 29.08.1949, Side 3
KIRKJUBLAÐIÐ 3 Séra Þorstemn Briem In memoriam Séra Þorsteinn Briem fyri’v. prestur í Garðaprestakalli á Akranesi og prófastur í Boi’g- arfjarðai'prófastsdæmi andaðist í Reykjavík 16. ágúst eftir langa vanheilsu. Hann var þjóðkunn- ur maður innan kirkju og utan. Ekkert mannlegt lét hann sér óviðkomandi og vildi bæta úr hverju böli. Miklir hæfileikar og vitsmunir, lærdómur og hyggindi var honum gefið í ó- venju mæli, en um fram allt gaf Guð honum hina dýrmætustu gjöf: viðkvæmt hjarta. Þess- vegna var hann einn áhrifa- ríkasti predikari sinnár sam- tíðar hér á landi. Áhrifa hans gætir á mai'gvíslegum sviðum í athafna- og fi'amkvæmdalífi þjóðarinnar, þar sem hann varð mikilsvirtur og áhrifaríkur full- trúi hennar á Alþingi og í i'áð- herrastól. Einnig gætti hann fjölmargra trúnaðarstarfa sem öll fóru honum svo prýðilega úr hendi, að betur var ekki á kos- ið. — Heill og framfarir þjóð- ar sinnar bar hann heitt fyrir brjósti, svo innilega unni hann Islandi, íslenzkri þjóð og tungu. Rit hans og í’æður voru í hátíða- skrúða íslenzkunnai’, sem lék honum á vörum, „grætandi mál á grátins tungu, gleðimál í ljúf- um kjörum“. — Það var un- un að lesa allt sem hann skrif- aði, þar var andríki orðsnilld og ljóðræn fegurð og þó hófst allt í hærra veldi við að hlusta á hann flytja orðið. Þar var hjarta hans með, lofgjörð og til- beiðsla, sorg og gleði, trú og kærleikur. I rödd hans ómaði þetta allt. Þessvegna fannst öll- um að hann talaði til þeii’ra. I hverri predikun hans var eitt- hvað fyrir alla og oftast varð það ógleymanlegt — talað frá hjarta til hjarta. — Hann hefði átt að njóta betri heilsu og lifa lengur hér meðal oss. Okkar fámenna þjóð, sem hef- ur svo mikla þörf fyrir starf og leiðsögn sinna beztu manna mátti ekki við því að missa hann frá störfum. Árið 1946 varð hann að láta af embætti. Þá var hann rúmlega sextugur, f. 3. júlí 1885 að Fi'ostastöðum í Skagafirði og voru foreldrar hans Ólafur Briem síðar bóndi að Álfgeirsvöllum og alþingis- maður Skagfirðinga og Hall- dóra Pétursdóttir, kona hans. Sr. Þorsteinn tók stúdents- pi’óf 1905 og candidatspróf í guðfræði 1908. Ái'ið eftir að hann lauk candidatsprófi stund- aði hann framhaldsnám ei’lend- is og kynnti sér kii'kjulega stai’f semi á Norðuxdöndum. 10. júlí síðastl. voru fjörutíu ár liðin fi’á prestvígslu hans, og þjónað í 4 pi’estaköllum: Garðaprestakalli á Álftanesi, Grundarþingum í Eyjafirði, Mosfellsprestakalli í Grímsnesi og Garðapi'estakalli á Akranesi, en þar lengst eða í 25 ár. Hann var tvíkvæntur og lifir hann síðari kona hans, Emilía Pét-, ursdóttir Guðjohnsen, en fyrri kona hans Valgerður Lái'us- dóttir Halldórssonar fríkii’kju- prests andaðist 1924. Dætur þeirra fjórar eru búsettar tvær í Reykjavík, ein í Svíþjóð og ein í Noregi. Séra Þorsteinn átti jafnan fagurt heimili. yfir því var göfugur andi og tign kristi- legs heimilislífs. Vígsla séra Þoi’steins var vígsla til þjónustu við Jesúm Ki’ist, frelsarann, konunginn, hinn eilífa Guðs son. Hann var höndlaður af Kristi, með hon- um vildi hann lifa og deyja í hans nafni. Innan kirkju ís- lands gleymist aklrei vitnis- bm-ður séi-a Þorsteins, svo heit- ur var hann, sannur og einlæg- ur. Öll prestsþjónusta hans var fögur og hrífandi, svo að af bar; hvert prestsverk vann hann af frábærri alúð og inni- leik, vandvii’kni og skyldu- rækni. Þar var hann ógleyman- leg fyrii’mynd. Gott hefði það verið og holít fyrir unga guð- fi-æðikandidata^ sem hugðu til prestsþjónustu að vera með honum um skeið og öðlast und- irbúning til prestsstarfa. Síðari ár ævi sinnar vann hann að miklu verki um íslenzkan sálma- kveðskap, og er sái't til þess að hugsa að hann fékk ekki lokið því. Séi'a Þorsteinn var ljúfmann- legur og innilegur í allri fram- komu, svipurinn fríður og bjart ur, augun djúp og fögur með einkennilegum ljóma, handtak- ið hlýtt, þétt og ti’aust. Hann var virðulegur í allri fram- göngu og vakti eftirtekt hvar sem hann fór. Kii’kjan og þjóðin eru fátæk- ari við fráfall hans. Guð gefi oss marga slíka menn. — Guð blessi minningu hans. Eiríkur Brynjólfsson. ------------------ Vegleg minningargjöf Hinn 6. júní síðastl. á annan dag Hvítasunnu, bai’st Kálfa- tjarnai’kii’kju vegleg minning- ai’gjöf, þjónustubikai’ar (sér- bikarar) úr silfri haglega gerð- ir, og voi’u þöir notaðir í fyi-sta sinn þann sama dag við altaris- göngu að aflokinni fei’mingu. Sóknarpresturinn séra Garð- ar Þoi’steinsson minntist gjaf- arinnar fi’á altari kii’kjunnar með þakklæti frá kirkju og söfnuði, ’ til gefandanna, sem eru systkinin Sigui’ður, Jónína, Guðrún, Margrét, Magnús og Vilboi’g fi’á Innri Ásláksstöðum á Vatnsleysusti’önd og er gjöfin til minningar um foi’eldra þeiri’a Ingibjörgu Jónsdóttur og Magnús Magnússon. Færum við fyrir hönd kii'kju og safnaðar gefendunum, okkar innilegasta þakklæti fyrir kær- komna gjöf og alla velvild og hlýhug til Kálfatjarnarkirkju. Sóknarnefndin. ------3-Stí*------ Minningarathöfn í Skútustaöakirkju Laugardaginn 9. júlí síðastl. var haldin minningarathöfn í Skútustaðakii-kju í tilefni þess að þann dag voru liðin 100 ár frá fæðingu Ái-na próf. Jóns- sonar á Skútustöðum, en hann var fæddur á Litluströnd í Mý- vatnssveit 9. júlí 1849. Ekkja hans, frú Auður Gísla- dóttir, börn þeiri-a og tengda- börn efndu til þessarar minn- ingarathafnar, og var þar sam- ankomið full tvö hundruð manns, eða svo mai’gt sem kirkjan rúmaði. Samkoman hófst kl. 2 með messugjörð, sem sr. Gunnar Ániason á Æsustöðum fram- kvæmdi, sonur sr. Ái-na heit- ins, og var hún hin virðuleg- asta. Kirkjan var skreytt blómum. Kirkjukór Skútustaðakirkju annaðist sönginn. I lok messugjörðarinnar af- henti sr. Gunnar kirkjunni að gjöf, frá frú Auði og börnum hennar, tvo þríarmaða ljósa- stjaka úr silfri — en logað hafði á þeim á altarinu við guðsþjón- ustuna — til minningar um sr. Árna og prestsþjónustu hans við Skútustaðakirkju, en hann annaðist hana í 25 ár — frá 1888 til 1913. Eru stjakarnir áleti-aðir í hvers minningu þeir eru gefnir og frá hverjum — og eru hinir fegui’stu. Frú Hólmfríður Pétursdóttir á Arnax’vatni þakkaði fyrir hönd safnaðarins þessa veglegu gjöf og þann hlýhug og rækt- arsemi sem hún væri sprottin af. Að aflokinni messugjörð var lagður blómsveigur — knýttur blómum úr mývetnskri mold — á leiði sr. Árna sál — en kii’kju- kórinn söng erindið: „Fagra dýra móðir mín“. Þá buðu aðstandendur öllum gestum til samkomuhúss og voru þar framreiddar rausnar- legar veitingar. Er menn höfðu þegið þær, var aftur gengið til kii'kju, voru þar fluttar max’gar í'æður, en stuttar, og sungið á milli — ýmist almennur söngui’, eða Karlakór Mývatnssveitar. Rifj- aði eldra fólkið þar upp minn- ingar sínar frá starfsárum sr. Árna og þeirra hjóna, en nú ei’u liðin 36 ár, frá því þau fluttu burtu, en 33 ár frá andláti hans. Kom glöggt í Ijós hve sterk ítok þau áttu í huga þess og urðu margir til að minnast (fermingarundirbúnings undir handleiðslu sr. Árna, en hann var með þeim ágætum, sem 'aldi'ei mun gleymast þeim er kynntust. Síðast töluðu þau sr. Gunnar Árnas5n, frú Auður Gísladóttir og Vilhjálmur Þ. Gíslason. Að lokum sungu allir: „Fað- ir andanna“. Veður var ágætt og mun dag- urinn ógleymanlegur öllum þeim, sem þar voru staddir. i. .... >«3- ---- Ferð um norður Múlasýslu á vegum Kirkjuráðs Séra Magnús Guðmundsson í Ólafsvík og Dr. Árni Árnason, héraðslæknir, eru nýlega komn- ir heim úr rúmlega hálfsmánað- ar ferð um Norður-Múlasýslu. Var ferð þessi farin að tilhlut- an Kirkjuráðs og kostuð af Prestakallasjóði. Lögðu þeir af stað í för þessa hinn 11. júlí og komu heim aftur 30. s. mán. Alls héldu þeir samkomu á 11 kirkjustöðum. Hófust þær með guðsþjónustu, er séra Magnús flutti, en að henni lokinni flutti Dr. Árni Árnason erindi um trúarleg og siðfræðileg efni. Að lokum talaði séra Magnús nokk- ur hvatningar- og árnaðarorð til safnaðanna, en sóknarprest- arnir þökkuðu fyrir sína hönd og safnaðarins. Aðsóknin var mjög misjöfn, enda heyannir víða að hefjast, og fólk bundið við margskonar annir. Þó telja þeir félagax’nii', að sóknin hafi mátt kallast mjög sæmileg, eftir atvikum og víða góð, einkum þó á útisam- komu á hinu nýja íþi’óttasvæði, er Samband ungmennafélaga Austurlands hefur komið sér upp á Eiðum. í ítai’legri skýrslu um ferð þessa, er séra Magnús hefur sent Kirkjublaðinu, kemst hann að lokum svo aðorði: „Þegar ég nú hugsa um ferð- ina eftir að vera kominn heim, þá spyr ég mig: Er hægt að vonast eftir nokkrum ái’angri af slíki’i fei’ð? Ég finn, að þeiri’i spurningu get ég ekki svarað. Árangurinn fel ég honum, sem ávöxtin gefur. Ég vil enda þessi orð mín með því að þakka öllum þeim, sem við heimsóttum, ágætar móttök- ur. Ég þakka öllum sóknarprest- um í Norður-Múlasýslu þeirra Séra R. Magnús Jónsson hálfníræöur Séra Run. Magnús Jónsson, ....... Hinn 18. þ. mán. átti hann 85 ára afmæli. Hann var px-est- ur á Stað í Aðalvík í 29 ár. Þetta er eitt af ei’fiðustu presta- köllum landsins og afskekt, eins og allir vita. En hann undi vel að Stað. Hann sagði við mig, er hann fékk, vegna lasleika, lausn frá störfum 1934: „Ef ég væi’i núna ungur kandidat, mundi ég ekki skoða huga minn um að sækja um Stað í Aðalvík. Hvergi er eins fi’jálslegt og gott að vei'a. Hvei’gi er fegui'ra". Séi-a Magnús er glæsilega gáf- aður maður og vinur vina sinna. Nú er hinn karlmannlegi og sterki rnaður kominn á kné vegna fangabragða ellinnar. Hann hefur ekki lengur fótavist, en hefur um alllangt skeið dval- ið í Sjúki’ahúsi Isafjarðar. Kirkjublaðið sendir honum blessunai'óskir á ævikvöldi hans. S. S. miklu fyi’ii’höfn fyrir okkui’, fyrir allt það, sem þeir lögðu á sig svo að ferð okkar mætti tak- ast vel og góður árangur af henni vei’ða. Einkum þakka ég prófastinum á Hofi hans miklu og góðu fyrirgreiðslu, en hann skipulagði ferð okkar og veitti okkur mai’gháttaða aðstoð. Ég þakka - söfnuðunum og safnaðarfólkinu í Norður-Múla- sýslu, þar sem við komum. Ég þakka þeim mörgu, sem lögðu 1 það á sig að sækja guðshús til okkar um hábjargræðistímann, öllum, sem sýndu og sýna á- huga á málefnum kirkju og ki’istindóms. Náðin Drottins voi’s Jesú Krists sé með þeim öllum. En umfram allt þakka ég hon- um, sem leiddi okkur og bless- aði í allri fei’ðinni“. Óveittu prestaköllin Athygli skal vakin á því, að umsóknarfi'estur um Sauðlauks- dalsprestakall og Hólsprestakall í Bolungarvík, er auglýst voru í síðasta blaði, er útrunninn hinn 1. október næstkomandi.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.