Kirkjublaðið - 12.09.1949, Page 4

Kirkjublaðið - 12.09.1949, Page 4
Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, og gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna. (Sálm. 105, 1. v.). Mánudagmn 12. sept. 1949. Verið fullkomnir, áminnið hvor annan, verið samhuga, ver- ið friðsamir. (II. Kor. 12, 11). Gullbrúðkaupsk væ ði Hinn 30. júní síðastl. áttu gullbrúðkaup hin merku og vinsælu hjón, séra Stefán B. Kristinsson f. sóknarprestur að Völlum í Svarfaðardal og prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi og kona hans frú Sólveig Pétursdóttir (f. Eggerz) en þau hjón eru nú búsett í Hrísey. Þenna dag heimsóttu þau margir vinir og góðkunningjar og flutti þá Valdimar Snævarr f. skólastjóri þeim kvæði það, er hér fer á eftir: Hljóðs bið ég yður, heyrendur mínir. Slá vil ég slakan streng veikróma. Mæra vil ég milding munarkæran, leyfa ljóðstöfum lofsæla frú. Þá var ég ungur á aldarmorgni, örsnauður drengur á Austurlandi. Hart var í ári, hart var í búi. Leiðir lokaðar lítilmagna. Mér er í minni matarstritið, þrotlaust erfiði, þröngur kostur. Margur maður mun þess ei hafa bætur beðið að banadægri. Lokuð var leið að lindum mennta meðalmönnum á morgni aldar. Brann þó í brjósti býsna mörgum ljúfsár löngun til lærdómsframa. Aðeins auðnaðist afreksmönnum að ná til linda latneskra fræða. Herðar og höfuð hátt þeir báru yfir fjöldann, er einskis naut. Settu þeir svip á sveit og staði lyftu læknisdómi, lærðu skóla, sungu drottni dýrð, — dunaði kór — höfðu forystu í félagsmálum. Einn hinn ítrasta allra þeirra hyllum vér í dag hjartans glaðir, — þann, er grös græddi, guðsvilja kenndi, söng drottni dýrð í dal Svörfuðar. Lágt bar þá Velli, lutu burstir, er þangað héldu hjónin ungu. Hikað var ei, en hart var sótt. Gjörðist brátt garður frægur. Sótt var í Velli senn hvað leið holl ráð og heil til húsfreyjunnar. Lagði hún jafnan líknandi hönd yfir manna mein, þótt mæddist sjálf. Hátt bar Velli, er hús fylltust glöðum gestum á góðum degi. Hátt var hlegið, hærra sungið, engum ofaukið, engum gleymt. Ljúft er að minnast liðinna stunda. Gott er að hittast á heillastundu. Gaman að njóta gullbrúðkaupsdags ykkar ágætu, ástsælu hjón. Margt er að þakka á mörgum sviðum. Góð var kynning á gömlu Völlum. Lengi mun lifa í lýða minni orðstírr frábærra öðlingshjóna. Mér varð reikað í morgun snemma um Vallatún vafið döggvum. Sýn mér gaf: Ég sá hvar risu blóm af beði. — báðu fyrir kveðju. Heyrði ég rétt? Hringdu ei klukkur? Ómar ei kirkjan af ástar kveðjum? Kór kvað við og hvelfdir bogar: Heill sé honum hirðinum trúa! Heill hvíli yfir heimili ykkar, elska guðs. ástúð vina, glaður geisli gæfusólar, heiðbjarmi skær hnígandi dags. Slaknar strengur, slætti skal hætt. Kveðjum er skilað, kvæði lýkur. Þökk fyrir ótal yndisstundir. Guð blessi ykkur, göfugu hjón! Ari Sfefánsson sjötugur Ari Stefánsson meðhjálpari við Hallgrímskirkju í Reykja- vík varð sjötugur 18. ágúst síð- astliðinn. Hann er fæddur á Þverhamri í Breiðdal, en bjó lengst af að Laufási í Kirkju- bólsþorpi í Stöðvarfirði, unz hann fluttizt til Reykjavíkur 1928. Á Laufási stundaði Ari sjó- inn af miklu kappi, en lagði auk þess fyrir sig smíðar, og eftir að hann kom til Reykjavíkur, vann hann í þjónustu pósthúss- ins við smíðar og eftirlit. — Þegar farið var að messa í Hall- grímssókn, urðum við svo heppnir að fá Ara fyrir með- hjálpara. Hann hafði áður ver- ið meðhjálpari austan lands, og var kunnur að því að vera ein- lægur áhugamaður um kirkju- mál. Það hefur komið í ljós, að Ari er ekki aðeins góður með- hjálpari „í kórdyrunum“, held- ur er öll hans umgengni um kirkjuna og umsjá hennar með sérstökum ágætum. Hreinlæti, reglusemi og stundvísi ber vott um það, að í meðvitund með- hjálparans eru það helgir dóm- ar, sem hann hefur umsjá með. Ari er ákveðinn og einlægur trúmaður, en eins og flestir al- vörumenn, hefur hann næmt auga fyrir því, sem broslegt er. Ari meðhjálpari á allmikið safn af kýmnisögum, en safnar fleiru Hann er náttúruskoðari, sem sérstaklega hefur lagt sig eftir að safna fallegum og sérkenni- legum og sjaldgæfum steinum. Kemur einnig þar fram eftir- tektargáfa hans og smekkvísi. Bókamaður er Ari, og ann mjög öllum fróðleik. Hann lítur á góðar bækur sem góða vini. 1 samkvæmum og annars staðar þar sem gleði er á ferðum, er Ari hrókur alls fagnaðar, og tekur þátt í dansinum með lífs- fjöri hins síunga manns. Þar sem fólk safnast að hljóðfæri til söngs, kann Ari vel við sig. Sjálfur er hann söngvinn og heimili hans hefur jafnan verið gleðinnar staður. Kona Ara heitir Marta Jóns- dóttir, og hafa þau hjónin verið samhent í öllu sínu starfi. — Þau eiga heima á Vífilsgötu 21 hér í bæ, og njóta þeirrar á- nægju á efri árum sínum, að hafa dætur sínar í nágrenni við sig, og - margir Austfirðingar halda áfram að njóta hinnar gömlu Laufás-gestrisni hjá Ara og Mörtu og dætrum þeirra. Þessi grein um minn góða vin og samverkamann verður ekki lengri, enda er jeg ekki viss um, að hann hafi gott af meiru í einu. — En ég vil að lokum þakka honum og konu hans allt gott, sem ég og mitt Hátíð í Sunnudaginn 21. ágúst var mannmargt í Skálholti. Er sjálfsagt langt síðan annar eins mannfjöldi hefur verið þar saman kominn til hátíðarhalda. Skálholtsfélagið gekkst fyrir þessari hátíð og er áformað, að efnt verði til sams konar til- breytni í Skálholti á hverju sumri eftirleiðis. Eins og kunnugt er, vinnur Skálholtsfélagið að kirkjulegri endurreisn í Skálholti. Þeix’ri meðvitund vex styi'kur með þjóðinni, að ekki verði lengur við það unað, að hinn foi’ni kii’kjulegi og menningarlegi höfuðstaður landsins sé í van- hirðu og smánai’legri niðurlæg- ingu. Öllum landslýð er kunn- ugt, hvernig Skálholt var í’eitt og rúið, um leið og biskupsstóll- inn var lagður þar niður sam- kvæmt erlendu valdboði á ein- hvei’ju dapui'legasta skeiði í sögu landsins. Dómkirkjan var rifin, gripum hennar sundrað og öðrum eignum. Eftir var af- ræktur þjóðai’helgidómur, eins og sár í hjartastað lands og þjóðar. Öll saga Skálholts síðan ber vott um niðurníðslu og ræktarleysi. Loks komst stað- urinn í opinbera eigu fyrir nokkrum árum. En af opin- berri hálfu hefur ekkert verið gert á þá átt að bæta fyrir það, sem miður hefur farið. Loks var samþykkt á Alþingi að reisa búnaðai’skóla í Skálholti. Þótt gott eitt sé um slíka stofnun að segja út af fyrir sig, geta landsmenn ekki séð, að með þess konar frakvæmdum sé Skál holt endurreist í raun og veru né helgustu minningar þjóðai’- innar x-æktar og virtar á við- unandi liátt. Þeir telja, að Skál- holt verði ekki reist úr rústum með öðru móti en því, að það fái hlutverk að nýju í kix-kjulífi landsmanna. Skálholtsfélagið er samtök áhugamanna um þetta mál. Það er öllum opið, sem vilja vinna að kii’kjulegi'i enduri'eisn í Skálholti. Það mai’kmið, sem það stefnir að fyrst og fi’emst er, að vígslubiskupinn í Skál- holtsbiskupsdæmi foraa vei’ði Skálholtsbiskup með aðstþðu til að láta til sín taka og setja svip á staðinn. í skjóli og framhaldi fólk höfum notið af þeirra hendi, og af hálfu samstarfs- fólksins við kirkjuna vil ég einnig þakka. Þar hefur sam- starf meðhjálparans við prest- ana, söngfólkið og söfnuðinn ávalt verið gott. Jakob Jónsson. Skálholti slíkrar ráðstöfunar má ætla, að Skálholt mundi enn að nýju skapa sér sögu, sem yrði í sam- ræmi við þær minningar, sem við það eru bundnar. Um þetta stefnumál, svo og endurreisn dómkirkjunnar, mið- ar félagið við níu alda afmæli biskupsstólsins, en það er skammt framundan, á hvíta- sunnu 1956. Hátíðin í Skálholti sunnudag- inn 21. ágúst var vel sótt, bæði af fólki úr Reykjavík og hér- aðsbúum og fór hið bezta fram. Veður var fagurt, glaðnaði til um hádegi og gerði hlýtt sól- skin. Hin mikla náttúrufegurð í Skálholti naut sín vel. Messa hófst kl. 1. Biskupinn, dr. Sigurgeir Sigurðsson, þjón- aði fyrir altari, dr. Páll Isólfs- son lék á orgelið og kór dóm- kirkjunnar í Reykjavík söng undir stjórn hans. Séra Sigur- bjþrn Einarsson prédikaði. I messulok flutti biskupinn ávarp frá altari, þar sem hann rakti nokkuð afskipti sín af Skál- holti, viðleitni sína til þess að fá stjórnarvöldin til að sýna kirkju og stað einhvern sóma. Ekki rúmaði kirkjan nærri alla, sem viðstaddir voru, en gjallarhorn fluttu það, sem fram fór í kirkjunni um allan staðinn. Að lokinni messu var stutt hlé en síðan hófst samkoma úti. Dr. Bjarni Jónsson, vígslubisk- up, flutti ræðu, minnti á nokk- ur minnisstæð atvik úr sögu Skálholtsstaðar. Þá flutti Matt- hías Þórðarson, prófessor, er- indi, las upp kafla úr ritgerð um Skálholt eftir Guðmund skáld Magnússon og kynnti fornmenjar og þrnefni. Dóm- kirkjukórinn sþng milli atriða. Þorsteinn Sigurðsson á Vatns leysu í Biskupstungum stýrði útisamkomunni. Að lokum var kjörin nefnd héraðsmanna til þess að hafa forgöngu um sam- tök innan héraðs um viðreisn Skálholtsstóls. í nefndinni eru: Séra Eiríkur Þ. Stefánsson, prófastur, Torfastöðum; Páll Hallgrímsson, sýslumaður, Sel- fossi; séra Sigurður Pálsson, Hraungerði; Þorsteinn Sigurðs- son, bóndi Vatnsleysu og Ásgeir Eiríksson, kaupmaður, Stokks- eyri. Hróbjartur Bjarnason, kaup- maður, Reykjavík, sleit sam- komunni með nokkrum orðum fyrir hönd Skálholtsfélagsins, þakkaði þátttöku og aðstoð og hvatti til einbeittra átaka um framkvæmd hugsjónanna um Skálholt. S. E.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.