Kirkjublaðið - 31.10.1949, Blaðsíða 1

Kirkjublaðið - 31.10.1949, Blaðsíða 1
VII. árg. Mánudagur, 31. október 1949. 18. tbl. Séra Jón Thorarensen: VETRI HEILSAÐ Útvarpsræða 1. vetrardag 1949. Brefttingsslaða- kirkja á Flaft- eyjardal. Brettingsstaðakirkja á Flat-1 eyjaral í Suður-Þingeyjarpró- ■ fastsdæmi er timburkirkja meði forkirkju og turni reist árið 1897. Áður hafði þar eigi verið kirkja. En með landshöfðingja- bréfi 9. maí 1894 er leyft að flytja Flateyjarkirkju þangað, og var svo kirkjan á Brettings-: stöðum byggð þrem árum síðar. ■ Kirkju í Flatey á Skjálfanda' er getið í Auðunnarmáldaga um j 1318 og er þar talin eiga tólft-' ung eyjarinnar auk jarða á Flateyjardal, þar á meðal Brett- ingsstaði. Þangað er tollur gold-1 inn af 7 bæjum. Rúmum 100 ár-; um síðar eða árið 1429, er Jón ’ ■ j biskup Vilhjálmsson ritar mál- daga kirkna í Þingeyjarsýslu, [ er Flateyjarkirkja fallin en gripir hennar hafa verið fluttir að Grenjaðarstað og Nesi. Eigi er heldur kirkju getið í Flatey í kirknaskrá Ólafs biskups Rögn valdssonar um 1461. Hvenær' kirkjan í Flatey hefir verið end-1 urreist, er mér eigi kunnugt, en . um 1712 telur Árni Magnússon | þar kirkjustað, og getur þáj einnig um hálfkirkju í Vík í Flateyjardal. Sú kirkja er nú-! löngu af tekin en Flateyjar-j kirkja flutt að Brettingsstöðum laust fyrir síðustu aldamót eins og áður segir. Nú er allmikill hugur í Flat- eyingum að reisa kirkju sína að nýju og hefir þegar verið safnað allverulegu fé í því skyni. í biskupsvisitazíu 1921 er kirkjan talin eiga lítinn silfur- kaleik með patínu og tvo ljósa- stjaka litla. Er þess þar getið að gömul altaristafla úr Flat- eyjarkirkju hafi þá fyrir skömmu verið seld Þjóðminja- safninu. Brettingsstaðakirkja er út- kirkja frá Hálsi í Fnjóskadal. Dagar mannsins eru sem grasið, hann blómgast sem blómið á mörkinni, þegar vindur blæs á hann er hann horfinn. Sálm. 103, 15—16. Þessi orð hebreska sálma- skáldsins minna oss á hverful- leik lífsins. Skáldið sjer í anda hve lík lögmál speglast í lífi mannanna og í blómaskrauti jarðarinnar. Hann sér hvernig upp úr skauti jarðarinnar koma grænar fíngerðar nálar sem boðuðu að blóm væru á leiðinni að fagna nýju sumri og sól, með því að vaxa upp, og á hátindi fegurðar sinnar að breiða út blómkrónur með alls kyns litum, skrauti og fegurð. Og hann sá líka hvernig það lá fyrir öllum gróðri að fölna aftur, missa lita- skraut sitt, hníga og falla til foldarinnar aftur. Hann sá hve þetta var örstutt stund, sem blómleggurinn hafði kraft. til þess að brosa á móti lífinu og sólarylnum með krónuna og hve hinir bleiku litir haustsins og hin hvíta héla vetrarins var fyrr en varði komin yfir blómskrýdd- an völlinn. Og hann sá í anda hve líf vort mannanna var þessu líkt í öllum höfuðatriðum. Hann sá litlu börnin fæðast eins og litla brumhnappa út úr ættar- tré sínu og hann sá þau vaxa upp, verða fegurri með hverju árinu og verða eins og sterkan blómlegg til þess að bera fagra ávexti fyrir foreldra sína og ættir. Og hann sá menn vaxa upp til þess að bera ávexti og koma mörgu í framkvæmd á heimsins vísu, en hann sá líka, að mennirnir voru eins og fín- gerð blóm, sem ekki þola að vind urinn blási án þess að brotna, hníga út af og deyja. Og þegar hann hugsaði um það hve líf mannsins er hverfult og veikt þá kom honum í hug lík- ingin frá blómunum og hann mælti: Dagar mannsins eru sem gras- ið, hann blómgast sem blómið á mörkinni, þegar vindur blæs á hann er hann horfinn. Veturinn er kominn, og sum- ar horfið í tímans djúp og í sannleika er það svo, að þegar vér minnumst horfinna sól- skinsdaga með gróðri og hita sem hann byggði vonir sínar á. þá eigum vér mikils að sakna. Og þó að veturinn sé fyrir þá, er njóta heilsu og krafta, oft far- sæl og fögur árstíð, þá minnir hann oss samt á dauðann í ríki lífsins eins og skáldið segir: Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu, und snjónum hvíla þau í vetrargröf. En hvernig er þetta með vet- urinn nánar séð. Er það rétt að hann vinni sigur á gróðri jarð- arinnar? Já á þeim gróðri, sem vor jarðnesku augu fá greint, en á lífi rótanna og frækornanna fær hann eigi unnið, svo að jafn vel helfrosinn svörðurinn er þrátt fyrir allt þrunginn af gróðurmagni og þeim eiginleik- um að rísa upp til nýs lífs í nýrri og bjartri fegurð. Máttur frækornanna er ein stórkostlegasta opinberunin um eilífa lífið, um upprisuna frá dauðum, sem er kjarninn í krist indóminum. Og þegar vér höf- um alla vora æfidaga, vor eftir vor, þessa miklu opinberun og sönnun um upprisuna frá dauð- um, hví skyldum vér þá efast eða vera lítiltrúuð á upprisu vor sjálfra, hví skyldum vér þá gera höfundi lífsins þá sorg, að efast um forsjón hans og visku oss til handa. Þar eð Guðs forsjón vak- ir yfir mætti hvers frækorns þótt það hvíli í helfrosinni jörð, hversu miklu fremur mun hann þá vaka yfir eilífðareðli vor mannanna og leiða oss frá dauð- anum yfir til lífsins. Og með þessu erum vér þá komin að oss sjálfum, að mannlegu eðli og forlögum mannlegs lífs, en við það miðast allur boðskapur kristinnar trúar. I lífi mann- anna skiptist á sumar og vetur. Það er ekki aðeins að þeir sem komast á elliár hafi lifað svo til vor, sumar og haust eins og blómin, heldur skiptist á sum- ar og vetur í andlegu lífi mann- anna á hvaða tíma æfinnar sem er, eftir því hvaða reynsla mæt- ir þeim. Og það skiptir mestu máli. Og í þessari lífsreynslu sést það bezt hve skjótt hefur sól brugðið sumri, hve vonirnar geta brostið og hve maðurinn getur á hvaða tíma æfinnar sem er horfið frá sumri og sól inn í skugga sorgar og andstreymis þegar tekið er frá honum það, En þegar það er hlut- skipti allra jarðarbarna, að sjá af þeim sem þeir elska, og oft svo snögglega og óvænt, þá hlýtur það að skipta mestu máli fyrir manninn, að gera upp sem fyrst við sig þann reikning sálar lífsins og það viðhorf, er lýtur að eðli og forlögum mannlegrar sálar. Og hverri stund sem eytt er án þess að eignast örugga vissu um þetta höfuðmál lífsins, henni er illa eytt. Því vér vitum hvorki daginn né stundina. Vér töluðum áðan um kraftaverk það, er gerist með frækornið og hversu miklu fremur mun þá Drottinn allsherjar vaka yfir oss og lífi voru, sem erum öll dýru verði keypt eins og postul- inn segir, og í sannleika eins og dýrar byggingar þegar vér er- um komin upp, enda eigum vér að vera Guðs musteri. Eins og maðurinn birtist oss hið ytra en einnig ósýnilegur, því kjarni hans er sálin, þannig eru til tveir heimar, sá sýnilegi og hinn and- legi sém er þýðingarmeiri en þó ósýnilegur. Allir menn hafa með sál sinni samband við þenn- an ósýnilega heim, hvort sem þeir vita af því eða ekki, Og ef maðurinn vill ekki fljóta sof- andi að feigðarósi verður hon- um að skiljast að bak við allt sem gerist er andlegur heimur, andleg lögmál, sem ráða öllu í vorum sýnilega heimi. Biblían er full af frásögn- um, um sýnir, drauma, sál- farir, yfirnáttúrlegar lækning- ar, upphafning á þyngdarlög- málinu, en fyrst og síðast ættum vér að minnast þess, að hún seg- ir oss frá dýrðlegri upprisu Jesú Krists. Þegar þetta er allt haft í huga, sem í biblíunni er sagt, á það að vera heilög skylda hvers kristins manns að hafa opna sál fyrir öllu því, sem dulrænt er, fyrir öllu smáu og stóru er ger- ist í lífi voru mannanná og ekki verður rakið til þessa heims né [þess sem sýnilegt er, því í öllu : slíku er hinn andlegi og æðri heimur að opinbera sig á marg- an hátt fyrir sál mannsins. Þá verður maðurinn einnig færari um að hverfa frá sumartíðinni inn í ríki vetrarins, hvort sem átt er við slíkt í bókstaflegum skilningi eða andlegum, þegar hann sjálfur eða hans nánustu fölna og hverfa héðan af jörðu. Vér vitum að það er svo erfitt að lifa slíkar stundir, að þá er aðeins örugg vissa um fram- haldslíf og endurfundi hinu- megin, eina huggunin og eina hugsunin sem í bæninni til Drottins styrkir oss. Að flytjast inn í annan heim, tekur litla stund að dauðanum loknum, en enga lýsingu á því eigum vér enn í dag, er sé viðurkennd. — Hinu er vissa fengin fyrir að margar verur að handan eru við staddar þann atburð og taka á móti oss. Hafi maðurinn engar illar venjur eða tilhneigingar sem fylgja honum héðan, og sem hann þarf fyrst að losna við, þá getum vér vænst þess að hans bíði fljótt glæsilegt tímabil til þroska og sjálfsgöfgunar. Því er það kappsmálið mesta að fara héðan sem hreinastur á sálinni því dauðinn breytir á engan hátt eðli mannanna. Enginn verður góður við það að deyja, hafi hann ekki verið það á jörðunni. En höfuðatriðið er þó, að vor allra bíður æðra líf, eilíft líf, þar sem vér fáum upp- fyllingu á þeim fyrirheitum Guðs að vinna oss upp, — sigra sérhvað það í oss sjálfum, er tafið hefir þroska vorn svo vér öll getum orðið hrein og fögur blóm í hans eilífu sumar dýrð. Þú, sem hefur mist ástvin þinn, sem gaf þér svo góðar minning- ar um sig, er hann eða hún fór, ég bið þig að minnast þess að hafir þú verið fullviss þess, að með honum bjó þrá til þess að verða þér og öðrum til góðs, hversu miklu meir mun það þá verða metið þar sem hann dvel- ur nú. Og á þeim brautum blessunar eru þeir margir hverjir komnir lengra en oss dreymir um og því lengra sem líður, þess meiri von eigum vér um fullkomna og gleðilega móttöku frá þeirra hálfu er vér flytjum héðan. Og með þessari trú og vissu skulum vér styrkja sálir vorar nú á þess- um nýja vetri og alla tíma og minnast þess að veturinn, dauð- inn og hverfulleikinn birtist að eins jarðneskum augum vorum, en í raun og sannleika er allt - lífið séð frá Guðs hæðum sífeld og látlaus för áfram til full- komnunar og þroska, til sigur- hæða og sólar. Guð gefi yður öllum gleðileg- an og farsælan vetur.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.