Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Afsal vegna sölu skipanna Ægis
og Týs var undirritað á skrifstofu
Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð
í gær. Festi Fagur ehf. kaup á
skipunum tveimur og fór að undir-
ritun lokinni fram virðuleg kveðju-
athöfn um borð í Ægi og Tý við
Sundahöfn.
„Áhafnir beggja skipa tóku þátt
í fjölmörgum eftirminnilegum
björgunarsfrekum. Ægis og Týs
bíður nú nýtt hlutverk og óhætt er
að segja að þau hafi reynst hin
mestu happafley,“ segir Ásgeir
Erlendsson, upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar.
Fyrrverandi skipverjar drógu
skutfánann niður á meðan starfs-
menn Landhelgisgæslunnar stóðu
heiðursvörð. Georg Kr. Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók
við fána Ægis og Ásgrímur L. Ás-
grímsson, framkvæmdastjóri að-
gerðasviðs, tók við fána Týs. Þar
með lauk áratuga farsælli sögu
skipanna í þágu íslensku þjóðar-
innar.
Varðskipið Ægir var smíðað í
Álaborg í Danmörku árið 1968 og
var í rekstri Landhelgisgæslunnar
til ársins 2015. Ægir tók þátt í 50
og 200 mílna þorskastríðunum og
áhöfn hans beitti togvíraklipp-
unum frægu á breskan togara í
fyrsta sinn þann 5. september árið
1972.
Varðskipið Týr var afhent Land-
helgisgæslu Íslands í mars árið
1975 og kom mikið við sögu í 200
mílna þorskastríðinu þar sem það
klippti á togvíra fjölda togara,
bæði breskra og þýskra. Skipið fór
nær alveg á hliðina þegar breska
freigátan Falmouth sigldi tvívegis
á Tý og laskaði hann verulega.
Fagur ehf. kaupir varðskipin Tý og Ægi
- Áhafnir beggja skipa tóku þátt í mörgum björgunarafrekum - Fagur ehf. festi kaup á skipunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kveðjustund Fyrrverandi skipverjar drógu skutfánann niður á meðan starfsmenn Landhelg-
isgæslunnar stóðu heiðursvörð. Óhætt er að segja að skipin hafi reynst hin mestu happafley.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynsla Áhafnir beggja skipa tóku þátt í fjölmörgum eftirminnilegum björgunarafrekum en
Ægis og Týs bíður nú nýtt hlutverk. Fagur ehf. festi kaup á skipunum tveimur sögufrægu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há-
skóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra, hyggst fylgja eftir hugmynda-
fræði sinni um ráðuneyti óháð
staðsetningu og starfa um land allt.
Áslaug Arna mun færa skrifstofu
sína staka í fjarvinnuaðstöðu um
land allt á kjörtímabilinu og hefst
handa með fyrirkomulagið á fimmtu-
daginn með því að starfa frá Snæ-
fellsbæ.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég
íhugaði hvernig ráðuneyti sem væri
búið til árið 2022 myndi starfa. Ráðu-
neytið sjálft er samkvæmt lögum
staðsett í Reykjavík, en mig langar
til að skrifstofa mín geti verið víðar
um land,“ segir Áslaug Arna í sam-
tali við Morgunblaðið. Fyrir liggur
áætlun um starfsdaga í nokkrum
plássum í ár en til stendur að fyr-
irkomulagið haldi sér allt kjörtíma-
bilið og að stöðum fjölgi á hverju ári
þar sem ráðherra mun starfa. Þó
segir Áslaug Arna að dagarnir geti
hliðrast til eftir skyldum í Reykjavík
– líkt og gagnvart Alþingi.
„Mér finnst þetta vera ein leið til
að sýna fram á að ráðuneyti þurfi
ekki að vera eins og þau hafa alltaf
verið,“ segir hún.
“Ég hef haldið reglulega opna við-
talstíma í Grósku í Reykjavík en
mun nú líka halda opna viðtalstíma á
þeim stöðum þar sem skrifstofa mín
verður hverju sinni, segir hún. Ás-
laug bætir við að auk þess muni hún
sinna hefðbundnum ráðherrastörf-
um í fjarvinnu þar sem hún er stödd
á hverri stundu, svo sem að taka fjar-
fundi við starfsfólk sem kann að
starfa í Reykjavík. Áslaug Arna seg-
ir mikilvægt að fá að kynnast starf-
semi sem tengist ráðuneytinu um
allt land og fá innblástur frá fólki.
Spurð hvort að hringferðir þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins undan-
farin ár hafi sömuleiðis veitt henni
innblástur, segir Áslaug Arna að
tækifæri hafi skapast í hringferðun-
um til að kynnast starfi víðs vegar
um landið. Það hafi komið sér vel og
opnað augu þingmanna fyrir áskor-
unum annarra kjördæma. „Ég held
að bæði felist tækifærin í að kynnast
þáttum sem tengjast ráðuneytinu
víða um land og að sýna fram á að
hægt er að starfa víðs vegar um
landið, á frábærum stöðum; skrif-
stofum, opnum rýmum, þekkingar-
setrum og svo framvegis.“ Spurð
hvernig staðirnir hafi verið valdir,
segir Áslaug Arna að hugað hafi ver-
ið að dreifingu um landið . „Það er
auðvitað rosalega erfitt að velja
staði. Það eru svo margir spennandi
hlutir að gerast víða í þekkingar- og
nýsköpunarmálum. Þá eru fjar-
skipta- og netöryggismálin ofarlega
á baugi víða.“
karitas@mbl.is
Ráðherra starfar um land allt
- Áslaug Arna mun flytja skrifstofu sína milli hinna ýmsu bæja allt kjörtímabilið
- Í samræmi við ráðuneyti sem er stofnað árið 2022 - Byrjar á fimmtudag
Morgunblaðið/Hallur
Nýsköpun Áslaug Arna háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tekur
hlutverkinu alvarlega og ræðst í nýsköpun í ráðuneytisstörfum.
Stýrihópurinn Brúum bilið, sem
heldur utan um uppbyggingu leik-
skóla í borginni, mun skila minnis-
blaði til borgarráðs um stöðu leik-
skólamála á fundi þess á fimmtu-
daginn.
Þetta segir Helgi Grímsson, sviðs-
stjóri skóla- og frístundaráðs.
Foreldrar mótmæltu því að hafa
ekki fengið leikskólavist fyrir börn
sín líkt og lofað var, í Ráðhúsinu á
fimmtudag.
Engar upplýsingar enn þá
Hópurinn fundaði klukkan níu í
gærmorgun ásamt Einari Þorsteins-
syni, formanni borgarráðs, borgar-
ritara og upplýsingastjóra borgar-
innar. Þar var farið yfir innritun
barna í leikskóla og stöðuna á fram-
kvæmdum. Skoðaðar voru leiðir til
þess að flýta framkvæmdum og
möguleikar á nýtingu húsnæðis.
„Við erum með minnisblað í mót-
un en við erum ekki komin á þann
stað að geta sagt til um neitt enn
þá,“ sagði hann við Morgunblaðið.
Líkt og fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins í gær hefur sviðs-
stjórinn nú fallist á að hjá Reykja-
víkurborg hafi menn verið of fljótir á
sér að bjóða fjölmörgum foreldrum
leikskólapláss fyrir haustið.
Morgunblaðið/Eggert
Foreldrar Frá mótmælum leik-
skólavistarlausra foreldra.
Minnisblað í
mótun um
leikskólamál
- Stýrihópur skilar
fyrir fund á fimmtudag