Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 8

Morgunblaðið - 16.08.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Örn Gunnlaugsson segir í grein í laugardagsblaði að í „þeirri verðbólgu sem nú geisar er ill- skásta leiðin að geyma sparifé á verðtryggðum reikningi sem bund- inn er til þriggja ára. Vextir ofan á verðtrygginguna eru langt innan við 1%. - - - En ekki er öll vitleysan enn sögð. Í 10% verð- bólgu hirðir skatt- mann 220.000 af hverri milljón sem höfuðstóllinn er verðbættur með, þannig að verð- rýrnunin nemur í raun 22%. Tjón vegna verðrýrnunar er hér skatt- lagt. Rúsínan í pylsuendanum er svo að verðbæturnar sem eftir verða, og ná samt ekki hænufet ásamt vöxtunum til að viðhalda verðgildi sparifjárins, skerða elli- lífeyrinn frá TR þegar kemur að útgreiðslu hans. - - - Þær eru miklar mannvitsbrekk- urnar sem hafa komið þessu kerfi á og viðhalda því og eru aug- ljóslega á mun æðra plani vits- munalega en við almúginn sem lát- um þetta yfir okkur ganga. - - - Þessir vitringar ættu eiginlega að vera til sýnis í glerkössum úti á Austurvelli í stað þess að vera lokaðir af hálfsofandi inni í stein- kumbaldanum þar, svo merkileg eru þessi fyrirbæri. Var einhver að tala um virðingu Alþingis? Að skattleggja verðrýrnun og tjón hlýtur að vera heimsmet, ekki bara í skattlagningu heldur líka í heimsku.“ - - - Staksteinar þykjast muna að lof- að hafi verið, fyrir ekki svo mörgum kosningum, að breyta þessari ómynd. Örn Gunnlaugsson Verðrýrnun og tjón skattlögð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tuttugu nemendur útskrifuðust í síðustu viku úr verk- og raunvís- indadeild Háskólabrúar Keilis. Hafa nú 4.543 einstaklingar út- skrifast úr námi við skóla miðstöðvarinnar, þar af 2.371 af Háskólabrú. Dúx Háskólabrúar var Unnar Geir Ægisson. Unnar, sem hefur starfað sem sölufulltrúi hjá Íshest- um, var í fjarnámi samhliða vinnu. Hann fékk 9,79 í meðaleinkunn, sem er næsthæsta einkunn í sögu Háskólabrúar og sú hæsta við verk- og raunvísindadeild skólans, sam- kvæmt upplýsingum frá Keili. Háskólabrú Keilis, sem er í eigu ríkis, sveitarfélaga á Suðurnesjum og verkalýðsfélaga, býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi en stefna á háskólanám eða vilja styrkja sig á vinnumarkaði. Gildir námið til inn- töku í allar deildir Háskóla Íslands. Opnað verður næst fyrir umsóknir á Háskólabrú í fjarnámi þann 1. september næstkomandi fyrir nám sem hefst í janúar 2023. Tuttugu útskrifuðust af Háskólabrú Keilis Dúx Unnar Geir Ægisson var dúx Háskólabrúar Keilis með 9,79 í einkunn. Útgáfa læknisvottorðs, sem hér- aðsdómari aflaði á grundvelli lög- ræðislaga, var liður í að veita heil- brigðisþjónustu og því hægt að kvarta yfir henni til landlæknis. Þetta er niðurstaða umboðs- manns í máli þar sem deilt hafði verið fyrir dómi um kröfu ættingja konu um að svipta hana lögræði. Við meðferð dómsmálsins gaf læknir út vottorð um heilsufar kon- unnar. Hún kvartaði yfir vottorð- inu til landlæknis á þeim grunni að læknirinn hefði gert mistök við út- gáfu þess. Landlæknir taldi að kvörtunin lyti ekki að veitingu heil- brigðisþjónustu og konan gæti því ekki kvartað yfir vottorðinu til embættisins. Heilbrigðisráðuneytið staðfesti afstöðu landlæknis og vís- aði stjórnsýslukæru hennar því frá. Sú sem kvartaði til umboðs- manns lést á meðan málið var til meðferðar en með hliðsjón af al- mennri þýðingu þess ákvað hann að ljúka athugun sinni með áliti. Umboðsmaður taldi að leggja yrði til grundvallar að vottorð læknis um eigin sjúkling væri liður í þeirri heilbrigðisþjónustu sem samband þeirra byggðist á. Hefði konan átt lögvarinn rétt til að kvarta yfir ætluðum mistökum læknisins við það hvernig hann greindi heilsufar hennar í vottorðinu. Landlækni hefði því borið að taka kvörtunina yfir störfum læknisins til með- ferðar á þeim grundvelli. Öndverð afstaða ráðuneytisins hefði ekki samræmst lögum. Vegna andláts konunnar voru ekki efni til að beina tilmælum til ráðuneytisins um að rétta hlut hennar en umboðsmaður mæltist til þess að framvegis yrðu tekin mið af sjónarmiðunum í álitinu. Jafnframt sendi hann landlækni það. Deila um vottorð til umboðsmanns - Taldi stofnanir ekki hafa farið að lögum - Átti lögvarinn rétt til að kvarta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.