Morgunblaðið - 16.08.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 16.08.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 2022 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja „MEIRA AÐ SEGJA ÉG Á Í VANDRÆÐUM MEÐ ÞETTA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að horfa á sólsetrið með þér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÓKEI, ÓKEI! ÉG JÁTA! ÉG ÁT SÍÐUSTU SMÁKÖKUNA! GLÆPALÍF ER EKKI Á ALLRA FÆRI GRENJ ÞETTA ER ALGERT DRAUMALÍF! AÐ HALDA Í VIÐ TÆKNINA SKILAÐOGSKIPT Börn: Helgi Benjamín, f. 2001, Dav- íð Gunnar, f. 2003, og Miranda Paul- ina, f. 2007; 2) Guðrún Pálína, f. 11.9. 1980, með MS-gráðu í líf/læknavís- indum frá HÍ, sérfræðingur öryggis- og gæðamála hjá Isavia-ANS, búsett í Reykjavík. Maki: Kristinn Theó- dórsson, tækniráðgjafi og háskóla- nemi. Börn: Theódór Helgi, f. 2004, Katla Kristín, f. 2008, og Matthías Logi, f. 2010; 3) Einar Andreas, f. 18.2. 1982, MA í málvísindum frá Tohoku University í Japan, tölvunarfræðingur frá HÍ, starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu, búsett- ur í Reykjavík; 4) Helgi, f. 3.2. 1992, tölvunarfræðingur frá HÍ, starfar hjá five°degrees, búsettur í Garða- bæ. Sambýliskona Sesselja Ósk A. Kristjánsdóttir, leiðbeinandi og háskólanemi. Bræður Helga: Ólafur Oddsson (hálfbróðir sammæðra), f. 13.5. 1943, d. 3.11. 2011, MA í íslensku, menntaskólakennari, og Jón Jó- hannes, f. 21.7. 1957, með doktors- próf í erfðavísindum frá University of Minnesota, prófessor við HÍ. Foreldrar Helga: Jón Jóhannes- son, f. 6.6. 1909, d. 5.5. 1957, með doktorspróf í Íslandssögu frá HÍ, prófessor við HÍ, og eiginkona hans, Guðrún Pálína Helgadóttir, f. 19.4. 1922, d. 5.7. 2006, með doktorspróf í íslenskum fræðum frá Oxford Uni- versity, rektor Kvennaskólans í Reykjavík. Helgi Jónsson Guðrún Pétursdóttir húsfreyja í Reykjavík Lárus Pálsson hómópati í Reykjavík Guðrún Lárusdóttir húsfreyja á Vífilsstöðum Helgi Ingvarsson yfirlæknir á Vífilsstöðum Guðrún Pálína Helgadóttir rektor Kvennaskólans í Reykjavík Júlía Guðmundsdóttir prestsfrú á Skeggjastöðum Ingvar Gestmundur Nikulásson prestur á Skeggjastöðum í Bakkafirði Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja í Hlaðgerðarkoti Gísli Gunnarsson bóndi í Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit Guðríður Guðrún Gísladóttir húsfreyja í Hrísakoti Jóhannes Pétur Jónsson bóndi í Hrísakoti á Vatnsnesi Helga Pétursdóttir húsfreyja í Hrísakoti Jón Jónsson bóndi í Hrísakoti Ætt Helga Jónssonar Jón Jóhannesson prófessor við HÍ, Reykjavík Hjónin Eftir gönguferð yfir Kerl- ingarskarð til Strandarkirkju. Dagbjartur Dagbjartsson skrifar á Boðnarmjöð: „Eitt og annað sem manni dettur í hug. Hvað skil- ur maður svo sem eftir sig þegar héðan er farið? Sínar eigin minn- ingar tekur maður með sér en hugsanlega skilur maður eftir minningar annarra. Vonandi held- ur af skárra taginu. Gekk fyrir nokkrum árum í óhreyfðum snjó og leit til baka yfir förin“: Mitt í dagsins amstri og önn oft er lítil borgun. Skil þó eftir för i fönn sem fýkur í á morgun. Stefán Aðalsteinsson bætti við: Sem gengin spor í gljúpa mjöll er greypt vort líf og ævin öll. Hermann Óskarsson segir: „Í til- efni af gosinu í Meradölum kom til mín þessi vísa“: Má ég kanna, Munda, Merardalinn þinn? Til þess skal ég skunda skjótast út og inn. Gunnar J. Straumland kvað: Meradalir mýkjast senn mýrarpyttir anga. Á hraungrýtinu hraktir menn í hægðum sínum ganga. Sturla Friðriksson orti limruna Dyngjugos: Af eldvirkni byggist upp bingur, og bingirnir verða svo dyngjur, er stækka og stækka stöðugt og hækka þangað til spilverkið springur. Höfði Þorsteins Valdimarssonar stolið í Hallormsstað. Davíð Hjálm- ar Haraldsson yrkir: Ef þú ert skáld og sé steypt af þér stytta stela mun höfðinu langfingruð bytta en lítil er hætta á að langt bófinn flýi látir þú fylla á þér hausinn af blýi. Ármann Þorgrímsson um „Öld- ungs líf“: Öldungs líf er oftast bið eftir komu skolla Situr hann við sjónvarpið og sýpur kaffi úr bolla. Og áfram. Nú um „dag í Hlíð“: Er að koma ævi haust illa margir farnir en flestir tæpitungulaust tala gamlingjarnir. Og hér yrkir Ármann um átök innan verkalýðshreyfingarinnar: Nú er hátt til höggsins reitt hrokinn fær að ráða öfgar hafa aldrei leitt okkur fram til dáða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Víða liggja sporin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.