Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 1

Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. Á G Ú S T 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 191. tölublað . 110. árgangur . FYRSTA PYSJAN VÓ 225 GRÖMM STEFNA Á OPNUN Í HAUST KEFLAVÍK FJARLÆGÐIST FALLSÆTI VIÐSKIPTAMOGGI BESTA DEILDIN 22PYSJUEFTIRLITIÐ 10 Sprautað var vatni úr slökkvibíl á fisflugvellinum á Hólmsheiði í Reykjavík í gær yfir fisflugvél, sem Óli Øder Magnússon flaug hingað til lands frá Berlín í Þýskalandi fyrir Fisfélag Reykja- víkur. Ferðalag sjálfrar vélar- innar hófst aftur á móti á Ítalíu. „Tveir félagar mínir flugu vél- inni frá Ítalíu til Berlínar. Það tók rúmlega tvo daga. Ég tók síðan við vélinni í Berlín og flaug henni til Bremen. Í gær flaug ég henni frá Bremen og ætlaði að fara til Wick í Skotlandi en þar var lokað vegna þoku. Ég ætlaði þá að fara til Aberdeen en þar var einnig lokað vegna malbikunarviðgerða, þannig að ég var sendur tvo klukkutíma aftur á bak til Dun- dee. Þá var ég búinn að fljúga í sex klukkutíma þannig að ég stoppaði þar í einn og hálfan klukkutíma, setti eldsneyti á vél- ina og hreyfði á mér fæturna. Svo flaug ég frá Dundee til Egilsstaða og það tók níu klukkutíma.“ Fisflugvélin hefur að jafnaði flugþol í u.þ.b. fjóra og hálfa klukkustund en Óli kunni ráð við því. „Í farþegasætinu var ég með 110 lítra blöðru sem er keimlík pokunum í rauðvínsbeljunum og var full af bensíni. Vélin saug úr henni þar til allt í einu var enginn við hliðina á mér í farþegasæt- inu.“ Hann segist þó ekki hafa flogið alla leiðina einsamall því óboðinn gestur laumaði sér inn í vélina. „Það var geitungur, en hann kom sér um borð í Þýskalandi. Við urðum nokkuð góðir vinir. En svo fannst mér leiðinlegt að sjá hann dauðan í morgun. Ég veit ekki hver dánarorsökin er, kannski var þetta of langt flug,“ segir hann. Að sögn Óla var ferðalagið það alerfiðasta sem hann hefur nokk- urn tímann tekið sér fyrir hendur. „En þetta var skemmtilegt. Þetta var auðvitað gert fyrir fis- félagið í sjálfboðavinnu en nú höf- um við eignast okkar fyrstu vél.“ steinthors@mbl.is Var níu tíma á flugi yfir Atlantshaf Fisflugvél frá Ítalíu til Íslands í gegnum Þýskaland og Skotland Morgunblaðið/Árni Sæberg Fis Ferðalagið frá Ítalíu til Berlínar tók tvo daga. Þar tók Óli við vélinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Ferðalag vélarinnar hófst í Ítalíu. Óli Øder flugmaður flaug henni til Íslands. Slökkviliðið sprautaði vatni, líkt og gert er við hátíðleg tilefni. Skortur á aðföngum og hækkandi verð á flutningum eru meðal þátta sem hafa áhrif á sölu nýrra bifreiða hér á landi. Þá hafa einnig orðið tafir á afhendingu nýrra bíla en staðan er þó misjöfn milli bílaumboða. Jón Trausti Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Öskju, segir að tafir við afhendingu nýrra bíla hafi verið við- varandi vandamál í hátt í ár og býst við að sú staða vari fram á næsta ár. Það eigi þó ekki endilega við um allar tegundir bíla en líklega verði áhrifin mest á rafbíla. Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, tekur í sama streng og segir verulegar tafir á afhendingu nýrra bíla hafa háð starfsemi umboðsins síð- ustu misseri. Páll Þorsteinsson, upp- lýsingafulltrúi Toyota, segir að um- boðið hafi fundið fyrir töfum á einstökum gerðum en heilt yfir hafi gengið mjög vel að fá bíla afhenta. Framleiðendur hafa í mörgum til- vikum tilkynnt umboðunum hér á landi um væntanlegar hækkanir sem rekja megi til fyrrnefndra þátta, en vegna styrkingar krónu er óvíst hvort þær hækkanir leiði út í verðlagið hér á landi. »ViðskiptaMogginn Áfram tafir á afhendingu - Verð á bifreiðum að hækka en sterk króna vegur á móti Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Verð á bílum er tekið að hækka og nokkrar tafir orðið á afhendingu. _ Markaðurinn fyrir sveppi stækk- ar sífellt hérlendis, í samræmi var það sem gerist í Evrópu, að sögn Georgs Ottóssonar, garðyrkju- bónda á Flúðum. Neysla þeirra er mest á sumrin þegar erlendir ferða- menn sækja veitingastaði. Georg segir spurn eftir niður- sneiddum sveppum hafa aukist mikið, en þeir eru notaðir á veit- inga- og pítsustöðum. Það segir hann jákvætt enda sé hægt að nýta til þess sveppi sem annars myndu ekki henta á markað vegna lögunar sinnar. Þetta falli vel að markmiðum félagsins um minni matarsóun. »6 Neysla á sveppum eykst hérlendis Andrés Magnússon andres@mbl.is Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, hefur áhyggjur af orðspori Íslands á al- þjóðlegum fjár- málamarkaði ef franska sjóðastýr- ingarfyrirtækið Ardian fellur frá kaupum á Mílu, dótturfyrirtæki Símans, vegna af- skipta Samkeppn- iseftirlitsins. „Þetta væru ekki góð skilaboð fyrir erlenda fjár- festingu á Íslandi, fjárfestingu sem við þurfum á að halda til þess að byggja upp,“ segir Sigurður. „Hér eru mörg tækifæri en til þess að þau verði að veruleika þurfa stjórnvöld að vera í liði með atvinnnulífinu að sækja þau,“ segir hann og bætir við að til þess þurfi þau aðeins að gera tvennt: „Senda út merki um að erlend fjár- festing sé velkomin og ryðja úr vegi hindrunum.“ Sigurður er í viðtali Dagmála Morgunblaðsins í dag. »10 Erlend fjárfesting í uppnámi - Afskipti SKE geta orðið mjög afdrifarík Sigurður Hannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.