Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 22

Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022 Besta deild kvenna Selfoss – Þór/KA ...................................... 2:0 Þróttur R. – ÍBV....................................... 5:1 Afturelding – Keflavík ............................. 2:3 Staðan: Valur 13 10 2 1 36:6 32 Breiðablik 13 9 1 3 35:7 28 Þróttur R. 13 8 1 4 27:16 25 Stjarnan 13 7 3 3 26:13 24 ÍBV 13 6 3 4 19:21 21 Selfoss 13 5 3 5 13:12 18 Keflavík 13 4 1 8 16:26 13 Þór/KA 13 3 1 9 16:36 10 Afturelding 13 3 0 10 13:33 9 KR 13 2 1 10 13:44 7 2. deild kvenna ÍA – Hamar ............................................. 11:0 Staðan: Fram 10 9 0 1 26:5 27 Völsungur 10 8 2 0 35:8 26 Grótta 10 7 2 1 41:10 23 ÍR 10 7 2 1 32:13 23 ÍA 10 6 0 4 35:19 18 KH 10 4 1 5 29:23 13 Álftanes 10 4 1 5 20:24 13 Sindri 11 4 1 6 16:25 13 Einherji 10 4 0 6 10:17 12 ÍH 10 1 2 7 17:44 5 Hamar 11 1 1 9 10:43 4 KÁ 10 0 0 10 6:46 0 Meistaradeild karla 4. umferð, fyrri leikir: Bodö/Glimt – Dinamo Zagreb ............... 1:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Köbenhavn – Trabzonspor..................... 2:1 - Hákon Arnar Haraldsson lék fyrstu 68 mínúturnar með Köbenhavn og Ísak B. Jó- hannesson kom inn á 81. mínútu. Orri Steinn Óskarsson var ekki í hópnum. Rangers – PSV ......................................... 2:2 England B-deild: Burnley – Hull.......................................... 1:1 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Staða efstu liða: Blackburn 3 3 0 0 6:1 9 Hull 4 2 2 0 5:3 8 Watford 4 2 2 0 4:2 8 Millwall 4 2 1 1 7:6 7 Cardiff 3 2 0 1 3:2 6 Preston 4 1 3 0 1:0 6 Blackpool 4 2 0 2 2:3 6 Rotherham 3 1 2 0 5:1 5 Sunderland 3 1 2 0 6:5 5 C-deild: Bolton – Morecambe ............................... 1:0 - Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 73 mín- úturnar með Bolton og lagði upp mark. Katar Al-Arabi – Al-Markhiya.......................... 2:0 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Danmörk B-deild: SönderjyskE – Helsingör ....................... 0:4 - Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá SönderjyskE á 66. mínútu en Atli Bark- arson var ekki í hópnum. Svíþjóð Bikarkeppnin, 2. umferð: ÖSK Örebro – Rävasen .......................... 1:4 - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með ÖSK Örebro. Rimbo – Uppsala...................................... 0:6 - Andrea Thorisson var ekki í leikmanna- hópi Uppsala. B-deild: Öster – Örebro ......................................... 1:1 - Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með Öster. - Valgeir Valgeirsson lék allan leikinn með Örebro og Axel Óskar Andrésson kom inn á 90. mínútu. Västerås – Trelleborg............................. 4:4 - Böðvar Böðvarsson lék fyrstu 72 mín- úturnar með Trelleborg. >;(//24)3;( EM U16 karla B-deild, leikið í Sofíu: Ísland – Tékkland................................. 81:74 Búlgaría – Lúxemborg......................... 98:69 Lokastaðan: Búlgaría 4 4 0 317:257 8 Ísland 4 3 1 321:253 7 Tékkland 4 2 2 287:304 6 Sviss 4 1 3 263:272 5 Lúxemborg 4 0 4 239:341 4 _ Ísland hafnaði í 2. sæti B-riðils og mætir Belgíu í átta liða úrslitum hinn 18. ágúst. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA 2. deild karla: Ólafsvík: Víkingur Ó. – Þróttur R............ 18 Húsavík: Völsungur – Ægir ..................... 18 Sandgerði: Reynir S. – ÍR ........................ 18 Grenivík: Magni – KF ............................... 18 Reyðarfj.: KFA – Höttur/Huginn....... 19.15 Origo-völlur: Haukar – Njarðvík ........ 19.15 Í KVÖLD! Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, landsliðsmaður í körfubolta, er genginn í raðir Oviedo á Spáni. Hann kemur til félagsins frá Land- stede Hammers í Hollandi. Oviedo leikur í næstefstu deild Spánar og er Þórir annar leikmað- urinn sem semur við félag í deild- inni í sumar. Ægir Þór Steinarsson, liðsfélagi hans í landsliðinu, gerði samning við Alicante á dögunum. Þórir skilaði 12 stigum, 5 fráköst- um og 3 stoðsendingum að með- altali í leik fyrir Landstede Ham- mers á síðustu leiktíð. Þórir frá Hol- landi til Spánar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spánn Þórir Guðmundur Þorbjarn- arson er kominn til Oviedo á Spáni. Símon Elías Statkevicius hefur lok- ið keppni á Evrópumótinu í Róm eftir keppni í 50 metra skriðsundi í gærmorgun. Símon Elías synti á tímanum 23,27 sekúndur, sem er persónulegt met, en hann átti áður best 23,49 sekúndur. Símon hefur því lokið keppni á mótinu en hann keppti í fjórum greinum og bætti sinn besta árangur í þremur þeirra. Hinar greinarnar hans voru 50m flugsund, 100m skriðsund og 100m flugsund. Í 100 metra skriðsundi var hann nálægt sínum besta tíma en náði ekki að bæta hann. Ljósmynd/Sundsamband Íslands Bætingar Símon Elías Statkevicius bætti sig í þremur greinum á EM. Þriðja bætingin hjá Símoni AFTURELDING – KEFLAVÍK 2:3 0:1 Ana Paula Santos Silva 20. 1:1 Hildur Karítas Gunnarsdóttir 34 2:1 Eyrún Vala Harðardóttir 53. 2:2 Aníta Lind Daníelsdóttir (víti) 59. 2:3 Dröfn Einarsdóttir 75. M Mackenzie Cherry (Aftureldingu) Kristín Þóra Birgisdóttir (Aftureldingu) Sigrún G. Harðardóttir (Aftureldingu) Ana Paula Santos Silva (Keflavík) Caroline Van Slambrouck (Keflavík) Tina Marolt (Keflavík) Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík) Dómari: Guðmundur P. Friðbertsson – 8. Áhorfendur: 392. SELFOSS – ÞÓR/KA 2:0 1:0 Brenna Lovera 6. 2:0 Susanne Friedrichs 78. M Susanna Friedrichs (Selfossi) Tiffany Sornpao (Selfossi) Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfossi) Þóra Jónsdóttir (Selfossi) Jóhanna Elín Halldórsdóttir (Selfossi) Sif Atladóttir (Selfossi) Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) María Catharina Gros (Þór/KA) Kimberley D. Hjálmarsdóttir (Þór/KA) Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA) Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson – 8. Áhorfendur: 101. ÞRÓTTUR R. – ÍBV 5:1 1:0 Andrea Rut Bjarnadóttir 11. 1:1 Sandra Voitane 18. 2:1 Danielle Marcano 35. 3:1 Danielle Marcano 45. 4:1 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 67. 5:1 Freyja Karín Þorvarðardóttir 70. MM Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti) M Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti) Murphy Agnew (Þrótti) Sæunn Björnsdóttir (Þrótti) Katla Tryggvadóttir (Þrótti) Danielle Marcano (Þrótti) Sandra Voitane (ÍBV) Olga Sevcova (ÍBV) Dómari: Twana Ahmed – 8. Áhorfendur: Um 200. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Keflavík vann dýrmætan 3:2-úti- sigur á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi og sleit sig í leiðinni örlítið frá mesta hættusvæðinu í deildinni. Með sigrinum fór Keflavík upp í 13 stig og er nú fjórum stigum fyrir ofan Aftureldingu, sem er enn í fallsæti. Mosfellingar urðu borginmannlegir þegar Eyrún Vala Harðardóttir kom Aftureldingu yfir á 54. mín- útu, en Ana Paula Silva hafði kom- ið Keflavík yfir og Hildur Karítas Gunnarsdóttir jafnað fyrir Mosfell- inga. Keflavík var hins vegar sterkari undir lokin og Anita Lind Daníelsdóttir og Dröfn Einars- dóttir tryggðu gestunum sigur. Sigurinn var sá fyrsti hjá Keflavík eftir EM-hléið en Afturelding hef- ur unnið einn leik og tapað tveim- ur. Þriðji sigur Þróttar í röð Þróttur úr Reykjavík vann sinn þriðja sigur í röð er liðið fór illa með ÍBV á heimavelli, 5:1. Þróttur hefur verið eitt besta liðið eftir EM-hléið og hefur liðið unnið leik- ina þrjá með markatölunni 10:1. Liðið er skemmtileg blanda af góð- um ungum leikmönnum og vel völdum erlendum leikmönnum. Hin bandaríska Danielle Marcano gerði tvö mörk og hefur verið virkilega góð. Þá gerðu þær Andrea Rut Bjarnadóttir, Ólöf Sigríður Krist- insdóttir og Freyja Karín Þorvarð- ardóttir eitt mark hver, en þær eru allar undir tvítugu og virðast eiga framtíðina fyrir sér. Þróttur ætti að vera freistandi áfanga- staður fyrir alla unga leikmenn sem ekki komast að í byrjunar- liðum sterkustu liða landsins. Þróttarar eru enn nokkuð frá Breiðabliki og Val en í spennandi baráttu um þriðja sætið við Stjörn- una. ÍBV heldur áfram að vera ólíkindatól en liðið er búið að vinna Breiðablik og gera jafntefli við Val í sumar, en þess á milli dettur liðið langt niður. Það vantar stöðugleika í Vestmannaeyjar til að komast of- ar á töfluna. Kærkominn sigur Selfoss Sigur Selfyssinga á Þór/KA var afar langþráður, því sigurinn var sá fyrsti hjá Selfossi frá því að lið- ið vann 3:1-sigur á KR 1. júní, en lokatölur á Selfossi urðu 2:0. Markið, sem Brenna Lovera skor- aði strax á 6. mínútu, var fyrsta mark Selfyssinga í 489 mínútur af leiktíma. Hún sá til þess að staðan væri 1:0 í hálfleik og Susanna Friedrichs gulltryggði sigurinn á 78. mínútu með huggulegu marki. Á meðan Selfyssingar fögnuðu langþráðum sigri, gengur ekkert hjá Þór/KA. Liðið hefur tapað fjór- um leikjum í röð og ekki tekist að skora mark. Eftir tvo sigra í fyrstu þremur umferðunum hafa norð- ankonur aðeins unnið einn leik af síðustu tíu og þurfa að girða sig í brók, ef ekki á illa að fara. Aftur- elding er sterkari nú en fyrir EM- hléið og KR-ingar spila betur und- ir stjórn nýs þjálfara, þótt úrslitin standi á sér. Fátt jákvætt er að frétta af Þór/KA hins vegar. Dýrmætur sigur Keflvíkinga Morgunblaðið/Eggert Mosfellsbær Silvia Leonessi úr Keflavík og Kristín Þóra Birgisdóttir hjá Aftureldingu eigast við í Mosfellsbænum í gærkvöldi. - Þróttur vann stórsigur á ÍBV - Loksins sigur og mörk hjá Selfyssingum Morgunblaðið/Eggert Skoraði Kantmaðurinn Andrea Rut Bjarnadóttir kom Þrótti frá Reykjavík á bragðið í stórsigrinum á Eyjakonum í Laugardalnum í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.