Morgunblaðið - 17.08.2022, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2022
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is
„ÞIÐ SKULUÐ EIGI AÐRA GUÐI
HAFA. ÞAÐ LEIÐIR BARA TIL
RAUNVERULEIKAÞÁTTA.“
„ÞÚ MÁTT EKKI FÁ ÞÉR SKELLINÖÐRU! ÞÚ
ERT NÓGU LATUR AÐ FÓÐRA HUNDINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leita að
draumaheimilinu
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ ERT NÝR. HVAÐ
HEITIRÐU?
ÉG ER EKKI VISS ANNAÐ HVORT „HÆTTU
AÐ RÓTA Í RUSLINU“ EÐA
„ÞEGIÐU OG HÆTTU ÞESSU
GELTI, HEIMSKI HUNDUR“
ÉG
KALLA
ÞIG
„BÓ“
ÞESSI MAÐUR ER SÉRFRÆÐINGUR Í
„ÖRYGGISMÁLUM Á VINNUSTÖÐUM VÍKINGA“!
HANNÆTLAR AÐ FARA YFIR NOKKUR
ÖRYGGISATRIÐI MEÐOKKUR!
ATRIÐI NÚMER EITT… SMYRJIÐ
YKKUR SJÁLFIR NESTI!
LÚXUS-
ÍBÚÐIR
TIL SÖLU
Djúpið, Eiðurinn, Hemma, Bræðra-
bylta, Regína o.fl.
Björn Ingi er núna sjálfstætt starf-
andi. Til stendur að leika með hópi
sem heitir Eyja í samstarfsverkefni
með Þjóðleikhúsinu. „Verkið fjallar
um döff-heiminn, og verður leikið
bæði á táknmáli og með hefð-
bundnum texta. Þetta er mjög áhuga-
vert verkefni.“
Áhugamál Björns Inga hafa í gegn-
um tíðina verið íþróttir og hreyfing.
„Ég var að klára landvættaprógramm
og svo finnst mér skemmtilegt að
keyra um landið á Enduro-mótorhjóli
sem ég er búinn að eiga í nokkur ár.“
Fjölskylda
Eiginkona Björns Inga er Hlín
Helga Guðlaugsdóttir, f. 7.3. 1973,
upplifunarhönnuður. Þau eru búsett á
Freyjugötu í Reykjavík. Foreldrar
Hlínar eru hjónin Jónína Eiríksdóttir,
f. 14.2. 1952, kennari og bókasafns-
fræðingur, og Guðlaugur Óskarsson,
f. 4.4. 1949, fyrrverandi skólastjóri.
Þau eru búsett í Reykholti í Borgar-
firði.
Sonur Björns Inga og Eddu Heið-
rúnar Backman, f. 27.11. 1957, d. 1.10.
2016, leikkonu, er 1) Arnmundur
Ernst, f. 28.9. 1989, leikari, búsettur í
Reykjavík. Maki: Ellen Margrét
Bæhrens, leikkona. Sonur þeirra er
Hrafn Jóhann (Krummi), f. 23.4.
2018. Sonur Björns Inga og Hlínar er
2) Bjartur Þór, f. 23.6. 2007.
Systkini Björns Inga: Heiða Hilm-
arsdóttir, f. 18.8. 1959, skrifstofustjóri
á Dalvík; Hólmfríður Hilmarsdóttir,
f. 26.12. 1966, heilsunuddari, búsett í
Kópavogi; og Daníel Þór Hilmarsson,
f. 8.2. 1964, d. 29.12. 2002, byggingar-
verktaki á Dalvík.
Foreldrar Björns Inga: Hjónin
Guðlaug Björnsdóttir, f. 8.2. 1939,
bankastarfsmaður ásamt fleiru, bú-
sett á Dalvík, og Hilmar Daníelsson,
f. 16.9. 1937, d. 21.1. 2016, fram-
kvæmdastjóri á Dalvík.
Björn Ingi
Hilmarsson
Árný Ingibjörg Guðjónsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Valdimar Kristjánsson
vélstjóri á Dalvík
Ingibjörg Valdimarsdóttir
fiskverkunarkona og húsfreyja á Dalvík
Björn Zophonías Gunnlaugsson
vélstjóri á Dalvík
Guðlaug Björnsdóttir
fv. bankastarfsmaður á Dalvík
Hólmfríður Björnsdóttir
húsfreyja víða í Svarfaðardal
og Ólafsfirði, síðast á Dalvík
Gunnlaugur Jónsson
bóndi víða í Svarfaðardal og
Ólafsfirði, síðast búsettur á Dalvík
María Stefánsdóttir
húsfreyja í Samkomugerði
Kristinn Jóhannesson
bóndi í Samkomugerði
í Eyjafjarðarsveit
Gunnhildur Kristinsdóttir
húsfreyja í Saurbæ
Daníel Sigfús Sveinbjörnsson
bóndi og hreppstjóri í Saurbæ í Eyjafjarðarsveit
Sigrún Þuríður Jónsdóttir
húsfreyja í Hleiðargarði
Sveinbjörn Sigtryggsson
bóndi í Hleiðargarði í Eyjafjarðarsveit
Ætt Björns Inga Hilmarssonar
Hilmar Daníelsson
framkvæmdastjóri á Dalvík
Hjörtur Benediktsson á Boðnar-
miði:
Aldrei nemur stundin staðar
stefnir fram ef að er gætt.
Margar fréttir, góðar, glaðar
gaf hún Edda, sem er hætt.
Kristján H. Theodórsson yrkir:
Minn er hagur mest um verður,
makráður vil kvið minn fylla.
Þó sýnist vel af guði gerður,
góðmennskan mér hentar illa.
Brjánn Guðjónsson skrifar: „Ég
má til með að pósta þessari vísu eft-
ir Hrein Guðvarðarson, sem hann
samdi í fyrra og dóttir hans, Helga,
rifjaði upp í dag“:
Nú gatan að gosinu skánar
menn gerðust svo þreyttir og argir
Eg vissi að það voru til bjánar
Eg vissi bara ekki hve margir.
Jón Atli Játvarðarson segir „mik-
ið sjónarspil í fyrrverandi Meradöl-
um“:
Sést á skjánum mögnuð mynd,
sem merar væru í trylltum dönsum.
Steikt á glóðum gömul kind,
en Grindvíkingar halda sönsum.
Ólafur Stefánsson um gosið: „Það
er gangur í og að gosinu“:
Vísur um gosið menn gera
geta’ ekki látið það vera.
Hvort bætir þar í
eða bliknar við ský
þá gýs um þjóðbraut þvera.
Áttþætt vísa eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Sálma Dúna syngur núna,
sífellt hún vill iðka trúna.
Meðan Rúna mjólkar kúna,
Mangi lúna kyssir frúna.
Jóna Guðmundsdóttir yrkir í bók
sinni „Limruleikur“:
Kötturinn
Hróbjartur glaður og hress
er hérumbil laus við allt stress.
Hann læstur er heima
og læðurnar breima
sem er leiðinlegt því hann er fress.
Kvenanagull
Þó stundum í móinn þær maldi
er hann meyjanna draumur hann Valdi:
„Ég byggi þér höll“,
sagði’ ann brattur við Mjöll
og bauð henni’ að gista í tjaldi.
Góð skipti
Gift voru Margrét og Már
í meira en þrjátíu ár.
Þá mun yngri mann
Magga sér fann
en tennur sá hafði og hár.
Sigurður Björgúlfsson orti:
Von um yndi af Amorstind
út í vind er fokin:
Sæðislindin sögð er blind
en söm er girnd og hrokinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sjónarspil í Meradölum