Morgunblaðið - 07.12.2022, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022
Láttu okkur sjá
um jólabaksturinn!
Leiðangur til að leita að loðnunni
lHafrannsóknaskipin eru á miðunum
lVeiðiskip taka einnig þátt í loðnuleit
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson
og Bjarni Sæmundsson héldu til
loðnumælinga sl. mánudag.
Hafrannsóknastofnun gerir ráð fyr-
ir að verkefnið taki allt að tíu daga.
Auk þeirra munu veiðiskip jafnframt
taka þátt í verkefninu og aðstoða við
að afmarka dreifingu loðnustofnsins,
sem flýtir fyrir mælingunum rann-
sóknaskipanna. Þessar rannsóknir
Hafrannsóknastofnunar og útgerða
eru að frumkvæði og kostaðar af út-
gerðum uppsjávarveiðiskipa.
Markmið loðnuleiðangra í desem-
ber er í fyrsta lagi að fá mynd af út-
breiðslu veiðistofnsins. Hún nýtist
bæði við skipulagningu á mælingum
Hafrannsóknastofnunar á stærð
stofnsins í janúar næstkomandi svo
og skipulagningu flotans á veiðum
næstu vikurnar. Í öðru lagi er vonast
eftir því að marktæk mæling á stærð
veiðistofnsins náist, sem mögulega
leiðir til endurskoðunar á veiðiráðgjöf
fyrir komandi loðnuvertíð.
Niðurstaða mælinga á stærð veiði-
stofns loðnu í september sl. reyndist
töluvert lægri en væntingar voru um.
Þær byggðust á niðurstöðum mælinga
á ungloðnu haustið 2021. Mælingar í
fyrra bentu til þess að veiðistofninn
á vertíðinni 2022/23 yrði mun stærri
en haustmælingin í ár bendir til og
ráðgjöf um aflamark byggist á. Vegna
þessa misræmis í niðurstöðum milli
ára verður reynt að ná mælingu á
stærð stofnsins á þessum tímapunkti.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hafrannsóknaskip Bjarni Sæ-
mundsson siglir í Húsavíkurhöfn.
Ef Ava verður brátt
siglingafær að nýju
Bilunin sem varð í leiguskipi Eim-
skips, Ef Ava, suðaustur af Grinda-
vík hinn 24. október síðastliðinn
reyndist alvarlegri en upphaflega
var talið. Áætlað var að viðgerð
tæki hálfan mánuð en nú er ljóst að
hún tekur tæpa tvo mánuði. Standa
vonir til að skipið hefji siglingar að
nýju um miðjan desember.
Bilun kom upp í aðalvél skipsins
sem orsakaði sprengingu sem þar
með olli tjóni á vélinni. Í byrjun
var talið að einungis hefðu orðið
skemmdir á hluta af strokkum
vélarinnar en við frekari skoðun
komu í ljós enn meiri skemmdir.
„Við höfum náð að brúa bilið með
því að færa skip á milli leiða og
einnig færðum við eitt af frystiskip-
um félagins í Noregi til Færeyja.
Það kom sér einnig vel að við vorum
að taka inn nýtt leiguskip í okkar
þjónustu um svipað leyti og Ef Ava
bilaði þannig að það hefur orðið
minniháttar röskun á þjónustu
félagsins,“ segir Edda Rut Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá Eim-
skip. Ef Ava er 7.545 brúttótonna
gámaskip, smíðað 2008. Það siglir
undir portúgölsku flaggi. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipið Ef Ava dregið til hafnar í Reykjavík þar sem viðgerðin fer fram.
STAKSTEINAR
Byrgjum brunninn …
Geir Ágústsson verkfræðing-
ur fjallar um vindmyllur á
blog.is og bendir á að þær hafi
hingað til verið lítil tilrauna-
verkefni hér á landi sem hafi
gengið misvel:
„Á köflum hafa
þær skilað mik-
illi og samfelldri
orku, á öðrum
köflum hafa
þær brunnið.
Við vitum öll
hvernig vind-
myllur líta út
í umhverfinu
og hvaða ónæði
getur stafað af þeim. Vængirn-
ir geta brotnað af og skapað
hættu. Þær snúast í gegnum
loftið og fuglar sem rekast á
vængina koma limlestir og jafn-
vel höfuð- eða vænglausir út
úr slíkum árekstri. Þær þurfa
mikið viðhald og flestar gerðir
vængja er ekki hægt að endur-
nýta og þá eru þeir grafnir í
jörðina. Og ef það blæs of mikið,
eða of lítið, þá framleiða þær
ekkert.“
Hann bendir á að staðsetning
vindmylla geti haft mikla
þýðingu fyrir fuglalíf og valdið
miklum fugladauða séu þær á
slóð farfugla.
Geir segist ekki vera á móti
vindmyllum í sjálfu sér en
að það þurfi að læra af þeirri
reynslu sem þegar er fyrir
hendi erlendis. Um þetta hafi
lítið verið rætt hér á landi,
meðal annars um hættuna sem
fuglum stafar af vindmyllunum.
Þetta eru ábendingar sem
skipta máli, ekki síst nú,
þegar fram eru komnar hug-
myndir um stórkostlega „vind-
myllugarða“. Eins og Geir bendir
á er betra að reyna að meta
afleiðingarnar áður en lagt er af
stað.
Geir
Ágústsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
ATHUGASEMD
Í frétt um ábendingar til Neytenda-
stofu í blaðinu í gær var mynd úr
tilteknu fyrirtæki. Tekið skal fram
að fyrirtækið tengdist ekki efni
fréttarinnar á nokkurn hátt. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Mynd tengdist ekki frétt