Morgunblaðið - 07.12.2022, Side 24
MENNING24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið úrvalið á
hjahrafnhildi.is
Náttföt á hana og hann
Þýsk vara á frábæru verði
Kvartett söngkonunnar og laga-
höfundarins Stínu Ágústsdóttur
heldur tónleika í kvöld kl. 20 á
Björtuloftum í Hörpu. Tónleik-
arnir eru á dagskrá Jazzklúbbs-
ins Múlans. Stína er djasstón-
listarkona og hefur hin síðustu
ár fengið margar tilnefningar til
Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir plötur sínar. „Í heimsfar-
aldrinum fann hún tónlistinni
farveg með stjörnubassaleikaran-
umHenrik Linder (Dirty Loops)
og þau hófu skemmtilegt sam-
starf sem hefur tekið þau víða og
gefið þeim tækifæri til að spila
með mörgum fremstu tónlistar-
mönnumNorðurlandanna. Hen-
rik lék m.a. á síðustu sólóplötu
Stínu,Drown to Die a Little, sem
hefur hlotið mikið lof gagn-
rýnenda,“ segir í tilkynningu. Nú
eru þau komin til Íslands og með
í för er trumbuslagarinnMorgan
Ågren sem hefur m.a. leikið fyrir
Frank Zappa. Hilmar Jensson
gítarleikari leikur með Stínu,
Linder og Ågren áMúlanum og
á efnisskránni verða frumsamin
lög eftir Stínu og Linder, lög úr
amerísku söngbókinni og popplög
í útúrdjössuðum útsetningum,
eins og því er lýst. Linder þykir
með betri bassaleikurum heims
og kemur nú hingað til lands í
fimmta sinn.
Ågren er einn af bestu
fusion-trommuleikurum heims að
mati tímaritsinsModern Drum-
mer, segir í tilkynningu, og hefur
unnið til Grammy-verðlauna og
tónlistarverðlauna í Svíþjóð.
Hilmar er landsþekktur gítar-
leikari sem Stína og Henrik léku
með í Stokkhólmi fyrr á árinu.
lDjassað íMúlanumáBjörtuloftum
Kvartett Stínu
heldur tónleika
Djassari Stína Ágústsdóttir er
djasssöngkona og lagasmiður.
Ný bók frá Rushdie
kemur út í febrúar
Útdráttur úr
væntanlegri
skáldsögu eft-
ir bresk-ind-
verska
rithöfund-
inn Salman
Rushdie hefur
verið birtur
á vef The
New Yorker.
Aðeins eru fjórir mánuðir síðan
ráðist var á Rushdie með þeim
afleiðingum að hann missti sjón
á öðru auga og mátt í öðrum
handleggnum. Í fyrstu færslu
sinni á Twitter frá því árásin
átti sér stað staðfestir Rushdie
að ný skáldsaga hans sé vænt-
anleg í febrúar á næsta ári og
beri titilinn Victory City.
Salman Rushdie
Kirstie Alley látin
71 árs að aldri
Bandaríska leikkonan Kirstie
Alley er látin, 71 árs að aldri, eftir
stutta baráttu við krabbamein.
Þetta staðfesta börnin hennar
tvö í færslu á Instagram. Alley
vakti fyrst raunverulega athygli
sem leikkona í hlutverki sínu sem
Rebecca Howe í sjónvarpsþátt-
unum Cheers (Staupasteini), en
hún lék í 148 þáttum á árunum
1987-1993 og hlaut bæði Emmy-
og Golden Globe-verðlaun fyrir
túlkun sína á Howe árið 1991.
Á árunum 1997-2000 lék hún í
sjónvarpsþáttunumVeronica's
Closet. Hún er einnig þekkt fyrir
leik sinn í kvikmyndunum Look
Who’s Talking (1989) og Look
Who’s Talking Too (1990) með
John Travolta ogAnd It Takes
Two (1995) með systrunumMary-
Kate og Ashley Olsen.
AFP/Chris Delmas
Leikkona Kirstie Alley árið 2001.
að átta mig á því hvar tónlistar-
menn hafa verið, hverja þeir hafa
umgengist og hvað þeir hafa verið
að hlusta á,“ segir Páll.
Tónskáldin sem eiga verk á tón-
leikunum tengjast öll og eru nokkur
þeirra eistnesk, því þar lærði Páll
um árabil. „Helena Tulve kenndi
mér og Erkki-Sven Tüür, sem er
sennilega næstfrægasta tónskáld
Eista, kenndi henni og það er frægt
að hún er eini nemandinn sem hann
hefur tekið að sér. Svo hér heima
hef ég verið að kenna í Listahá-
skólanum og þar á meðal henni
Veronique Vöku. Svo fannst okkur
Arvo Pärt eiga að vera með líka. Út
frá þessari Eistlandstengingu er
hann náttúrlega ákveðinn lærifaðir
allra á staðnum.“
Páll viðurkennir að dvölin í
Eistlandi hafi verið mótandi og vel
geti verið að einhver geti greint
áhrif þaðan á tónleikunum. Spurður
hvort heyra megi eitthvað sér-
eistneskt í verkum tónskáldanna
segir hann: „Það eru augljóslega
einhver stílleg áhrif og tæknileg
en það er kannski meira einhvers
konar hugarástand, fagurfræði
eða andrúmsloft. Ég held að það
muni alveg heyrast einhver rauður
þráður þarna í gegn þó að auðvit-
að hafi hvert tónskáld sinn eigin
persónuleika sem er líka augljós.“
Tónskáldið Páll Ragnar Pálsson
fagnar plötu sinni Atonement, sem
kom út hjá Sono Luminus vorið
2020, með tónleikum í Kaldalóni
Hörpu í kvöld, miðvikudag, kl. 20.
Kammerhópurinn Caput og söng-
konan Tui Hirv flytja verk Páls í
bland við verk annarra tónskálda.
Eitt verkið af plötunni, „Monolog
Stalkera“, var samið fyrir Caput
sem flumflutti verkið á Myrkum
músíkdögum 2014. „Það markaði
svolítið upphafið að þessari plötu.
Við töluðum þá strax um að það
væri einhver heild þarna sem okkur
langaði að gera eitthvað meira
með,“ segir hann.
Tui Hirv, eiginkona Páls, hefur
einnig átt sinn þátt í ferlinu. „Það
hefur verið stór partur af mínu
tónskáldalífi að við vinnum saman
alltaf af og til frá því við kynnumst.“
Á plötunni er að finna kammer-
verk fyrir fimm til níu flytjendur.
„Þau sýna rosalega vel mig á
mínum mótunarárum. Þarna bjó
ég mér til ákveðinn kjarna sem allt
sem ég geri sprettur út frá. En ég
hef verið að leika mér með það í
seinni tíð að snúa honum á hvolf og
mynda mér ný sjónarhorn á hann.“
Einkennandi andrúmsloft
Þegar platan kom út voru
samkomutakmarkanir við lýði
vegna Covid og því ekki hægt að
halda tónleika. Páll segir að þar
sem svo langt sé liðið frá útgáf-
unni þá hafi honum fundist óþarfi
að einblína eingöngu á verkin á
plötunni og tilvalið að þróa konsept
plötunnar áfram.
„Þá kom upp þessi hugmynd að
búa til svona tónlistarlegt ættar-
tré. Mér finnst sjálfum ótrúlega
áhugavert að kynna mér hver
lærir hjá hverjum og skoða hvernig
hugmyndir ferðast á milli manna.
Og ekki bara hver lærir hjá hverjum
heldur einnig hvernig fólk verður
fyrir áhrifum frá öllu í kringum sig.
Mér finnst mjög áhugavert að rekja
mig aftur í tímann til þess að reyna
lPáll RagnarPálsson fagnar plötunniAtonementmeð tónleikunumAtone-
mentættartrélVerk fimmtónskáldalEistnesk áhrifmynda rauðan þráð
Myndar ættartré tónskálda
Flytjendurnir Kammerhópurinn Caput og Tui Hirv við upptökur á plötunni Atonement. Þau flytja verkin í kvöld.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hjónin Tónskáldið Páll Ragnar Pálsson og söngkonan Tui Hirv.