Morgunblaðið - 07.12.2022, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 21
Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík
415 4000 | kemi.is | kemi@kemi.is
Bílavarahlutir
BOSCH
vél sem ég breytti til þess að fara í
holurnar. Áður fyrr veiddi ég lunda
en ég hef ekki veitt einn einasta lunda
síðan ég byrjaði á þessu nema til að
rannsaka og merkja og ég ber mikla
virðingu fyrir öllu dýralífi.“
Fjölskylda
EiginkonaMara er Marý Ólöf
Kolbeinsdóttir, f. 24.11. 1955, fædd og
uppalinn í Vestmannaeyjum. „Ég og
mín frábæra og þolinmóða kona flutt-
um á Fjólugötu 15 árið 1977 og höfum
búið hér síðan.“ Foreldrar Marý voru
Kolbeinn Oddur Sigurjónsson, f. 12.9.
1932, d. 27.5. 2020, verkamaður, og
Sigríður Sigurðardóttir, f. 26.8. 1932,
d. 2.5. 1992, lengst af húsmóðir.
BörnMara ogMarý: 1) Heiða
Björk, f. 1.2 1974, húsmóðir í Kópa-
vogi. Börn hennar eru Aníta Marý,
f. 9.5. 1993, barn hennar er Lena
Sigurrós, Sigurvin Marinó, f. 14.4.
2000 og Auðun Benedikt, f. 29.6.
2007; 2) Bjarni Ólafur, f. 9.5. 1976,
pípulagningameistari og bygginga-
fræðingur, bús. í Eyjum. Eiginkona
er Tinna Tómasdóttir f. 6.10. 1979,
talmeinafræðingur. Börn þeirra eru
Emelía Ögn, f. 20.8. 2003, Nói, f. 18.10.
2008 og Sara Björk, f. 28.12. 2010; 3)
Ingibjörg, f. 7.6. 1983, d. 29.6. 1987; 4)
Ingibjörg Ósk, f. 29.8. 1990, nagla-
fræðingur, bús. í Eyjum. Eiginmaður
er Jóhann Birnir. f. 11.6. 1991, verka-
maður. Dóttir þeirra er Kristel Mist,
f. 12.9. 2009; 5) Sigursteinn, f. 14.6.
1992, vélvirki, bús. í Eyjum. eiginkona
er Diljá Daðadóttir, f. 20.5. 1994,
aðstoðarverslunarstjóri. Börn þeirra
eru Hera, f. 13.3. 2014, og Hrafn, f.
21.11. 2017.
Systur Mara eru Inga Birna, f. 21.9.
1947, bús. í Eyjum; Guðbjörg Hrönn,
f. 17.2. 1956, bús. í Eyjum, og Ester, f.
24.3. 1965, bús. í Lundi í Svíþjóð.
Foreldrar Mara voru hjónin
Sigfríður Björnsdóttir, f. 11.9. 1926, d.
30.6. 2007, húsmóðir, og Sigursteinn
Marinósson, f. 9.7. 1927, d. 8.12. 2017,
pípulagningameistari. Þau voru
búsett í Vestmannaeyjum.
Sigurvin Marinó
Sigursteinsson
Manasína Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Brekku, síðar á Brautarhóli á Grenivík
Jón Jónsson Fanndal
bóndi á Brekku í Hvalvatnsfirði í Fjörðum,
og b. og sjóm. á Bæjarstæði í Seyðisfirði,
síðast bús. á Brakanda í Hörgárdal
Sigurvin Marinó Jónsson
pípulagningameistari og
vélamaður í Vestmannaeyjum
Guðbjörg Guðnadóttir
húsmóðir í Vestmannaeyjum
Sigursteinn
Marinósson
pípulagningameistari
í Vestmannaeyjum
Stefanía Guðrún Sigmundsdóttir
húsfreyja á Heiði og í Vestmannaeyjum
Guðni Hallgrímur Jónsson
bóndi á Heiði í Sléttuhlíð, Skag.,
síðar verkamaður í Vestmannaeyjum
Halldóra Jónsdóttir
húsmóðir í Hlaðbæ
Bjarni Einarsson
bóndi í Hlaðbæ í Vestmannaeyjum
Björn Bjarnason
vélstjóri og útgerðarmaður í Bólstaðarhlíð
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsmóðir í Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum
Ólafur Ólafsson
bóndi í Dalseli og Eyvindarholti undir Eyjafjöllum
Sigríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Dalseli og Eyvindarholti
Ætt Marinós Sigursteinssonar
Sigfríður Björnsdóttir
húsmóðir
í Vestmannaeyjum
Vísnahorn
Ein flaska á dag
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
þessari stöku að gamni sínu:
Alltaf tek ég af því mið
enda þarft aðmuna:
Ef stöku geri styðst ég við
stuðlasetninguna.
Pétur Stefánsson segist á
Boðnarmiði lítið þurfa að kvarta
meðan hann á til hnífs og skeiðar.
Alls ótrauður arka hér
ummitt hauður fríða.
Það er auður þykir mér
þurfa ei nauð að líða.
Um verkalýðsmál yrkir Pétur:
Vont er líf hjáVilla Bigg,
-vinahjalið þagnar
síst af öllum sýnast hrygg,
SólveigAnna og Ragnar.
Vinasambönd sundur láku,
svæsið eftir vopnaskak
er SólveigAnna og Ragnar ráku
rýtinginn í Vilhjálms bak.
Guðbrandur Þorkell Guð-
brandsson svarar og segist ekki
sammála:
Frá þér hefur vitið vikið
veslingsmaður, að eg hygg.
Hafi einhver annan svikið
er það fóliðVilli Bigg.
Jón Jens Kristjánsson yrkir
„rúningslimrur með stolnum
endum“:
Sá hrútur semHólmgrímur lagði
með hálftaf og fjöður og bragði
barðist um hart
þá brotnaði margt
en bundin var tungan og þagði
Það brákaðist borðviður fúinn
að bógum var hrúturinn rúinn
þá sýnt var kapp
þegar hann slapp
og þarmeð var draumurinn búinn
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
yrkir:
Nú vantarmig vínföng og þó
sagði Víglundur gamli og hló.
Ein flaska á dag
kemur flestu í lag
sagði karlinn þann dag sem hann dó
Philip Vogler, Egilsstöðum,
svaraði:
Ei vantaði Víglund hér töf,
væn komnáðargjöf.
Heilsan snemma dags
hrapaði nánast strax.
Við normaldreifingu góð því gröf.
Og Guðrún Bjarnadóttir:
Víglundur vildi fá stuð.
Vínflösku hlaut, út á puð,
og datt svo í það
í draumi um að
hitta sinn heilaga guð.
„JÆJA, MIKIÐ VAR AÐ ÞÚ VAKNAÐIR. ÞÚ
ERT BÚINN AÐ VERA Í DÁI Í 27 VIRKA
DAGA.“
„HANN SAGÐI AÐ GLER VÆRI „BESTI
VINUR MANNSINS“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geta stólað á að fá
smádekur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG NÚ SNÝR „HUNDAHRYLL-
INGSLEIKHÚSIГ AFTUR
SNOTRA, ÉG ÆTLA RÉTT AÐ
BREGÐA MÉR ÚT OG NÁ Í PÓSTINN
Í PÓSTKASSANN. ÉG VERÐ Í BURTU
Í 10 SEKÚNDUR, ÓKEI?
SKELL JÆÆÆKS
ÞETTA VAR Á ÓSKALISTANUM HJÁ ÞEIM ÖLLUM!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is