Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022FRÉTTIR • Glæsilegt morgunverðarhlaðborð frá kl. 7.00-10.30* • Fitness salur með öllum græjum ásamt Sauna og Steambað* • Veitingasalur opinn frá kl. 12.00-01.00 alla daga vikunnar • Staðsetning er steinsnar frá Strikinu, fjölda veitingastaða og verslana Niko ehf, Austurvegi 6, 800 Selfoss, sími 783-9300, www.sktpetri.is hotel@sktpetri.is Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn Heill heimur út af fyrir sig – Lúxushótel í hjarta borgarinnar Kynnið ykkur sérverð okkar fyrir árið 2022 á www.sktpetri.is Einfalt að bóka – engar greiðslur fyrirfram og hægt að afpanta með eins dags fyrirvara án kostnaðar *Morgunverður og aðgangur að fitness er ávallt innifalinn í okkar verði VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR S&P 500 NASDAQ +0,54% 10.706,504 +2,82% 3.677,95 +1,26% 6.936,74 FTSE 100 NIKKEI 225 Unnið í samstarfi við ReitunHreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. +3,50% 27.156,14 120 80 GULLVERÐ ($/únsu) 18.4.'22 1.500 2.000 1.982,9 89,11 18.10.'22 113,16 18.10.'22 1.653,0 18.4.'22 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) Mesta hækkun EIM +10,76% 525,00 Mesta lækkun SIMINN 0,00% 11,20 Snemma árs eignaðist flugþjónusturisinn Avia Solutions Group allan rekstur íslenska frakt- flugfélagsins Bláfugls. Þetta var um það leyti sem fyrstu fréttir tóku að berast af skæðum veirusjúkdómi í Kína og hafa undanfarin tvö og hálft ár svo sannarlega verið krefjandi tími fyrir fluggeirann. Tom Klein segir þann rekstur sem tilheyrir Bláfugli engu að síður hafa þrefaldast frá því kaupin voru gerð. „Starfsemi Bláfugls var á margan hátt á góðum stað og félagið bjó að mjög sterkum hópi viðskiptavina en átti erfitt með að vaxa. Við tókum við góðu teymi fólks og góðum sam- böndum og síðan þá hefur bæði stærð félags- ins, velta og tekjur um það bil þrefaldast,“ útskýrir Klein en hann situr í stjórn Avia og er þar að auki framkvæmdastjóri hjá bandaríska fjárfestingarsjóðnum Certares Management. Certares sérhæfir sig í fjárfestingum á sviði flugþjónustu og ferðaþjónustu og heldur utan um nærri 8,3 milljarða dala eignasafn. Í des- ember á síðasta ári veitti Certares 300 milljóna evra innspýtingu í rekstur Avia, m.a. til að auðvelda félaginu að halda áfram að vaxa með yfirtökum. Avia var stofnað árið 2010 en hefur náð að vaxa mjög hratt og hefur núna yfir að ráða flota 137 flugvéla. Félagið er með starfs- stöðvar af ýmsu tagi á fleiri en 100 stöðum í heiminum. Það leigir út bæði farþega- og fraktflugvélar, rekur hótel og gerir út einka- þotur, auk þess að starfrækja viðgerða- og viðhaldsverkstæði fyrir flugvélar. Breyttu farþegavélum í fraktflugvélar „Avia var rekið með hagnaði í gegnum allan faraldurinn og varð það fyrirtækinu til happs að þegar farþegaflug nánast lagðist af var félagið vel í stakk búið til að leggja aukna áherslu á fraktflutninga og njóta góðs af auk- inni eftirspurn á þeim markaði,“ útskýrir Klein en félagið festi m.a. kaup á fraktflug- vélum snemma í faraldrinum og endur- innréttaði líka sumar farþegaþotur sínar til að breyta þeim í flutningavélar. „Þær raskanir sem urðu á skipaflutningum þýddu að skyndilega jókst þörfin fyrir frakt- flug og alls kyns vörur og íhluti, sem áður voru send sjóleiðina á milli landa, þurfti allt í einu að senda með flugi.“ Klein reiknar með að það taki nokkur ár til viðbótar að koma alþjóðlegum flutningaleiðum aftur í samt horf. „Framleiðendur eru í vanda staddir því að- fangakeðjurnar eru úr lagi gengnar og ekki hægt að skipuleggja framleiðsluna þannig að íhlutir berist sjó- og landleiðina á allra síðustu stundu. Á meðan þetta ástand ríkir munu selj- endur og kaupendur halda áfram að reiða sig á fraktflug. Markaðurinn kann að róast lítillega en það er útlit fyrir áframhaldandi vöxt og að ekki dragi úr eftirspurn eftir fraktflugi í bráð.“ Í þessu markaðsumhverfi segir Klein að það hjálpi Avia hvað reksturinn er umfangsmikill. „Við höfum nægilega burði til að hafa fólk að störfum um allan heim sem er á höttunum eftir hentugum flugvélum sem við getum bætt við flotann okkar. Þá höfum við búið í haginn fyrir áframhaldandi stækkun með því að tryggja okkur kaup og breytingar á flugvélum sem eru að nálgast endalokin á heppilegum notkunar- tíma sem farþegavélar og geta hafið nýtt líf sem fraktflugvélar. Erum við t.d. spennt fyrir að bæta við okkur vélum á borð við Boeing 777.“ Blautleiga eykur skilvirkni Tekið er að birta yfir fluggeira og ferðaþjón- ustu og þar sem smitvörnum hefur verið aflétt hafa flugvélar og hótel fyllst á augabragði. Þá hefur komið í ljós að mörg flugfélög eiga erfitt með að bregðast við þessum öra viðsnúningi og eiga jafnvel fullt í fangi með að fylla flug- stjórasætin. Klein segir Avia búa svo vel að hafa í vinnu hjá sér flugmenn sem eru ýmist í föstu starfi eða sveigjanlegir verktakar. Þar að auki starfrækir félagið eigin flugskóla, og því enginn hörgull á fólki. Metnaðurinn er engu síðri þegar kemur að þjálfun flugþjóna en Avia býður upp á svokallaða blautleigu (e. wet leas- ing, eða ACMI). Þá eru vélarnar leigðar með áhöfn og bæði tryggingar og viðhald innifalin og það þjónustustig sem farþegar njóta jafn- gott eða betra en tíðkast hjá flugfélaginu sem leigir vélina. Klein segir það orðið nauðsynlegan lið í rekstri margra flugfélaga að nýta sér blaut- leigu til að takast á við sveiflur í eftirspurn. „Á Evrópumarkaði er t.d. 31% meiri eftir- spurn eftir farþegaflugi á sumrin en á veturna og fyrir utan nýtingu á flugvélaflotanum þá er einfaldlega hægara sagt en gert fyrir flug- félögin að reyna að semja við flugstjóra og flugþjóna um að gera hlé á störfum hluta úr árinu.“ Vill svo heppilega til að þegar eftirspurnin er í lágmarki í Evrópu vantar flugvélar t.d. í Suður-Ameríku, og hægt að flytja blautleigu- flotann á milli markaðssvæða í takt við það hvar þörfin er mest. Hægir ekki á markaðinum í bráð Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í faraldrinum varð kippur í eftirspurn eftir fraktflugi. Nýir eigendur hafa þrefaldað starfsemi Bláfugls á aðeins tæpum þremur árum. Tom Klein segir Avia Solutions Group, móð- urfélag Bláfugls, hafa verið rekið með hagn- aði allan faraldurinn. RÍKISREKSTUR Íslandspóstur tapaði 118,5 milljónum króna á fyrri hluta ársins, saman- borið við 146 milljóna króna tap á fyrri hluta árs 2021. Tekjur fyrir- tækisins drógust saman um 181 millj- ón á tímabilinu og rekstrarkostnaður dróst saman um 77,3 milljónir. Þann- ig versnaði rekstrarafkoma fyrir- tækisins (EBITDA) um rúmar 103 milljónir og nam 91,6 milljónum nú. Handbært fé í lok tímabilsins var 425,3 milljónir og hafði lækkað úr 788 milljónum í árslok 2021. Eignir Íslandspósts námu rúmum sex milljörðum um mitt ár og höfðu dregist saman um rúman hálfan milljarð á hálfu ári. Munar þar mest um lægri viðskiptakröfur sem stóðu í 649 milljónum í samanburði við rúman milljarð um áramót. Skuldir fyrirtækisins höfðu sömuleiðis lækkað og námu 2,6 milljörðum í lok júnímánaðar en höfðu verið tæpir þrír milljarðar um áramót. Stöðugildum hjá Póstinum hefur fækkað talsvert á árinu. Voru þau 513 í lok júnímánaðar og hafði þá fækkað um 43 frá áramótum. Jafngildir það 7,7% fækkun. Í skýrslu stjórnar Íslandspósts sem birt er með árshlutareikningi fyrirtækisins segir að ytra umhverfi þess hafi kallað á aukna kostnaðar- vitund innan þess og að verð- hækkanir í nærumhverfinu hafi sett aukna pressu á reksturinn. Pósturinn tapar 118,5 milljónum á hálfu ári Morgunblaðið/Eggert Pósturinn hefur fengið 1,1 milljarð úr ríkissjóði á síðustu tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.