Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022FRÉTTIR Glaðningur fyrir tvo, Rómantík á flottu hóteli, Dekurstund, Gourmet á glæsilegum veitingastað, Bröns fyrir tvo og Kósý kvöld eru meðal vinsælla Óskaskrína. Gefðu upplifun í öskju. Fæst í Pennanum Eymundsson, Hagkaup og á oskaskrin.is. 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is ÓSKASKRÍN GEFUR SVOMARGT Hlutfall erlendra ríkisborgara sem eru búsettir í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu hefur tvöfald- ast frá miðju ári 2010, ef undan er skilinn Garðabær en þar hefur hlut- fallið tæplega tvöfaldast. Á sama tíma hefur innflytjendum á vinnu- markaði fjölgað úr um 15.500 í rúm- lega 44.000, sem er nærri þreföldun. Hlutfall erlendra ríkisborgara af íbúafjölda Reykjavíkur var tæplega 19 prósent um mitt þetta ár og er það hæsta á höfuðborgarsvæðinu eins og hér er sýnt á grafi. Hlutfallið er næsthæst í Hafnarfirði en þar er það orðið ríflega 13 prósent. Fylgir hagvaxtarskeiðinu Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um á aðflutningur erlends vinnuafls mikinn þátt í fjölgun fólks á vinnumarkaði eftir að hagvaxtar- skeið hófst á ný árið 2011. Vignir Ö. Hafþórsson, sérfræð- ingur hjá Vinnumálastofnun, sagði í samtali við blaðið fyrir helgi að það muni að óbreyttu þurfa að flytja inn erlent vinnuafl til að manna lausar stöður í hagkerfinu á næsta ári. Þá meðal annars í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Vinnumálastofnun hafi ekki áætl- að hversu mörg störf muni skapast í hagkerfinu á næsta ári en ætla megi að atvinnuleysið verði 2-3 prósent. Erfitt að finna starfsfólk Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir mikinn skort á vinnuafli í verslun og þjónustu. „Stóra myndin er þessi: Síðan ég kom hér til starfa hafa félagsmenn okkar aldrei kvartað jafn mikið undan því að erfitt sé að ráða fólk. Þá sérstaklega fólk sem stenst til- teknar hæfniskröfur,“ segir Andrés. „Ef við tökum smásölu og heild- sölu sérstaklega fyrir þá eru þessar greinar að ganga í gegnum umbreyt- ingar út af stafrænni tækni sem eru meiri umbreytingar en orðið hafa í verslun áratugum saman. Þá er ég ekki aðeins að tala um Ísland heldur stöðuna alls staðar í Evrópu. Þetta kallar á breyttar hæfniskröfur hjá starfsfólki og þetta er ein stærsta áskorunin sem við blasir í greininni, bæði á Íslandi og alls staðar í lönd- unum í kringum okkur; að tryggja að greinin hafi aðgang að starfsfólki með rétta hæfni. Ég sat nýverið fundi hjá Evrópu- samtökunum okkar og í norrænu samstarfi, sem við eigum aðild að, og þetta er eitt af þremur stóru við- fangsefnunum sem við blasa. Hin tvö eru stafræn umbreyting og sjálf- bærni,“ segir Andrés. Ekki annarra kosta völ Spurður hvernig þessi skortur tengist fjölgun erlendra ríkisborg- ara á höfuðborgarsvæðinu bendir Andrés á að fimmtungur vinnuafls- ins á Íslandi sé nú fólk af erlendum uppruna. Það gildi það sama í stór- mörkuðum, hjá skipafélögum og á mörgum stórum vinnustöðum að ekki sé völ á öðru en erlendu starfs- fólki. Ein skýringin sé að innlent vinnuafl gefi ekki kost á sér í störfin. „Ef auka á framleiðslugetuna í ferðaþjónustu og byggja allar þessar íbúðir sem þörf er talin á, þá gerist það ekki nema með innfluttu vinnu- afli. Þetta eru mannaflsfrekar grein- ar og hin hliðin á teningnum eru auðvitað þensluáhrifin sem þetta hefur í för með sér. Og það er hitt áhyggjuefnið.“ Óraunhæfar kröfur Nokkur umræða hefur skapast um merkingar í flugstöðinni á Kefla- víkurflugvelli og raunar víðar. Nán- ar tiltekið um vægi íslenskunnar í slíkum merkingum. Andrés segir aðspurður að Íslend- ingar þurfi að venjast því að merk- ingar í til dæmis matvörubúðum séu jafnframt á ensku. „Það er ekki spurning. Og á pólsku. Víða eru komnar merkingar á pólsku og jafnvel víetnömsku eða taílensku. Þá kannski fremur í sund- laugum, við göngustíga og þess hátt- ar en ég sé ekki annað í stöðunni en að merkingar í verslunum þurfi að vera á fleiri tungumálum en ís- lensku. Það er sjálfsagt og eðlilegt að hafa íslensku efst en óraunhæft að hafa merkingar aðeins á íslensku. Við verðum að laga okkur að þess- um veruleika. Það eru minnst 60 þúsund manns hér á landi, af alls 385 þúsund íbúum, sem eru af erlendum uppruna og óvíða er hlutfallið orðið jafn hátt. Þannig að 15 til 20 prósent íbúanna hafa orðið annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Að mínu mati getum við sem samfélag ekkert annað en lagað okkur að því.“ Farið að hamla fyrirtækjum Ingólfur Bender, aðalhagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins, segir stefna í óefni í sumum greinum vegna skorts á vinnuafli. „Atvinnuleysið er orðið hverfandi lítið og skortur er á vinnuafli í mörg- um greinum efnahagslífsins. Á þetta sérstaklega við um greinar sem hafa verið að vaxa hratt undanfarið. Það er mikill skortur á sérmenntuðu vinnuafli. Fram kemur hjá stjórn- endum fyrirtækja sem tóku þátt í könnun sem Outcome gerði fyrir Samtök iðnaðarins fyrir skömmu að þeir telji að framboð á sérmenntuðu vinnuafli verði takmarkandi þáttur fyrir vöxt fyrirtækisins litið til næstu 12 mánaða. Um 75% eða þrír af hverjum fjórum svara því játandi. Nei segja ríflega 8%. Það stefnir því í óefni,“ segir Ingólfur. Meiri launahækkun en víðast Samkvæmt Eurostat, hagstofu ESB, jókst launakostnaður milli annars fjórðungs 2021 og 2022 einna mest á Íslandi. Nánar tiltekið hækk- uðu launin á Íslandi meira en í 20 af 27 aðildarríkjum ESB. Þá hækkuðu launin um tvöfalt meira á Íslandi en í Noregi á þessu tímabili. Spurður um þessa þróun segir Ingólfur að launahækkanir á Íslandi geri Ísland að fýsilegri stað fyrir er- lent vinnuafl í leit að tækifærum. Í fyrra hafi launakostnaður á hverja unna stund verið með því hæsta sem gerist og um 30% hærri en að meðaltali í Evrópu. „Raungengi krónunnar á mæli- kvarða launa, sem sýnir þróun hlut- falls launakostnaðar á framleidda einingu hér á landi og í löndum helstu samkeppnisaðila, hefur verið að hækka undanfarið samhliða styrkingu krónunnar og hækkun innlendra launa. Samkeppnisstaða innlendra fyrirtækja gagnvart er- lendum keppinautum þeirra hefur versnað og er þung um þessar mundir. Hin hliðin á því er að samkeppnis- staða okkar um erlent vinnuafl er góð hvað þetta varðar. Hjálpar það við að ná hingað því vinnuafli sem við þurfum,“ segir Ingólfur. Mikil breyting á vinnumarkaði Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hlutfall erlendra ríkisborgara sem eru búsettir í sveitar- félögunum á höfuðborgarsvæðinu hefur tvöfaldast frá miðju ári 2010, ef undan er skilinn Garðabær en þar hefur hlutfallið tæplega tvöfaldast. Þessi hraða aukning hefur í för með sér breytingar á vinnumarkaði og þykir jafnframt kalla á aðlögun þjónustu sem veitt er í verslunum. Hlutfall erlendra ríkisborgara af íbúafjölda á höfuðborgarsvæðinu Á öðrum ársfjórðungi ár hvert, eftir sveitarfélögum 2010 til 2022 18% 15% 12% 9% 6% 3% 0% Heimild: Hagstofa Íslands 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2. ársfj. '10 2. ársfj. '22 Aukning Reykjavík 7,9% 18,9% x2,4 Hafnarfjörður 6,2% 13,1% x2,1 Kópavogur 5,6% 11,6% x2,1 Mosfellsbær 4,1% 9,9% x2,4 Seltjarnarnes 4,4% 9,8% x2,2 Garðabær 3,2% 5,6% x1,8 Höfuðborgarsvæðið 6,8% 15,3% x2,3 18,9% 16,6% 13,4% 9,6% 3,2% 7,9% 11,1% 13,5% 11,3% 4,9% 4,0% 8,3% 10,5% 8,7% 15,3% 13,1% 11,6% 9,9% 9,8% 5,6% Reykjavík Seltjarnarnes Kópavogur Mosfellsbær Garðabær Höfuðborgarsv. Hafnarfj. Andrés Magnússon Ingólfur Bender Hækkun heildarkostnaðar tímalauna Frá 2. ársfj. 2021 til 2. ársfj. 2022 (%) 12 10 8 6 4 2 0 Ísland Önnur norræn lönd Önnur Evrópulönd Meðaltöl Heimild: Eurostat G rik kl an d Fi nn la nd D an m ör k H ol la nd Sp án n Fr ak kl an d Sv íþ jó ð Íta lía Té kk la nd N or eg ur Sl óv en ía Ký pu r Ev ru sv æ ði ð Ír la nd ES B- m eð al ta l B el gí a Þý sk al an d Po rt úg al Sl óv ak ía Lú xe m bo rg M al ta Au st ur rík i Le tt la nd Ís la nd Kr óa tía Ei st la nd Pó lla nd Rú m en ía Li th áe n B úl ga ría U ng ve rja la nd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.