Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.10.2022, Blaðsíða 9
Vendôme mitt í París þegar hún bjó á Ritz-hótelinu sem vísar einmitt út á torgið. Útkoman er stílhreinn og fjölhæfur aukahlutur sem passar vel við hvort heldur sem er íburðarmikinn síðkjól, alvörugefna vinnudragt eða afslappaðan hversdagsfatnað. Kostar Première édition orig- inale 5.500 evrur í nýuppgerðri verslun Chanel við Place Ven- dôme. Fleiri útgáfur af úrinu eru í boði, s.s. með silfurhúð, með gúmmíól, og með langri keðjuól sem má vefja þrisvar um úlnlið- inn. Þeir lesendur sem eiga sand af seðlum ættu að skoða demants- og perlu- útfærslurnar sem kosta frá 75.000 evrum. ai@mbl.is Lj ós m yn d/ C ha ne l Première- armbandsúrið frá Chanel. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 9SJÓNARHÓLL Ö r vöxtur íslenskrar ferðaþjónustu síðastliðinn ára- tug hefur skilað landsmönnum bættum lífs- kjörum, atvinnusköpun, jákvæðri byggðaþróun og fjölbreyttara efnahagslífi. Verðmætasköpun ferða- þjónustu hefur verið drifin áfram af fjölda ferðamanna fremur en auknum verðmætum á hvern ferðamann. Eftir tvö erfið ár í ferðaþjónustu hefur hagur atvinnu- greinarinnar vænkast hratt og samhliða hefur efnahagur þjóðarbúsins rétt úr kútnum. Hins vegar hafa alþjóðlegar efnahagshorfur versnað hratt, ekki síst vegna hækkunar orkuverðs, aukinnar verðbólgu og þróunar stríðsátaka í Úkraínu. Talsverð óvissa er því til staðar um hag- þróun í okkar helstu við- skiptalöndum og staða ferðaþjónustu viðkvæm. Með dekkri efnahags- horfum og aukinni óvissu mun ferðavilji að öllum líkindum dragast saman og samkeppni um ferðamenn aukast sem gæti haft áhrif hér á landi. Verðmætari ferðamenn Ljóst er að framundan er sú verðuga áskorun að við- halda verðmætaaukningu ferðaþjónustu með sjálfbærum hætti og verja samkeppnishæfni greinarinnar. Því þurfa allir viðkomandi aðilar að dansa í takt, stjórnvöld þar á meðal. Ísland er og verður í harðri samkeppni um ferða- menn og ekki síst þá sem skilja eftir sig mikil verðmæti. Segja má að með markvissum aðgerðum í markaðsmálum í miðjum heimsfaraldri hafi tekist að miklu leyti að verja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu á helstu mark- aðssvæðum og um leið styrkja ímynd áfangastaðarins Ís- lands. Átaksverkefnið „Ísland – Saman í sókn“ á vegum Íslandsstofu og stjórnvalda spilaði þar aðalhlutverk ásamt frumkvæði og einkaframtaki íslenskra ferðaþjónustufyrir- tækja. Viðspyrnan hefur verið sterk, kortavelta erlendra ferðamanna hefur aldrei mælst hærri en í ágúst síðast- liðnum, gistinætur hafa aldrei verið fleiri í sama mánuði og útlit er fyrir að tekjur af hverjum ferðamanni fari vaxandi. Nú stendur atvinnugreinin frammi fyrir þeirri stöðu að samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2023 er engu ríkisfé ætlað að renna beint til neytendamarkaðssetningar íslenskrar ferðaþjónustu erlendis. Það er afar varhugavert að draga úr krafti markaðs- setningar á meðan ferðaþjónustan rær að því öllum árum að ná fyrri styrk, sér í lagi ef ná á markmiðum þeirrar stefnu sem mótuð var í janúar árið 2019 af Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), ráðuneyti ferðamála, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stjórnstöð ferðamála um fram- tíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2030. Markaðssetning er langhlaup Markaðssetning ferðaþjónustu er ekki átaksverkefni heldur langhlaup. Til þess að Ísland verði áfram áhugaverður áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn þarf meðal annars að við- halda árangursríku mark- aðsstarfi sem byggist einna helst á langtíma- hugsjón og markvissri að- gerðaáætlun. Brýnt er að horfið sé af braut tíma- bundinna átaksverkefna og að kjölfesta í neytenda- markaðssetningu sé aukin. Nauðsynlegt er að tryggja að markaðssetningin fái framlög af fjárlögum. Þær blikur sem á lofti eru í alþjóðlegum efnahagsmálum ýta enn frek- ar undir að tryggja þurfi stöðu íslenskrar ferðaþjónustu á heimsvísu. Hið opinbera getur með markvissri markaðsstefnu stuðlað að fjölgun verðmætari ferðamanna sem skil- greindir hafa verið þeir sem hvað best mæta þörfum áfangastaðarins Íslands, þeir sem tilbúnir eru að heim- sækja landið utan háannar og ferðast víðar. Framtíðar- verðmætasköpun atvinnugreinarinnar mun koma til með að byggjast á komum þessara ferðamanna sem sækja þarf með aukinni neytendamarkaðssetningu. Þótt vel hafi gengið hingað til er ekki víst að eins vel muni ganga án aðgerða. Samkeppnislönd okkar munu halda áfram að leggja opinbert fjármagn í neytenda- markaðssetningu. Á meðan getur Ísland ekki hlaupið blindandi af stað, án framtíðarsýnar í málaflokknum. Ekki má gleyma því að hið opinbera á mestra hagsmuna að gæta af því að vel gangi í ferðaþjónustu. Það er ekki í boði að skila auðu og vona það besta þegar kemur að markaðs- setningu á áfangastaðnum Íslandi. Getum við hætt að auglýsa? ATVINNULÍF Bjarnheiður Hallsdóttir Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Ríkisfjármagn í neytendamarkaðssetningu erlendis 900 600 550 0 2020 2021 2022 2023 M ill jó n ir kr ó n a Heimild: Íslandsstofa, Fjársýsla ríkisins Ljósmyndaprentun Frábært fyrir ljósmyndara. Bjóðum upp á prentun í öllum stærðum, t.d. á striga, álplötu eða pappír. Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|konni@xprent.is www.xprent.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.