Morgunblaðið - 19.10.2022, Síða 9
Vendôme mitt í París þegar hún
bjó á Ritz-hótelinu sem vísar
einmitt út á torgið.
Útkoman er stílhreinn og
fjölhæfur aukahlutur sem
passar vel við hvort heldur
sem er íburðarmikinn síðkjól,
alvörugefna vinnudragt eða
afslappaðan hversdagsfatnað.
Kostar Première édition orig-
inale 5.500 evrur í nýuppgerðri
verslun Chanel við Place Ven-
dôme. Fleiri útgáfur af úrinu eru
í boði, s.s. með silfurhúð, með
gúmmíól, og með langri keðjuól
sem má vefja þrisvar um úlnlið-
inn. Þeir lesendur sem eiga
sand af seðlum ættu að
skoða demants- og
perlu-
útfærslurnar
sem kosta
frá 75.000
evrum.
ai@mbl.is
Lj
ós
m
yn
d/
C
ha
ne
l
Première-
armbandsúrið
frá Chanel.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 9SJÓNARHÓLL
Ö
r vöxtur íslenskrar ferðaþjónustu síðastliðinn ára-
tug hefur skilað landsmönnum bættum lífs-
kjörum, atvinnusköpun, jákvæðri byggðaþróun
og fjölbreyttara efnahagslífi. Verðmætasköpun ferða-
þjónustu hefur verið drifin áfram af fjölda ferðamanna
fremur en auknum verðmætum á hvern ferðamann.
Eftir tvö erfið ár í ferðaþjónustu hefur hagur atvinnu-
greinarinnar vænkast hratt og samhliða hefur efnahagur
þjóðarbúsins rétt úr kútnum. Hins vegar hafa alþjóðlegar
efnahagshorfur versnað hratt, ekki síst vegna hækkunar
orkuverðs, aukinnar verðbólgu og þróunar stríðsátaka í
Úkraínu. Talsverð óvissa
er því til staðar um hag-
þróun í okkar helstu við-
skiptalöndum og staða
ferðaþjónustu viðkvæm.
Með dekkri efnahags-
horfum og aukinni óvissu
mun ferðavilji að öllum
líkindum dragast saman og
samkeppni um ferðamenn
aukast sem gæti haft áhrif
hér á landi.
Verðmætari ferðamenn
Ljóst er að framundan er sú verðuga áskorun að við-
halda verðmætaaukningu ferðaþjónustu með sjálfbærum
hætti og verja samkeppnishæfni greinarinnar. Því þurfa
allir viðkomandi aðilar að dansa í takt, stjórnvöld þar á
meðal. Ísland er og verður í harðri samkeppni um ferða-
menn og ekki síst þá sem skilja eftir sig mikil verðmæti.
Segja má að með markvissum aðgerðum í markaðsmálum
í miðjum heimsfaraldri hafi tekist að miklu leyti að verja
samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu á helstu mark-
aðssvæðum og um leið styrkja ímynd áfangastaðarins Ís-
lands. Átaksverkefnið „Ísland – Saman í sókn“ á vegum
Íslandsstofu og stjórnvalda spilaði þar aðalhlutverk ásamt
frumkvæði og einkaframtaki íslenskra ferðaþjónustufyrir-
tækja. Viðspyrnan hefur verið sterk, kortavelta erlendra
ferðamanna hefur aldrei mælst hærri en í ágúst síðast-
liðnum, gistinætur hafa aldrei verið fleiri í sama mánuði og
útlit er fyrir að tekjur af hverjum ferðamanni fari vaxandi.
Nú stendur atvinnugreinin frammi fyrir þeirri stöðu að
samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2023 er engu ríkisfé ætlað
að renna beint til neytendamarkaðssetningar íslenskrar
ferðaþjónustu erlendis.
Það er afar varhugavert að draga úr krafti markaðs-
setningar á meðan ferðaþjónustan rær að því öllum árum
að ná fyrri styrk, sér í lagi ef ná á markmiðum þeirrar
stefnu sem mótuð var í janúar árið 2019 af Samtökum
ferðaþjónustunnar (SAF), ráðuneyti ferðamála, Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og Stjórnstöð ferðamála um fram-
tíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til ársins
2030.
Markaðssetning er langhlaup
Markaðssetning ferðaþjónustu er ekki átaksverkefni
heldur langhlaup. Til þess
að Ísland verði áfram
áhugaverður áfangastaður
fyrir erlenda ferðamenn
þarf meðal annars að við-
halda árangursríku mark-
aðsstarfi sem byggist
einna helst á langtíma-
hugsjón og markvissri að-
gerðaáætlun. Brýnt er að
horfið sé af braut tíma-
bundinna átaksverkefna
og að kjölfesta í neytenda-
markaðssetningu sé aukin. Nauðsynlegt er að tryggja að
markaðssetningin fái framlög af fjárlögum. Þær blikur
sem á lofti eru í alþjóðlegum efnahagsmálum ýta enn frek-
ar undir að tryggja þurfi stöðu íslenskrar ferðaþjónustu á
heimsvísu.
Hið opinbera getur með markvissri markaðsstefnu
stuðlað að fjölgun verðmætari ferðamanna sem skil-
greindir hafa verið þeir sem hvað best mæta þörfum
áfangastaðarins Íslands, þeir sem tilbúnir eru að heim-
sækja landið utan háannar og ferðast víðar. Framtíðar-
verðmætasköpun atvinnugreinarinnar mun koma til með
að byggjast á komum þessara ferðamanna sem sækja þarf
með aukinni neytendamarkaðssetningu.
Þótt vel hafi gengið hingað til er ekki víst að eins vel
muni ganga án aðgerða. Samkeppnislönd okkar munu
halda áfram að leggja opinbert fjármagn í neytenda-
markaðssetningu. Á meðan getur Ísland ekki hlaupið
blindandi af stað, án framtíðarsýnar í málaflokknum. Ekki
má gleyma því að hið opinbera á mestra hagsmuna að
gæta af því að vel gangi í ferðaþjónustu. Það er ekki í boði
að skila auðu og vona það besta þegar kemur að markaðs-
setningu á áfangastaðnum Íslandi.
Getum við hætt að auglýsa?
ATVINNULÍF
Bjarnheiður Hallsdóttir
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Ríkisfjármagn í neytendamarkaðssetningu erlendis
900
600 550
0
2020 2021 2022 2023
M
ill
jó
n
ir
kr
ó
n
a
Heimild: Íslandsstofa, Fjársýsla ríkisins
Ljósmyndaprentun
Frábært fyrir ljósmyndara. Bjóðum upp á prentun
í öllum stærðum, t.d. á striga, álplötu eða pappír.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|konni@xprent.is
www.xprent.is