Morgunblaðið - 19.10.2022, Síða 6
hjá mér og jafnvel vinna verk, og sýningarstjóra
og fleiri aðila í listheiminum sem ég tel að muni
nýtast senunni hér heima og listamönnunum.
Íbúðirnar eru á tveimur hæðum og eru svefn-
herbergin á efri hæð. Þær eru tengdar við
vinnurými og jafnframt munum við geta boðið
upp á æfingarými fyrir píanóleikara.“
Gjörbreytir aðkomunni
– Eru margar slíkar íbúðir fyrir listamenn í
Reykjavík?
„Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM)
er til dæmis með íbúðir í Reykjavík sem lista-
menn geta sótt um og fengið úthlutað. Hug-
myndin hjá okkur er að hafa meiri sveigjanleika
og geta boðið íbúðirnar fulltrúum fleiri starfs-
greina sem koma að myndlistinni en aðeins lista-
mönnunum sjálfum. En eins og þeir sem til
þekkja vita er heilmikið umstang í kringum það
að koma listamönnum á framfæri, setja upp sýn-
ingar og annað sem því fylgir og margir sem
koma að málum. Til dæmis er mjög mikilvægt
að hafa samtal við góða sýningarstjóra og raun-
ar nauðsynlegt fyrir listamenn gallerísins að
slíkt samtal eigi sér stað. Kynningarmiðstöð ís-
lenskrar myndlistar leggur þar líka sitt af mörk-
um.“
Faraldurinn raskaði sýningarhaldi
– Hversu langt fram í tímann skipuleggið þið
sýningar?
„Það er afskaplega misjafnt. Ég vinn jafnan
langt fram í tímann en svo geta orðið breytingar
á dagskránni. Það gerðist í faraldrinum og fyrir
vikið erum við með langa halarófu sem við erum
að vinna úr. Margt af því sem var áformað féll
niður og annað frestaðist, eins og gengur.
Stundum geta sýningar átt sér margra ára að-
draganda en stundum er sá tími miklu styttri.“
– En viðskiptahliðin? Segðu mér frá henni?
„Við erum með verk til sölu í öllum verð-
flokkum. Salan er samt mjög lítill hluti af starf-
seminni en listamarkaðurinn á Íslandi er ungur
og ekki jafn þróaður og til dæmis á hinum
Norðurlöndunum. Það stendur þó til bóta, hægt
og rólega er hann að þroskast. Ég hef það á til-
finningunni að margir haldi að það séu fyrst og
fremst dýr verk til sölu í galleríum en sú er ekki
raunin. Þvert á móti er þar allur verðskalinn.
Við sækjum mikið listamessur erlendis og þar
er gjarnan töluvert mikil sala en við seljum bæði
söfnurum og söfnum erlendis. Salan er þó langt
frá því að standa ein og sér undir rekstri gall-
erísins.“
Eins og gata í stórborg
– Þú nefnir að listamarkaðurinn á Íslandi sé
ekki ýkja þróaður. Hvernig merkirðu það?
„Hann er einfaldlega ungur. Ég meina það
ekki á niðrandi hátt. Það er eðlilegt. Við erum
mjög fámenn þjóð – eins og stór gata í einni
stórborg – en ef við yfirfærum markaðinn á
höfðatölu hugsa ég að markaðurinn sé ekkert
minni en víðast hvar annars staðar. Málið snýst
fyrst og fremst um að við erum afskaplega fá og
svo eru ekki margir áratugir síðan hér fór að
verða til stétt af myndlistarmönnum. Það er því
eðlilegt að þetta taki tíma.
Það háir okkur líka mikið á Íslandi hvað söfn-
in eru vanbúin og hvað þau fá lítið fjármagn til
Haustið er komið þegar Ingibjörg Jónsdóttir,
annar eigenda listagalleríisins Berg Contem-
porary, tekur á móti ViðskiptaMogganum á
skrifstofu fyrir ofan galleríið á Klapparstíg.
Hátt er til lofts og vítt til veggja í sýningar-
rýminu en þar var áður glerverksmiðja.
Ingibjörg og eiginmaður hennar, Friðrik
Steinn Kristjánsson, keyptu húsnæðið árið 2014
og var fyrsta sýningin opnuð í mars 2016.
Galleríið hefur nú verið tengt við nýbyggingu
sem tilheyrir Smiðjustíg en þar er nýr og stærri
sýningarsalur og gestaíbúðir fyrir samstarfs-
menn. Byggingin, sem er teiknuð af arkitekt-
inum Davíð Kristjáni Pitt, er klædd með dökk-
um dönskum múrsteini og gjörbreytir aðkomu
að galleríinu frá Smiðjustíg. Stórt hellulagt plan
leiðir gesti að galleríinu en þaðan má meðal ann-
ars sjá danska sendiráðið og Þjóðleikhúsið.
Vantaði sali með meiri lofthæð
– En hvað kom til að þau hjón ákváðu að
breyta húsi sem reist var í miðri síðari heims-
styrjöldinni í alþjóðlegt listagallerí?
„Ég starfaði sem sýningarstjóri að alþjóðlegri
sýningu á Listasafni Reykjavíkur, í Hafnarhúsi,
þegar ég fékk vilyrði hjá listamanninum Tomás
Saraceno, og eiganda tiltekins listaverks, til að
fá það verk á sýninguna. En þegar til kom var
enginn salur með næga lofthæð til þess að taka
mætti verkið inn og ég fór að hugsa um að það
væri mjög lítið framboð á rými í Reykjavík sem
væri með aukinni lofthæð fyrir myndlist. Það
var auðvitað til en ekki nóg af því.
Gaman yrði að stofna gallerí
Þá var byrjað að blunda í mér að það væri
gaman að stofna gallerí og líka af því að mér
fannst sem að hér mættu vera fleiri alþjóðleg
gallerí. Þá hafði i8 verið á þessum alþjóðlega
vettvangi og ég hugsaði með mér að það væri
skemmtilegt ef það væru fleiri slík íslensk gall-
erí. Þá kæmust fleiri listamenn að og það væri
skemmtilegra út á við að fleiri væru í senunni.
Svo leitaði ég lengi að húsnæði og þá kemur
þetta hús í sölu en áður var glerslípun og gler-
verksmiðja í húsinu. Því fylgdi þessi einstaka
byggingarlóð á bak við en þar voru ónýtar bygg-
ingar. Svo hefur þetta undið upp á sig.“
Sum verk þurfa meiri lofthæð
– Af hverju skiptir lofthæð máli?
„Til dæmis ef við viljum fá stórar varpanir í
vídeóverkum, en ég er í samstarfi við marga
vídeólistamenn, og stærri innsetningar. Þá er
þetta skemmtilegur möguleiki. Verkið hans Sig-
urðar [Guðjónssonar] væri ekki hægt að sýna í
þeirri mynd sem það er hugsað nema með auk-
inni lofthæð. Það er hins vegar hægt að gera í
nýja salnum en þar er lofthæðin mikil og tekur
vel á móti verkinu hans Sigurðar.“
– Við nýja salinn eruð þið með íbúðir. Hvað
ætlið þið að gera við þær?
„Við erum með tvær gestaíbúðir en þar dvelja
nú tveir sýningarstjórar, önnur frá MIT
[Tækniháskólanum í Massachusetts] og hin frá
Albright–Knox safninu í New York, sem eru hér
til að kynna sér listakonu og munu væntanlega
setja upp sýningu með henni í Bandaríkjunum.
Ég hugsa þetta sem stað til að taka á móti
listamönnum, sem ég myndi vilja fá til að sýna
að kaupa verk. Það er eitt. Hins vegar eru að
koma fram sífellt fleiri safnarar á Íslandi. Sá
hópur á Íslandi sem er kannski skemmtilegast
að selja er fólkið sem kaupir kannski tvö til þrjú
listaverk um ævina og er lengi að safna fyrir
verkunum og velta hlutunum fyrir sér. Maður
skynjar mikla gleði þegar það hefur loksins valið
verk og það er afskaplega ánægjulegt.“
Verðið í flestum tilfellum lægra
– Nú hefur listin gildi í sjálfri sér en hvað með
verðmyndun? Þú talar um að listamarkaðurinn
á Íslandi sé ungur og að hér séu fáir safnarar.
Hvernig er verðmyndun hjá samtímalista-
mönnum í fremstu röð hér miðað við til dæmis á
hinum Norðurlöndunum?
„Verðið er í flestum tilfellum lægra hér á landi
og þetta er svolítið vandamál. Því það geta ekki
verið mörg verð í gangi, heldur verður eitt verð
að gilda. Ef verðið hækkar of mikið má segja að
innlendi markaðurinn tapist. Það er nokkuð sem
þarf að taka tillit til.“
– Þannig að þegar galleríið ykkar selur verk í
samstarfi við listamennina á hinum Norður-
löndunum er það að fá sama verð og hér?
„Það gildir aðeins eitt verð. Það er ekki svo að
við seljum verk eftir listamenn á lægra verði hér
heima en erlendis. Það gengur ekki. Það kemur
þó fyrir að við veitum söfnum góðan afslátt og
það er þá samkomulagsatriði.“
– Hverjir eru að safna myndlist hér á landi?
„Það er ótrúlegasta fólk. Allur skalinn má
segja. Engin erkitýpa þar.“
– Ræðum aðeins um rekstrargrundvöllinn. Þú
nefndir að salan ein og sér standi ekki undir
rekstrinum?
„Nei, það er af og frá. Það má segja að hér búi
að baki ástríða og áhugi okkar mannsins míns.
Þess vegna erum við að þessu.“
Fór í listaskóla í Mexíkó og Danmörku
– Hvaðan kemur áhuginn? Þú ert sjálf þekkt
veflistakona og kenndir list á Íslandi.
„Ég hef verið í listaheiminum frá því að ég var
ung kona. Ég lærði í Myndlista- og handíðaskól-
anum og varð síðar kennari þar og í Listahá-
skóla Íslands. Ég lærði höggmyndagerð og text-
íl og sótti jafnframt listaskóla í Mexíkó og
Danmörku. Allt frá því að við hjónin kynntumst
höfum við verið að skoða myndlist og ég hef lifað
og hrærst í þessum heimi.“
– Hvernig byggirðu upp tengslanet erlendis?
„Það er eitthvað sem ég byrjaði á um leið og
ég fór að velta fyrir mér að stofna galleríið og
hófst kannski með því að ég stýrði sýningu fyrir
Listasafn Reykjavíkur árið 2014. Á árunum
2011 og 2012 var ég farin að kynna mér lista-
menn með það fyrir augum að halda sýningar.
Smám saman kynnist maður fleira fólki í gegn-
um listamessur og ég þekki orðið marga gall-
eríista, sérstaklega í Skandinavíu. Við tökum
þátt í listamessum í Bandaríkjunum, Evrópu og
Skandinavíu.“
– Hafið þið ferðast á hverju einasta ári?
„Ég hef farið með galleríið á hverju einasta
ári á margar messur. Hef tekið þátt í tveimur til
þremur messum á ári, allt frá stofnun.“
– Hvert eruð þið að horfa? Á allar heimsálfur
eða Evrópu og Bandaríkin?
„Já, Evrópu og Bandaríkin.“
– Ræðum meira um listamarkaðinn. Hvenær
fór að verða til stétt myndlistarmanna á Íslandi?
„Svona smám saman á síðustu öld. Á fyrri
hluta síðustu aldar fór einn og einn út til að
mennta sig og svo fjölgaði þeim, ekki síst eftir að
Myndlista- og handíðaskólinn var stofnaður.
Það er reyndar ekki svo að allir sem fari í gegn-
um þetta nám verði að myndlistarmönnum. Þó
myndi ég segja að það væri grundvöllurinn,
vegna þess að menntunin skilar sér út í þjóð-
félagið með fólki sem kann að meta myndlist.
Það hefur svo auðvitað áhrif þegar lífsskilyrðin
batna og þjóðin menntast.“
– Hvernig er áhugi ungs fólks á myndlist?
„Hann er mikill og vaxandi.“
– Hvernig merkirðu það?
„Ég merki það á því að ungt fólk fjölmennir
hingað á sýningar og maður skynjar það mikið á
umræðunni á allan hátt.“
Félli vel að umhverfinu
– Nýbyggingin setur mikinn svip á umhverfið.
Hvað áherslur birtast í hönnuninni?
„Mig langaði til að hún félli vel að umhverfinu
en yrði ekki of ráðandi í umhverfinu. Við hugs-
uðum líka um áhrif hennar á mannlífið. Auðvitað
þarf gististaði fyrir ferðamenn í miðborginni en
það þarf líka að vera eitthvað fyrir þá að gera.
Þjóðin þarf að sýna að hún hafi eitthvað fram að
færa. Borg verður ekki skemmtileg borg ef þar
eru aðeins gistirými, heldur þarf að vera lifandi
menning og mannlíf. Það er það sem maður
sækist sjálfur eftir á ferðalögum. Ég ver ábyggi-
lega 80% af tímanum á söfnum og galleríum,
þegar ég ferðast til erlendra borga. Því er ekk-
ert öðruvísi farið með fólkið sem kemur hingað.
Það vill upplifa bæði náttúruna og menninguna.“
– Hversu mörg gallerí á Íslandi hafa orðið
Vilja efla mannlíf
og list í borginni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við Klapparstíg í Reykjavík hefur Ingibjörg Jónsdóttir byggt upp listagalleríið Berg Contemporary. Ný viðbygging
við galleríið verður opnuð 22. október og verður Sigurður Guðjónsson, fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár,
með fyrstu sýninguna. Ingibjörg segir íslenskan listmarkað ungan en að ýmis þroskamerki séu að koma fram.
Söfnurum sé að fjölga og samstarf við erlenda aðila að eflast. Hins vegar þurfi að endurskoða skattlagningu á
myndlist, enda standi salan ein og sér nú langt í frá undir kostnaðinum við að koma íslensku listafólki á framfæri
ytra. Jafnframt geti ríkisvaldið stuðlað að aukinni fjárfestingu fyrirtækja og einstaklinga í myndlist.
Ingibjörg Jónsdóttir, annar tveggja
stofnenda og eigenda listagallerísins
Berg Contempory á Klapparstíg.
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022VIÐTAL