Morgunblaðið - 26.08.2022, Síða 6
Heidi og eiginmaður hennar fara alltaf til
Kanarí yfir háveturinn og breyta þá um lífs-
takt, borða hollar og ganga meira. Í síðustu
ferð tóku þau mataræðið algjörlega í gegn.
É
g hef verið slæm í hnjánum síðast-
liðin tæp 30 ár en hélt mér lengi
verkjalausri með því að æfa og vera
í kjörþyngd. Í kjölfar veikinda og
hormónabreytinga fór ég að bæta á
mig og Covid-tíminn gerði svo alveg útslagið.
Það var mikil kyrrseta í Covid, við vorum
meira heima og fórum ekki í ræktina. Ég var
orðin nokkuð þung síðasta vetur og með
slæma verki í hnjánum og víðar í líkamanum.
Ég var sett á biðlista fyrir liðskipti í báðum
hnjám fyrir nær ári en nú er ég hins vegar orð-
in svo hress að ég held ég fresti bara aðgerð-
inni sem ég hefði annars átt að fara í í haust,“
segir Heidi sem þakkar betri heilsu breyttum
lífsstíl. „Ég hef ekki verið í svona góðu formi í
nær 15 ár, þetta er bara allt annað líf.“
Orkumeiri og verkjalaus
Heidi segist lengi hafa verið í hálfgerðri af-
neitum varðandi þyngdina. Hún fann fyrir
auknu mittismáli en hafði sig ekki í að gera
neitt í því. Verkirnir í hnjánum urðu meiri í
takt við aukna þyngd og vegna þeirra veigraði
hún sér við því að fara út að ganga og þannig
vatt vandamálið upp á
sig. Lífsstílsbreytingar
sem þau hjónin hófu í
febrúar hafa hins vegar
fært bæði henni og eig-
inmanninum betri heilsu
og unglegra útlit en
samanlagt hafa þau
losnað við 25 kíló. „Eftir
að ég breytti um lífsstíl
er ég orðin orkumeiri og
verkirnir eru horfnir.
Ég á auðveldara með að hreyfa mig og er ekki
eins stíf. Þá sef ég líka betur,“ segir Heidi og
fer nánar út í hvaða breytingar þau hjónin
gerðu á lífsstíl sínum.
„Við borðum núna meira prótín, grænmeti,
ávexti, rúg og hafra en sleppum nær alveg öll-
um sykri, hvítu hveiti, rauðu kjöti, kartöflum,
pasta og hrísgrjónum. Svo drekkum við mikið
vatn og föstum alltaf í 14 tíma á sólarhring.
Þetta var smá átak í fyrstu en núna langar mig
ekki í hvítt brauð, feitar sósur eða kartöflur
eftir að ég sá ávinninginn af þessu fæði því
fljótlega eftir að ég byrjaði á þessu mataræði
hurfu verkirnir og ég hef lést um 12 kíló. Og
svo hef ég ekki neytt áfengis í nær fimm ár.
Það á þó ekki við um eiginmanninn.“
Langar ekki í ruslmat
Heidi segist hafa spáð töluvert í mat og nær-
ingarfræði í gegnum lífið. Hún fór í hússtjórn-
arskóla á sínum tíma og er menntaður sjúkra-
liði en í náminu var farið mikið í næringar-
fræði. „Það er auðvelt að vita hvað maður á
að gera, en svo leyfir maður sér aðeins
meira en það sem er gott fyrir mann og
þá blæs maður út. Og með aldrinum
verður erfiðara að losa sig við aukakílóin,
það er bara staðreynd,“ segir Heidi sem
verður sjötug á næsta ári.
Fyrir 10 árum gerði Heidi róttæka
breytingu á mataræði með það að markmiði
að létta álagið á hnjánum. Þá valdi hún þá leið
að telja kaloríur og neyta ekki fleiri en 1.500
hitaeininga á dag. „Það virkaði alveg, ég léttist
um 10 kíló, en ég var ekki endilega að borða
næringarríkan mat eins og ég geri núna. Mér
líður miklu betur núna. Og það er svo skrítið
að þegar þú færð góðan og næringarríkan mat
þá hverfur löngunin í
ruslmat. Núna finn ég
bara svo mikinn mun á
mér. Ég er búin að vera í
svo góðum gír, er glaðari
og með meiri orku. Það
er frábært að vakna
hress á morgnana.“
Appelsínusafi hrinti
breytingum af stað
Heidi segir að það hafi
hentað mjög vel að fara í þessar lífsstílsbreyt-
ingar á Kanarí þar sem er mjög gott úrval af
fersku grænmeti og girnilegum ávöxtum.
Veðráttan þar er líka þannig að hún hvetur
þau hjónin til gönguferða. „Ég, sem gat áður
varla gert húsverkin án þess að þurfa að setj-
ast niður, fór að ganga 6-10 km á dag,“ segir
Heidi ánægð. Hjónin eiga sér uppáhaldsbæ á
norðurhluta Gran Canaria sem heitir Agaete.
Þar geta þau valið um mismunandi gönguleið-
ir, bæði meðfram sjónum eða upp og niður
tröppur og brattar götur inni í bænum, sem sé
mjög styrkjandi að ganga.
Heidi segir að í þessi ár sem þau hjónin hafi
heimsótt eyjarnar að vetrarlagi hafi þau alltaf
fundið fyrir jákvæðum áhrifum af hitanum og
sólinni en ekki hugsað um að gera álíka lífs-
stílssbreytingu fyrr en núna. Heidi útskýrir að
mikil drykkja á appelsínusafa hafi eiginlega
ýtt breytingunum úr vör. „Mér finnst nýpress-
aður appelsínusafi mjög góður og drakk mikið
af honum þegar við vorum úti. Sýran fór hins
vegar illa í liðina og ég varð fljótlega svo slæm
að ég gat varla gengið hjálparlaust. Þá fór ég
að skoða mataræðið og fann strax breytingu
þegar ég sleppti safanum og ákvað þá að gera
fleiri breytingar í kjölfarið.“ Spurð nánar út í
mataræði segir hún að þau hjónin borði alltaf
prótínþeyting á morgnana með höfrum og
ávöxtum, mikið af fiski og kjúklingi, og þá er
töfrasprotinn óspart notaður í grænmetis-
súpugerð. „Það þarf ekkert að vera dýrara að
borða hollt því með því að borða góða fitu og
næringarríkan mat er maður minna svangur
og langar ekkert til þess að vera síétandi. Það
er að minnsta kosti mín reynsla.“
Ekki gefast upp
Aðspurð hvort mataræði án einfaldra kol-
vetna og 14 tíma föstur séu komnar til að vera
hjá þeim hjónum segir Heidi að hún sjái enga
ástæðu til þess að breyta því á meðan þeim líði
vel. Hún tekur þó fram að þau bregði alveg út
af vananum ef þeim er t.d. boðið í mat eða við
önnur hátíðleg tækifæri. „Ég fékk mér til
dæmis pítsusneið á uppáhalds ítalska staðnum
mínum við Canteras-ströndina og naut hennar
í botn. En það er engin pítsa á borðum hér
dagsdaglega,“ segir Heidi. Alls hefur mittis-
mál hennar minnkað um 12 cm á þremur mán-
uðum og hún hefur þurft að bæta nýjum göt-
um á beltið sitt. „Mitt ráð er að gefast ekki
upp. Ellin verður erfiðari ef maður er að
burðast með aukakíló og slæma heilsu. Það er
aldrei of seint að byrja. Það er nauðsynlegt að
beita sig þrjósku og vera ákveðinn við sjálfan
sig. Allir búa yfir þrjósku, þeir þurfa bara að
virkja hana,“ segir Heidi hvetjandi.
Listakonan Heidi Strand hefur undanfarin ár dvalið um þrjá
mánuði á Kanaríeyjum yfir háveturinn ásamt eiginmanni sínum
Matthíasi Kristiansen. Þegar þau dvelja ytra breytist lífstaktur-
inn; þau ganga meira og borða hollari mat. Í síðustu dvöl tóku
hjónin mataræðið og lífsstílinn enn fastari tökum en áður og
Heidi hefur ekki verið í jafn góðu formi í nær 15 ár.
Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com
Við borðum núnameira
prótín, grænmeti,
ávexti, rúg og hafra en
sleppum nær alveg öll-
um sykri, hvítu hveiti,
rauðu kjöti, kartöflum,
pasta og hrísgrjónum.
Breytti um
lífsstíl á Kanarí
Eftir að Heidi,
sem er að verða sjötug,
tók mataræðið í gegn lög-
uðust verkirnir í hnjánum.
„Ég hef ekki verið í svona
góðu formi í nær 15 ár,
þetta er bara allt
annað líf.“
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022