Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022
K
olvetni, einkum þau auðmeltu, eins og sykur,
morgunkorn, pasta, brauð og kartöflur,
brotna hratt niður í meltingarveginum og
losa sykur út í líkamann. Brisið bregst við
með því að framleiða insúlín. Meginhlutverk
þess er að ná blóðsykurmagninu niður og veita sykrin-
um í blóðinu inn í vöðvafrumr og lifur.
Því miður getur óheilnæmt mataræði og áralangt
hreyfingarleysi leitt til þess sem kallast insúlínviðnám.
Líkaminn verður með öðrum orðum ónæmari fyrir insú-
líni. Afleiðingarnar eru þær að langtímablóðsykurinn
skríður upp á við en hækkaður langtímablóðsykur er
forstigseinkenni sykursýki 2. Þegar blóðsykurinn hækk-
ar bregst brisið við með því að dæla út æ meira
insúlíni. En það er eins og að öskra á börnin
sín. Fljótlega hætta þau að hlusta.
Þótt offita geti leitt til sykursýki 2 er
það ekki óhjákvæmilegt. Hægt er að
vera of þungur án þess að vera syk-
ursjúkur og sykursjúkur án þess að
vera of þungur. Reyndar getur verið
hættulegra að vera grannur og með
sykursýki 2 en að vera feitur með sjúk-
dóminn. Raunverulegi vandinn felst
ekki í því hve mörg aukakíló sitja utan á
viðkomandi, heldur hvert hún sest. Fólk sem
safnar fitu á kviðsvæði er líklegra til að fá hærri
blóðsykur með öllum hugsanlegum hliðarverkunum, þar á með-
al útlimamissi, segir læknirinn Björn Ófeigsson í grein um blóð-
sykurinn á hjartalif.is.
Döðlur og hrískökur æsa upp blóðsykurinn!
Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti segir að blóðsykurinn
skipti mjög miklu máli ef fólk ætlar að bæta heilsuna.
„Þegar ég var í námi í næringarþerapíu, þá sá ég fljótlega að
blóðsykursstjórn er geysilega mikilvæg öllu heilbrigði. Í mínum
huga þá var það svo augljóst og rökrétt. Þegar ég svo byrjaði að
starfa sem næringarþerapisti, með ráðgjöf og námskeið, þá var
það þetta sem ég elskaði mest að tala um og kenna. Svo er líka
svo geggjað hvað árangurinn er góður þegar fólk nær stjórn á
þessu og það hefur alltaf gefið mér svo mikið að sjá það. Þetta
er það sem ég vil leggja af mörkum í mínu starfi og þess vegna
hef ég sérhæft mig í að aðstoða fólk við að losa sig út úr blóð-
sykursvanda,“ segir Inga.
Þegar Inga er spurð að því hvers vegna það sé svona slæmt
fyrir líkamann þegar blóðsykurinn rýkur upp, segir hún að það
sé vegna þess að þá geti bólgur myndast í líkamanum.
„Þegar blóðsykurinn er í rugli, kannski árum saman vegna
mataræðis eða lífsstíls, þá geta vöðvafrumurnar okkar farið í
fýlu og vilja ekki lengur taka við sykrinum úr blóðinu. Þær
verða hálfónæmar fyrir áhrifum insúlíns, sem er lykillinn að
frumunum sem hleypir sykrinum inn. Ef insúlínið hættir að
geta lokið upp frumunni, þá kemst sykurinn ekki úr blóðinu.
Það veldur miklum vandamálum, á borð við bólgumyndun og
jafnvel bólgusjúkdóma. Nefna má hjarta- og æðasjúkdóma, of
hátt kólesteról, of háan blóðþrýsting, sykursýki 2, alls konar
liðverki, gigtarvandamál og fleira og fleira. Eitt sem konur á
miðjum aldri þekkja líka, er það að öll einkenni breytingaskeiðs
verða svo miklu verri ef blóðsykurinn er í ójafnvægi,“ segir
Inga.
Kviðfita og þreyta!
Hefur blóðsykurinn áhrif á líkamsþyngd?
„Já, á endanum hefur það líklega þau áhrif og þá fitnar fólk
gjarnan um miðjuna, fær kviðfitu, en er kannski grannt annars
staðar. Þó er þetta ekki algilt og grannt fólk getur svo sannar-
lega verið með blóðsykursvandamál.“
Eru til einhver einföld ráð fyrir þá sem vilja koma blóðsykr-
inum í lag án þess að hætta að borða allt?
„Já, heldur betur! Þetta snýst að miklu leyti um það hvernig
raðað er á diskinn. Þá kemst blóðsykurinn í jafnvægi og sykur-
löngunin minnkar hressilega. Ég hef haldið fjölda námskeiða
um þetta, til dæmis með henni Gurrý þjálfara, sem við köllum
Sigrumst á sykrinum. Þar kennum við þessa tækni og kynnum
til leiks nýyrðið „Kolvetnakápa“.
Málið snýst um að fólk getur nánast borðað hvað sem er,
þannig lagað. Auðvitað ekki mikinn sykur, hveiti, eða einföld
kolvetni, en samt nánast allt. Það sem skiptir mestu máli er að
passa ávallt að nóg sé á diskinum af próteini, fitu, grænmeti og
trefjum. Þá klæðir sú fæða kolvetnin í fæðunni, eins og pasta og
kartöflur, í kápu sem róar allt niður. Blóðsykurinn rýkur ekki
upp í rjáfur eins og hann myndi gera ef eingöngu væru kolvetni
á diskinum. Kolvetnakápurnar eru þess vegna stóra málið og
hægt að aðlaga alla rétti og mat að þessu.“
Getur verið að fólk sé oft á tíðum með allt of háan blóð-
sykur án þess að vita það?
„Já, það getur svo sannarlega verið. Þessar miklu sveifl-
ur eru lúmskar og fólk áttar sig oft ekkert á þeim. Ein-
kenni þeirra geta verið mikil þreyta, orkuleysi, mikil löng-
un í sykur og koffín, einbeitingarskortur, svefntruflanir,
verkir og bólgur í liðum og fleira. Seinnipartsþreytan er
sérlega áhugavert fyrirbæri og lagast yfirleitt með rétt sam-
settum morgun- og hádegismat, sem kemur lagi á blóðsyk-
urinn. Hungurfýlan er líka einkenni, þegar fólk verður mjög
geðvont þegar það er svangt. Alvarlegri einkenni sem bent
geta til þess að jafnvel fastandi blóðsykur sé hár, sem er alls
ekki gott, væru tíð þvaglát og mikill þorsti sem og lamandi
þreyta.“
Hvað er hægt að fá í staðinn?
Getur þú tekið nokkur dæmi um mat sem er með lægri syk-
urstuðli sem er svipaður og annar sem er með hærri sykur-
stuðli?
„Já, til dæmis brauð og hrökkkex. Venjulega dótið er stút-
fullt af kolvetnum sem þurfa þá að klæðast þykkri kápu til að
vera ekki bombur á blóðsykurinn. Í dag er hægt að fá bæði
brauð og hrökkbrauð í mörgum stórmörkuðum, sem er nánast
kolvetnalaust og bökuð úr hnetu- og fræblöndu ásamt eggjum
og jafnvel osti. Svo er ekkert mál að baka sjálfur úr möndlu-
mjöli og alls konar fíneríi. Svo er hægt að fá pasta sem er unnið
úr baunum og linsum sem er þá mun próteinríkara en hefð-
bundið hveitisullspasta.“
Ef fólk væri bara að spá í einhverju einu hvað varðar heils-
una. Myndi það hjálpa fólki að reyna að koma jafnvægi á blóð-
sykurinn jafnvel þótt það myndi ekki nenna í ræktina?
„Ef þið viljið gera eitthvað eitt til að bæta heilsuna, þá er það
að ná stjórn á blóðsykrinum. Það hentar öllum að vinna með
þetta, öllum! Þegar orkan verður betri, með bættri blóðsykur-
stjórnun, þá kemur áhuginn á að hreyfa sig inn ásamt fleiru
sem fólk hefur bara ekki haft orku í. Þetta verður svona já-
kvæðnihringur. Við höggvum á blóðsykursvandann og sykur-
löngunina og þá kemur hitt í kjölfarið,“ segir Inga.
Fólk í aðhaldi byrjar líka oft að borða döðlur í staðinn fyrir
sælgæti og borðar svo mikið af hrískökum með dökku súkku-
laði. Hvers vegna er ekki gott að borða döðlur og hrískökur?
„Þessar fæðutegundir æsa upp sykurskrímslið! Þetta er kol-
vetnarík fæða sem hækkar blóðsykurinn hressilega. En það er
ekki sama í hvaða félagsskap döðlur og hrískökur eru. Ef við
kynnum þær fyrir einhverju prótein- og fituríku, þá verða þær
okkur ljúfari,“ segir hún.
Colorbox
Hvers vegna þarf
blóðsykurinn
að vera í
jafnvægi?
Reglulega eru nýir matarkúrar kynntir
til leiks. Fólk á að hætta þessu og
hinu til þess að ná hinu fullkomna
jafnvægi í lífinu. Eitt er þó áberandi
sem sameinar flesta heimsins matar-
kúra. Það er að sykur er tekinn út úr
mataræðinu eða hann minnkaður
stórlega. Hvers vegna er slæmt að
vera með háan blóðsykur? Hvaða
áhrif hefur það á heilsuna og hvers
vegna er betra fyrir fólk að hafa blóð-
sykurinn í jafnvægi?
MartaMaríaWinkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Glucose Revolution eftir Jessie Inchauspé
kom út fyrr á þessu ári og er metsölubók. Í bók-
inni útskýrir hún hvers vegna það er slæmt fyrir
blóðsykurinn að byrja alla morgna á því að borða
morgunkorn og hvers vegna ávextir einir og sér
keyra upp blóðsykurinn.
Í Glucose Revo-
lution kemur fram
að döðlur séu með
afar háan sykur-
stuðul.
Inga
Kristjánsdóttir