Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 20

Morgunblaðið - 26.08.2022, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2022 Þ að er rosalega mikilvægt að passa upp á heilsuna bæði andlega og líkamlega. Hjá mér er þetta alltaf svolítil togstreita. Það væri þægi- legt ef þetta væri ómeðvitað, fast í daglegri rútínu og meðvitundin þyrfti aldrei að rökræða við skynsemina varðandi það að setja þessi atriði í fremsta forgang. Sjálfan langar mig afskaplega mikið að vera laus við mestalla kviðfitu, vera léttari á mér og geta farið hraðar á skíðum – vera þindarlaus, orkubolti. Mig langar að vera í kjörþyngd, samkvæmt skiln- ingi mínum á henni,“ segir Þóroddur Ingvars- son, svæfingalæknir á Sjúkrahúsinu á Akur- eyri, spurður út í sínar eigin heilsuvenjur. Hann segir að helst myndi hann vilja fá ótruflaðan svefn í átta klukkustundir hverja nótt, fara á æfingu fimm sinnum í viku fyrir vinnu og fá sér trefjaríkan, fitu- og próteinríkan morgunmat. Þá vildi hann borða salat í hádeg- inu og borða fjölbreyttan kvöldmat gerðan frá grunni fyrir kl. 18.00 á hverju kvöldi og ekkert eftir það. Sleppa áfengi, forðast sykur og fara í sund. Eiga góðar stundir með fjölskyldu og vin- um, skipuleggja næsta dag og vera farinn í rúmið klukkan 22. Þóroddur Ingvarsson á skíðum ásamt Aðalheiði Rósu Jóhannsdóttur eiginkonu sinni. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk fær áminningu um mikilvægi góðrar heilsu alla daga en skyldi starfsstéttin huga betur að eigin heilsu en aðrir landsmenn? Þóroddur Ingvars- son, gjörgæslu-og svæfingalæknir, segir að langvarandi áfengisneysla valdi alvarlegum langvinnum sjúkdómum. Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com Minna áfengi og meiri hreyfing „En hvað geri ég af þessu? Jú, eitthvað af og til, og sumt á hverjum degi. Ég nota aldrei tób- ak, drekk sjaldan áfengi. Hreyfi mig, hugleiði annað slagið, reyni að fá nægan svefn. Reyni að vera skipulagður og forðast stress. Sú hreyfing sem ég vel er sú sem mér finnst skemmtilegust. Í mínum huga er ekki til betri heilsubót en skíðaganga og hjólaskíði á jafnsléttu á sumrin. Átök fyrir allan líkamann en á sama tíma án mikils álags á liði og meiðslahætta lítil.“ Telur þú að læknar hugsi almennt betur um heilsuna en aðrir? „Ég veit ekki hvort læknar hugsa meira um heilsuna en aðrir. Jú, líklega heldur meira en meðaleinstaklingur. Merkilegt nokk er nær engin kennsla um þetta í læknadeild og eða í flestu sérnámi eftir því sem ég veit best. Námið hefst með grunnþekkingu og þá er farið yfir starfsemi heilbrigðs líkama. En svo er fljótlega allur fókus á að láta fólki í té þekkingu um hvernig eigi að greina sjúkdóma og helst lækna þá en ekki er eytt einum heilum degi í vísindin um hvernig eigi að hindra að fá sjúkdóma. Sam- fara fræðslu um sjúkdóma er að sjálfsögðu farið yfir þekkta áhættuþætti hvers sjúkdóms en ég ætla samt að leyfa mér að segja að læknar sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.