Morgunblaðið - 23.09.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Winkel Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gud-
runselma@mbl.is, Irja Gröndal irja@mbl.is, Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Gunnar Sverrisson
Í
slendingar eiga það sameignlegt að leggja mikið í heimili sín. Það skiptir
fólk almennt máli að hafa fallegt í kringum sig. Þrátt fyrir það eigum við
langt í land með að komast á sama stað og frændur okkar í Danmörku.
Sem er sorglegt því við sem þjóð gætum svo auðveldlega flutt út okkar
hugvit líkt og við flytjum út fisk.
Í Danmörku er hönnun sérstök iðngrein sem skiptir raunverulegu máli þeg-
ar kemur að landsframleiðslu. Danir eru stoltir af sinni hönnun og það er
greypt í þjóðarsálina að innlendar vörur séu eftirsóttar. Þig á að langa í PH-
ljós og stóla Hans J. Wegner og þér á að finnast gaman að hringsnúast í egg-
inu. Við eigum okkar útgáfu af Wegner-stólunum sem Sveinn Kjarval hannaði
1963. Hvers vegna eru þeir ekki í ríkari mæli inni á íslenskum heimilum?
Það eru varla framleiddir danskir sjónvarpsþættir eða bíómyndir nema inn-
lend hönnun komi við sögu. Þú flettir heldur ekki tímaritum eins Bo Bedre eða
Bolig nema þú finnir danska hönnun á síðum blaðanna.
Frægt var þegar danski arkitektinn Arne Jacobsen hannaði eggið og svan-
inn fyrir Radison Collection-hótelið í Kaupmannahöfn í kringum 1958. Þar
voru stólarnir settir í blágrænt ullaráklæði og veggir málaðir í stíl. Í framhald-
inu var farið að framleiða þessa framúrstefnulegu stóla sem urðu svo eft-
irsóttir að slegist var um þá um allan heim. Halldór Laxness heitinn átti til
dæmis eggið í leðri sem kúrir nú á Gljúfrasteini svo einhver þekktur eggjaeig-
andi sé nefndur.
Nema náttúrlega að þú gerir eins og ein skvísa gerði hér um árið. Hún sá
sæng sína uppreidda á árdögum internetsins og keypti sér leðursvan fyrir
slikk. Þegar gripurinn kom loksins til landsins eftir margra mánaða bið var
hann töluvert breiðari en hinn upprunalegi. Hann leit þó ekki þannig út á
myndinni á vefsíðunni og auðvitað var engin leið að endursenda ofvaxna
svaninn aftur til heimalands síns. Það er alveg sama hvernig litið er á málið, í
nútíð og þátíð. Niðurstaðan er alltaf að þarna hafi slök nýting á peningum ver-
ið í forgrunni. Svo ekki sé minnst á vanvirðingu gagnvart hugviti en þegar fólk
er ungt þá hættir því til að gera mistök.
Aftur að Radison Collection-hótelinu. Í dag er búið að endurhanna herbergi
og anddyri og í stað þess að henda öllu út og kaupa nýtt eins og gerist oft
hérlendis þá var gamla hönnunin geymd og færð til nútímans. Þar eru til
dæmis svanir og egg í flauelsáklæði sem sóma sér vel við marmaragólf og
risastórar mottur. Það má alveg rífast um það hvort svanir og egg séu þægi-
leg húsgögn en í flestum tilfellum skapa þau fallega heildarmynd sem er
þrungin af sögu og menningu.
Ef við sem þjóð ætlum að komast á sama stað og Danir þá þarf ríkið að
grípa inn í. Stofnanir eins og Ríkiskaup ættu að fara fram á það að stofnanir
ríkisins keyptu íslenska hönnun í staðinn fyrir fjöldaframleitt skran frá Asíu.
Sem þarf svo kannski að endurnýja eftir stuttan tíma því líftíminn er allt of
stuttur.
Ráðherrar ættu í framhaldinu að innrétta skrifstofur sínar og ráðuneyti með
innlendum húsgögnum, lömpum og listaverkum.
Það verður þó að minnast á að sú jákvæða þróun hefur orðið hérlendis að
landsmenn eru í ríkari mæli farnir að leita til innanhússarkitekta þegar þeir
vilja gera almennilegar breytingar á heimilum sínum. Slík verkkaup skila sér
ekki bara í fallegra umhverfi heldur eru arkitektainn-
réttaðar íbúðir í flestum tilfellum eftirsóttari þegar
kemur að endursölu. Það er því ágæt fjárfesting
að kaupa slíka þjónustu ef fólk er að hugsa um
ávöxtun á eigin peningum. Það er þó alveg ljóst
að það eru ekki allir sem hafa efni á því. Ef við
sem samfélag viljum gera breytingar á þessu
þá gætum við til dæmis byrjað á því að kaupa
íslensk ilmkerti, kertastjaka og vasa svo eitt-
hvað sé nefnt. Vonandi komumst við ein-
hvern tímann á sama stað og frændur
okkar í Danmörku en það gerist ekki af
sjálfu sér. Við þurfum öll að leggja eitthvað
á okkur og sætta okkur við að dropinn holar
steininn.
Morgunblaðið/Ásdís
Hvers vegna gerum
við ekki eins og Danir?
MartaMaría
Winkel Jónasdóttir
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Morgumatur er uppáhaldsmáltíðin mín og góður bröns það
besta sem ég fæ, en alla jafna borða ég morgunmat heima hjá
mér og fæ mér þá hafragraut eða ab mjólk með heimagerðu
múslí.“
Hvaða borg er í uppáhaldi og af hverju?
„Mér finnst virkilega erfitt að nefna eina borg en ég ætla að segja
Los Angeles. Ég á svo marga góða vini þar og skemmtilegar minningar
– svo er margt fjölbreytt í boði, allt frá ströndinni í Venice og yfir í að
fara á skíði í Big Bear.“
Hvernig heldur þú þér í formi?
„Ég hef alltaf verið í íþróttum og finnst
nauðsynlegt að hreyfa mig reglulega.
Síðustu ár hef ég farið í ræktina, í
hóptíma eða crossfit og er að
reyna að fara meira í jóga. Ég
fer út með hundinn nokkrum
sinnum á dag og er dugleg að
fara á hestbak. Svo er það mat-
arræðið og huga að því hvað ég
borða. Ég tek mig stundum til
og geri sellerísafa heima, er enn að
bíða eftir að einhver af þessum djús-
börum hér heima bjóði uppá það.“
Hvað gerir þú til þess að dekra við þig?
„Þegar ég vil dekra við mig tek ég kósí-
kvöld heima, fer í bað, set á mig maska,
hlusta á tónlist, borða góðan mat og horfi
svo á góða mynd. Elska líka að fara í kvöld-
sund og svo beint uppí rúm.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„The Subtle Art of Not Gi-
ving a F*ck.
– mæli með.“
Hvaða hönnuður er í uppá-
haldi?
„Ég á eiginlega engan uppá-
haldshönnuð, kaupi bara það
sem mér finnst fallegt en ég
heillast af norrænni hönnun,
heimilislegri en stílhreinni.
Andrea by Andrea er svo
uppáhaldsfatahönnuðurinn hér
heima.“
Hverju langar þig til að breyta
heima hjá þér?
„Mig langar að uppfæra all-
ar innréttingar. Ég myndi
helst vilja skipta þeim út en er
að skoða að sprautulakka eða
filma.“
Hvaða óþarfa keyptir þú þér
síðast?
„Líklega einhvern mat sem
ég þurfti svo að henda, líkleg-
ast nammi.“
Hvað er á óskalistanum hjá
þér?
„Oura Ring-hringur sem
fylgist með gæðum svefns, er
að vinna í því að taka svefninn í
gegn.“
Hvaða snjallforrit notar þú
mest?
„Instagram, ekki spurning!
Ég nota það töluvert persónu-
lega og einnig vann ég á aug-
lýsingastofu þar sem ég notaði
Instagram í markaðs-
setningarskyni fyrir
fyrirtæki og vöru-
merki sem ég
vann með. Þetta
er virkilega
skemmtilegur og
skapandi vett-
vangur.“
Elskar að fara í kvöld-
sund og beint upp í rúm
Ragnheiður Theodórsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri
á The Reykjavik EDITION, hugsar vel um andlega
heilsu með því að hreyfa sig. Markmiðið er að fara
oftar í jóga og huga vel að svefninum.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | Gudrunselma@mbl.is
Hver elskar ekki
ljúffengan bröns?
Instagram er
málið!
Los Angeles
er í miklu
uppáhaldi.
Ragnheiður
Theódórsdóttir
er fagurkeri
sem heillast af
norrænni
hönnun.
Oura ring er á
óskalistanum.
Ragnheiður er
dýravinur. Auk
þess að fara út
með hundinn
finnst henni
skemmtilegt að
skella sér á
hestbak.
Ragnheiður mælir
með bókinni The
Subtle Art of Not
Giving a F*ck.