Morgunblaðið - 23.09.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.09.2022, Blaðsíða 34
Sumarbústaða- stemning í miðbænum P arið hefur innréttað íbúðina á fal- legan máta og því óhætt að segja að Eydís og Benjamin hafi einstakt auga fyrir fleiru en ljósmyndun, en heimili þeirra endurspeglar þá hug- myndafræði að mikil fegurð búi í einfaldleik- anum. Eydís og Benjamin höfðu lengi verið að leita að rétta húsnæðinu og voru á tímabili tilbúin að flytja alla leið á Höfn í Hornafirði ef þau fyndu rétta húsið þar. „Allt í einu kom þessi íbúð upp sem við búum í núna, en um leið og við gengum upp á efri hæðina fundum við strax þá tilfinningu að þetta væri rétta íbúðin fyrir okkur,“ segir Eydís. Íbúðin er 90 fermetrar að stærð og á tveim- ur hæðum. Eydís og Benjamin hafa skapað af- slappað andrúmsloft á heimili sínu, en þau sóttu aðallega innblástur í danska og japanska hönnun þar sem einfaldleikinn er í forgrunni. Að innan er íbúðin klædd fallegum viði sem gefur rýminu mikinn karakter, en þegar þau Eydís og Benjamin gengu fyrst inn í íbúðina lýstu þau upplifuninni sem „sumarbústaðas- temningu í miðbæ Reykjavíkur“. „Þrátt fyrir að þetta sé lítið rými hentar þetta okkur svo vel. Það sem heillaði okkur mest var nýtingin á rýminu og hvernig eldhús- ið og stofan tengjast. Svo voru það auðvitað viðarveggirnir,“ segir Eydís. Tímafrekt að finna rétta parketið Þegar Eydís og Benjamin fluttu inn var ennþá steypa á gólfum og bæði stiginn og eld- húsinnréttingin enn ókláruð. „Við bjuggum þannig í þrjá mánuði en það fólst mikil vinna í því að finna rétta parketið sem passaði við við- arveggina. Við vildum gólfefni sem væri ekki of yfirþyrmandi svo að veggirnir fengju að njóta sín,“ útskýrir Eydís. „Það var ekki síður vinna að fá réttan aðila til að parketleggja stigann eins og við vildum hafa hann, en þau hjá Fasteignafegrun hjálp- uðu okkur að láta þessa sýn okkar verða að veruleika. Annars gekk allt mjög vel í fram- kvæmdunum, við erum með mjög svipaðan stíl og áttum því auðvelt með að taka allar ákvarð- anir,“ segir Eydís. Sóttu innblástur til erlendra kaffihúsa Í íbúðinni er eitt svefnherbergi og eitt bað- herbergi ásamt opnu rými með eldhúsi, borð- stofu og stofu. Á efri hæðinni er svo útgengt á stórt útisvæði. Uppáhaldsrými Eydísar og Benjamins er á efri hæðinni, en það er í sér- stöku uppáhaldi hjá þeim að sitja í sófanum og njóta morgunbollans. „Við vinnum mikið heima þannig að þegar við vorum að innrétta íbúðina vildum við gera efri hæðina að rými þar sem væri friðsælt að vera. Að sitja í sófanum með kaffibollann á morgnana með góða tónlist veitir okkur svo mikla hugarró enda er best að byrja daginn þar,“ segir Eydís. Eydís og Benjamin sóttu mestan innblástur til erlendra kaffihúsa þegar kom að því að inn- rétta íbúðina. „Fyrir nokkrum árum fórum við á kaffihús sem heitir Omotesando Koffee í Bretlandi og hönnunin þar inni var einmitt það sem við sáum fyrir okkur að framtíðarheimili okkar myndi líta út. Þetta var mjög opið rými með gólfsíðum gluggum, eikarvið og mjög mínimalískt,“ segir Eydís Japönsk og dönsk hönnun heillandi „Annars fáum við oft mikinn innblástur frá danskri og japanskri hönnun og höfum til dæmis keypt mikið frá danska hönnunarmerk- inu Vipp sem vinur okkar innanhússhönnuður- inn Anthony Bacigalupo kynnti fyrir okkur þegar við fluttum inn. Öll ljósin á efri hæðinni eru til dæmis frá þeim,“ bætir Eydís við. Aðspurð segist Eydís einnig vera með margt frá merkjunum Kinto, Ferm Living og Hay í íbúðinni. Eldhúsborðið, sófinn og sjón- varpsskenkurinn eru frá Tekk Habitat. Ljósmyndararnir Eydís María Ólafsdóttir og Benjamin Hardman festu kaup á sinni fyrstu eign í janúar 2021. Eftir að hafa leitað um allt land fundu þau draumaíbúðina á besta stað, í miðbæ Reykjavíkur. Irja Gröndal | Irja@mbl.is Það er augljóst að Eydís og Benjamin hafi vandað valið á húsgögnunum, en hér má sjá fallegt borðstofuborð og sófa frá Tekk Habitat ásamt ljósi frá danska merkinu Vipp. Ljósmyndararnir Eydís María Ólafsdóttir og Bejamin Hardman eiga undurfagurt heimili í hjarta Reykjavíkur. Fallegi N701-sófinn prýðir uppáhaldsrýmið, en hann var hannaður af Jacques Deneef. Í eldhúsinu er falleg svört innrétting sem tónar fallega með viðar- veggjum íbúðarinnar. 34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.